Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.09.2012, Blaðsíða 26
*Matur og drykkir Hinn heimsfræga ítalska eftirrétt tiramísú er hægt að bera fram á ótal vegu, jafnvel í blómapotti É g hef mjög gaman af því að elda og baka og hef alltaf gert mikið af því. Þá bjó ég í Stokkhólmi í 15 ár og sæki því innblástur frá sænskum matarbloggum og uppskriftavefsíðum,“ segir Dröfn Vilhjálmsdóttir sem gefur lesendum uppskrift að léttri og ilmandi kjúklingasúpu. Eftir að hafa lesið mikið af matarbloggum ákvað Dröfn að opna sína eigin vefsíðu, eldhussogur.com, í sumar þar sem hún safnar saman uppskriftum fjölskyldunnar en síðan hefur vakið athygli fyrir girnilegar uppskriftir og ekki síður fallega fram- setningu. „Mér fannst vefsíðan einstaklega góður vettvangur til að halda utan um það sem ég geri í eldhúsinu því oft gleymast góðar uppskriftir. Þetta er líka sniðugt þegar maður á börn sem farin eru að heiman eins og ég á en þarna geta þau þá nálgast uppskriftirnar mínar. Bloggið hefur einnig orðið mér til frekari hvatningar í matargerðinni.“ Dröfn er með óvenjulegan bakgrunn. Hún er geislafræð- ingur að mennt en er nú í meistaranámi í bókasafns- og upp- lýsingafræði við Háskóla Íslands. Í náminu er kennd skráning, lyklun, flokkun og miðlun upplýsinga, nokkuð sem hefur skilað sér á vissan hátt í gegnum bloggið. „Ég reyni til dæmis að vanda flokkun og skráningu á uppskriftunum svo auðvelt sé að finna þær, bæði á vefsíðunni sjálfri og með leitarvélum.“ Ann- ars segist Dröfn vera fremur kresin á súpur. „En þessi er þó í algjöru uppáhaldi á heimilinu, jafnt hjá okkur fullorðnu sem og börnunum. Þetta er ekta notalegur haustréttur.“ julia@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg UPPSKRIFT HELGARINNAR Ekta haustréttur DRÖFN VILHJÁLMSDÓTTIR ER LÍKLEGA MEÐ EITT SKIPULAGÐASTA OG FALLEGASTA MATARBLOGG LANDSINS. DRÖFN SEGIST VERA UNDIR TALSVERÐUM SÆNSKUM MATARÁHRIFUM. Dröfn Vilhjálmsdóttir sækir sér sænskan innblástur í mat- argerð og er mikill aðdáandi sænskra matarblogga. KJÚKLINGASÚPA MEÐ EPLUM, KARRÍ OG ENGIFER 1 msk. smjör til steikingar 1 lítill laukur, saxaður fínt 1-2 hvítlauksrif, söxuð fínt ¼-½ rautt chili, kjarn- hreinsað og saxað fínt 1 msk. ferskt engifer, saxað fínt 3 gulrætur, rifnar gróft 2 græn epli, flysjuð og rifin gróft 3 tsk. karrí 7 dl kjúklingasoð (3 tsk. kjúklingakraftur) 1 dós kókosmjólk 1 dós hakkaðir tómatar 5 dl matreiðslurjómi 900 g kjúklingabringur salt og hvítur pipar smá kóríander, blöðin söxuð gróft Laukur steiktur upp úr smjöri í stórum potti þar til að hann er orðin mjúkur. Hvítlauk, chili og engifer bætt út í og steikt með í stutta stund. Gulrótum, eplum og karrí bætt út í og steikt í um það bil mínútu. Kjúklingasoði bætt saman við ásamt niðursoðnum hökkuðum tómötum. Suðan látin koma upp og súpan látin malla í 10-15 mínútur. Á meðan eru kjúklingabringur skornar í jafnstóra bita. Kjúklingi, kókosmjólk og matreiðslurjóma er bætt við í pottinn, súpan látin ná suðu og leyft að malla þar til kjúk- lingurinn er eldaður í gegn. Súpan er smökkuð til með karrí, hvítum pipar, salti og jafnvel cayenna-pipar eða chili fyrir þá sem vilja sterkari súpu. Áður en súpan er borin fram er kóríander bætt út í.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.