Monitor - 18.10.2012, Page 3
FYRIR KNATTSPYRNUSÉNÍ
Stelpurnar í landsliði Íslands í
knattpyrnu héldu í gær til Úkraínu
en á laugardag
fer fram fyrri
viðureign
liðanna um
laust sæti
í úrslita-
keppni Evr-
ópumótsins
sem fram fer
á næsta ári.
Því er upplagt að
kaupa sér andlitsmálningu og senda
stúlkunum góða strauma. Góð úrslit
ytra ættu að auka stemninguna
á Laugardalsvellinum í seinni
viðureign liðanna.
FYRIR TÓNLISTARUNNENDUR
Lára Rúnars sendir á næstunni
frá sér sína fjórðu plötu og
nefnist hún Moment. Að-
dáendur söngkonunnar
geta þó fengið gríðargott
forskot á sæluna því í
kvöld kl. 20.30 mun hún
bjóða áhugasömum á að
koma og hlusta á gripinn á
Faktorý. Bjór í boði hússins og
fi mm heppnir fá fría plötu.
FYRIR SÁLINA
Ef þú vaknar
eilítið súr á
næstunni
og vantar
að kæta
sálina eilítið
þá er gott að
slá inn Skype
Laughter Chain á
Youtube og rifja upp myndskeiðið
þar sem hláturinn er í aðalhlutverki.
Við þekkjum það öll hvað hláturinn
getur gefi ð okkur mikla birtu og
meira að segja bláókunnugt fólk
getur fengið okkur að hlæja með
hláturinn einan að vopni.„Lögin verða áfram sungin á íslensku. Við erum allir stúdentar í þýsku en
erum nú ekkert sérstakir í henni. Ég hugsa samt að Doddi (söngvari) reyni
að koma með einhverjar kynningar milli laga á þýsku. Hann er búinn að
vera að æfa þær á fullu,“ segir Davíð Arnar Sigurðsson, píanóleikari Lock-
erbie, sem heldur í dag í sitt fyrsta tónleikaferðalag út fyrir landsteinana.
Hljómsveitin sendi frá sér sína fyrstu plötu í fyrrasumar og skrifaði undir
plötusamning við þýska plötufyrirtækið Käpitan Platte í nóvember á
sama ári. Platan, sem ber nafnið Ólgusjór, var í framhaldinu af því gefi n
út í Þýskalandi, Austurríki, Sviss og Lúxemborg í mars síðastliðnum.
„Planið var að fylgja eftir plötuútgáfunni úti strax í sumar, svo þetta er í
raun túrinn sem átti að vera farinn þá. Það var búið að skipuleggja túrinn
þá og allt en svo þurftum við að fresta því fram á haust. Það kemur samt
ekkert að sök. Nú mætum við bara beint á Airwaves af túrnum, þéttir eftir
mikla spilamennsku svo það er bara brjáluð tilhlökkun í gangi fyrir þessu
öllu saman,“ segir Davíð Arnar.
Útrunnið vegabréf og ópökkuð taska
„Í raun og veru veit ég svo sem ekki mikið um staðina sem við erum að
fara að spila á. Ég veit að Dikta eru að fara að spila á sama stað og við í
Leipzig í nóvember og svo spiluðu Agent Fresco á sama stað og við spilum
í Búdapest á Evróputúrnum sínum. Þeir sögðu að það væri rosalega
fl ottur staður svo það lofar góðu,“ segir Davíð Arnar aðspurður um hvað
bíði strákanna á meginlandinu.
Hljómsveitin kemur til með að ferðast um í langferðabíl með þýskum
bílstjóra og þýskum hljóðmanni og heldur sjö tónleika í fi mm löndum.
Fyrir hvaða áfangastöðum er tilhlökkunin þá mest? „Ég er helvíti spennt-
ur fyrir Mílanó-tónleikunum. Það er náttúrlega fl ott borg og svo skemmir
ekkert fyrir að það er geðveikt veður á Ítalíu núna. Það verður fínt að
komast úr kuldanum hér yfi r í 20 stiga hita. Svo er ég spenntur fyrir að
koma til Ungverjalands, ég hef aldrei komið þangað áður.“
Líkt og liggur í augum uppi þarf að huga að mörgu fyrir svona tónleika-
ferðalag, til dæmis hefur hljómsveitin líklega æft stíft að undanförnu, en
það er ekki síður mikilvægt að huga að praktískum atriðum sem eiga þó
til að gleymast. „Helmingur af efninu sem við tökum á tónleikunum er
nýtt svo það verður spennandi. Ég er hins vegar ekki búinn að pakka og
ég á meira að segja líka eftir að sækja vegabréfi ð mitt. Ég fattaði það bara
í gær að vegabréfi ð mitt væri útrunnið þannig að það þarf að redda því,“
segir Davíð að lokum og hlær.
Hljómsveitin Lockerbie heldur í dag út til meginlands
Evrópu í sitt fyrsta tónleikaferðalag út fyrir landsteinana
Er Atli Óskar viljandi að reyna að líkjast Eminem
í tilefni afmælis þess síðarnefnda?
fyrst&fremst
Vikan á
Helgi
Sæmundur
Guðmundsson
Eru einhverjir
vina minna að
fara í fótbolta á
kvöldin og geta boðið mér með?
