Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ | 29 Fyrir ofan Smáralind Sími 567 1213 www.splass.is fylgstu með okkur á Facebook Engin venjuleg bílaþvottastöð! Gullsm ári Smáralind Sm ár ah va m m sv eg ur Hagasmári Fífuhvamm svegur Tölfræði af öllu tagi dunda menn sér við að taka saman. Þar á meðal lista yfir sendibíla sem mest er stolið ár hvert í Bretlandi. Á nýrri samantekt fyrir árið 2011 kemur í ljós að sendibílaþjófar ágirntust helst Ford Transit. Einn af hverjum fjórum stolnum sendibílum var af þeirri gerð. Í öðru sæti var Mercedes Sprinter með 21% hlutdeild og í því þriðja Mitsubishi L200 pallbíllinn með 13%. Í fjórða til fimmta sæti eru Nissan Primastar og Peugeot Expert með 4% hlutdeild hvor bíll. Ekki þykir niðurstaðan varðandi efsta sætið koma á óvart þar sem Ford Transit er langsöluhæsti sendibíllinn í Bretlandi. Aftur á móti kemur há hlutdeild Sprinter á óvart þar sem sala á Transit er tvöfalt meiri. agas@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Transit Eftirsóttur meðal óvandaðra og er stolið steini léttara á Bretlandseyjum. Ford Transit stolið mest S tórborgir heims eiga það til að teppast á háannatíma. Nógu leiðinlegt er að bíða í umferðinni og láta tímann fara til spillis, en ennþá verra er að missa af mikilvægum fundi eða flugvél út í heim. Í sumum borgum í vanþróaðri hornum jarðarinnar er vandinn leystur með því að leigja skutl aftan á vespu. Íslenskir ferðalangar kann- ast eflaust við mótorhjólaskutl- menninguna í Taílandi sem er bæði ódýr, einföld og þægileg leið til að komast greiðlega á áfangastað. Nú hefur frumkvöðullinn uppá- tækjasami Richard Branson fært Lundúnabúum svipaða þjónustu. Virgin Limobike heitir reksturinn og gengur út á að ferja farþega um Lundúnaborg á veglegu mótorhjóli. Í góðum höndum Öryggið og íburðurinn er öllu meiri en í Bangkok. Farþeginn fær afnot af hjálmi og hlífðarfatnaði sem bæði eykur á öryggið og ver gegn byltum og skellum. Ökumaður hjólsins er þrautþjálfaður og vottaður í bak og fyrir og á hjólinu eru hirslur til að geyma nokkuð stóra handfarang- urstösku. Skutlið frá Heathrow niður í mið- borg Lundúna kostar um 85 pund, eða tæpar 17.000 kr en skutl innan miðborgarinnar kostar þetta 30-40 pund, eða um 6.000 til 8.000 kr. ai@mbl.is Taxi sem festist ekki í umferðinni Virgin-veldið heldur úti mótorhjólaskutlum í Lond- on Veglegir Þeir eru býsna álitlegir, vélfákarnir sem skotleiga Virgin býður upp á. Þægilegt Það ætti enginn að tefjast að óþörfu sem brunar um á leigufák frá Virgin. Richard Branson veit hvað hann syngur, sem fyrr. Hjálmur og hlífðarfatnaður er innifalinn og ætti því ekki að væsa um þá sem leigja sér skottúr aftan á hjólinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.