16. október kl. 20:30
Aron
Gunnarsson
Meira stress
uppi stuku en
thegar madur er
inna vellinum!!
Afram island!! 16. október kl. 18:16
MONITOR MÆLIR MEÐ...
3 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2012 MONITOR
Maggi Mix
Ég er spaði
fæddist tanaður
allann daginn
:D
Ég er skvísu
spaði 16. október kl. 17:57
Kristmundur
Axel YM
eg væri til i
að sja annie
mist og gunnar
nelson slást
16. október kl. 20:42
Fínt að komast
úr kuldanum
LJÚFIR LOCKERBIE-LIÐAR
DAVÍÐ ARNAR
Á 30 SEKÚNDUM
Fyrstu sex: 151291.
Staða í hljómsveit: Píanóleikari.
Uppáhaldsmatur: Hreindýrakjöt.
Lag í uppáhaldi þessa stundina:
There Will Never Be Another You
með Chet Baker.
Fjöldi eiginhandaráritana sem
ég hef gefi ð á tónlistarferlinum:
Alveg ógeðslega margar (hlær).
Í BLAÐINU
FEITAST
Hin
sykraða
söng-
kona Agnes
Björt Andradótt-
ir á það til að
dansa í strætó.
4
Stíllinn
heimsótti
Make Up
Store til að fá
heitustu förðun-
artrendin beint
í æð.
6
Atli
Óskar
hefur
komið víða við
sem leikari þrátt
fyrir ungan
aldur.
Í gær
fagnaði
einn
farsælasti
rappari veraldar,
Eminem, 40 ára
afmæli sínu.
MONITOR@MONITOR.IS Ritstjóri: Jón Ragnar Jónsson (jonragnar@monitor.is) Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson (hilmar@monitor.is)
Blaðamenn: Einar Lövdahl Gunnlaugsson (einar@monitor.is) Lísa Hafl iðadóttir (lisa@monitor.is) Umbrot: Monitorstaðir
Auglýsingar: Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.is) Forsíða: Styrmir Kári Erwinsson (styrmirkari@mbl.is)
Myndvinnsla: Ingólfur Guðmundsson Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Sími: 569 1136
Efst í huga Monitor
Að upplifa drauminn
Þvílíkur fagmaður, þessi Felix Baum-gartner. Öll heimsbyggðin fylgdist
með þegar þessi ofurhugi rauf
hljóðmúrinn fyrstur manna síðastliðinn
sunnudag og fagnaði ógurlega þegar hann
lenti á jörðu niðri.
Töffarinn tók sig til og sló nokkur met í einu. Fallhlífarstökk hans var
úr hæstu hæð sögunnar eða rúmlega
39 kílómetra hæð og um leið setti hann
lofthæðarmet í mönnuðu loftbelgsfl ugi. Felix
var fyrstur manna til að rjúfa hljóðmúrinn án
hjálpar farartækis enda náði hann 1342 km/klst
hraða þegar hann stefndi til jarðar í frjálsu falli. Ofur-
hetjan var heilar 4 mínútur og 19 mínútur í frjálsu falli.
Það held ég að kalli fram vott af hræðslu og gífurlegt
magn frelsis á sama tíma.
En stökk Felix ætti að vera okkur mikil hvatning til að fylgja eftir draumum okkar. Það sýnir að í raun og
veru er ekkert ómögulegt. Auðvitað þarf draumurinn að
vera á einhvern hátt raunhæfur en trúin á drauminn,
trúin á að hann geti orðið að veruleika, er alltaf fyrsta
skrefi ð og jafnframt það mikilvægasta.
Þegar maður svo trúir á drauminn þá þarf maður auðvitað að trúa á sjálfan
sig. Trúa því að það sé maður sjálfur sem
geti upplifað drauminn. Þá skiptir miklu
máli að vera óhræddur við að vera maður
sjálfur og ekki láta viðhorf og hegðan
annarra hafa áhrif á mann.
Það getur alltaf verið að einhverjir hafi ekki trú á verkefninu en þá er mikilvægt
að halda einbeitingunni, telja í sig kjark og horfa
fram á veginn. Þá er mikilvægt að átta sig á því hvaða
fólk það er í kringum mann sem gefur okkur jákvæða
orku og hverjir gefa okkur neikvæða orku. Í stað þess að
eyða orku í að pirra þig á síðarnefnda hópnum sjúgðu
þá þeim mun meiri orku í þig frá jákvæða hópnum.
Við stefnum öll í einhverja átt. Ef þér líkar við stefn-una sem þú hefur tekið, láttu þá engan segja þér að
beygja af réttu leiðinni. Trúðu á sjálfan þig. Alla leið. jrj
8
15
ÁFANGASTAÐIRNIR
18. – 26. OKTÓBER
Off enbach, Þýskaland
Wil, Sviss
Mílanó, Ítalía
Búdapest, Ungverjaland
Valasske Mezirici, Tékkland
Leipzig, Þýskaland
Bielefeld, Þýskaland
Björn Daníel
Sverrisson
Það er aðeins
einn Felix sem
er hetja. Það er
Felix Bergsson.
14. október kl. 19:19
Felix Bergsson
nældi mér
í miða á
Mika! hlakka
mikið til að sjá
falsettukónginn
(drottninguna) í aksjón!
16. október kl. 17:13
Mynd/Styrmir Kári