Morgunblaðið - 15.12.2012, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2012
Nýr formaður Samfylkingarinnar
verður kosinn í allsherjaratkvæða-
greiðslu meðal allra skráðra félaga.
Þetta varð ljóst eftir að fram kom
gild krafa um allsherjaratkvæða-
greiðslu, en til að krafan sé gild
þurfa a.m.k. 150 skráðir félagar að
krefjast hennar. Fylgismenn þeirra
Árna Páls Árnasonar og Guðbjarts
Hannessonar, sem báðir hafa lýst
yfir framboði, lögðu kröfuna sam-
eiginlega fram, að því er fram kem-
ur í tilkynningu frá kjörnefnd
flokksins.
Þar kemur einnig fram að fram-
boð skuli berast eigi síðar en föstu-
daginn 28. desember nk. kl. 12.00 á
skrifstofu flokksins. Framboðum
skulu fylgja skrifleg meðmæli
a.m.k. 20 flokksfélaga úr hverju
kjördæmi.
Kosið verður með rafrænum
hætti frá og með 18. janúar til kl.
18.00 þann 28. janúar. Hægt er að
fá atkvæðisseðil sendan í pósti og
þurfa óskir þar um að koma fram
eigi síðar en mánudaginn 21. jan-
úar kl. 18.00 nk.
Atkvæðisrétt hafa allir skráðir
félagar í Samfylkingunni sem eru
skráðir í flokkinn í síðasta lagi
föstudaginn 11. janúar 2013 kl.
18.00.
Jóhanna Sigurðardóttir lýsti því
yfir fyrir nokkru að hún sæktist
ekki eftir endurkjöri sem formaður
Samfylkingarinnar. sisi@mbl.is
Kosið raf-
rænt um
formann
Samfylkingin kýs
formann í janúar
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur
samþykkti í gær að veita forstjóra
heimild til að undirrita kaupsamn-
ing við Reykjavíkurborg og afsal
vegna Perlunnar. Allir vatnstank-
arnir í Öskjuhlíð, sem eru hluti
hitaveitunnar í borginni, verða
áfram í eigu Orkuveitunnar.
Kaupverð samkvæmt fyrirliggj-
andi samningsdrögum er 950
milljónir króna. Kaup Reykjavík-
urborgar eru háð því að samn-
ingar takist við yfirvöld menning-
armála um að þau leigi húsið
undir náttúruminjasafn, segir í
tilkynningu frá Orkuveitunni. Auk
Perlunnar mun náttúruminjasafni
standa til boða að leigja þann
tankanna á Öskjuhlíðinni, sem
verið hefur safn síðasta áratug-
inn.
Fagna kaupunum
Stjórn Hins íslenska nátt-
úrufræðifélags (HÍN) sendi í gær
frá sér ályktun þar sem því er
fagnað, að Reykjavíkurborg kaupi
Perluna í því augnamiði að leigja
ríkinu húsið til langs tíma og að
þar verði komið upp náttúrusýn-
ingu. Stjórnin segir það jafnframt
gleðiefni að ríkið sé þessu sam-
mála og hyggist tryggja fjármuni
á fjárlögum fyrir árið 2013 svo
þessar áætlanir nái fram að
ganga.
„Stjórn HÍN sér fyrir sér að í
Perlunni verði komið upp veglegri
og nýstárlegri sýningu sem sæmi
íslenskri þjóð, gestum hennar og
sérstæðri náttúru landsins,“ segir
í ályktuninni.
Samþykkt að selja Perluna
Reykjavíkurborg kaupir húsið fyrir 950 milljónir króna
Lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu
fékk nýlega til-
kynningu um
nakinn mann á
hlaupum á gras-
blettinum við
Stjórnarráðið.
Fram kemur á
Facebook-síðu
lögreglunnar, að
eftir að maðurinn
hafði hlaupið einhverja hringi náðu
lögreglumenn að hafa hendur í hári
hans enda fátt annað að grípa í svo
vel færi.
Þetta reyndist vera ungur ferða-
maður í sokkunum einum fata. Hann
var mjög miður sín og gaf þær skýr-
ingar að hann hefði hitt íslenskar
stúlkur á bar í borginni. Þær hefðu
manað hann til að fara úr fötunum
og hlaupa um á umræddu grasi og
staðhæft að slíkt væri algeng hefð á
Íslandi. Stúlkurnar hefðu boðist til
að halda á fötum hans á meðan hann
þreytti hlaupið en látið sig hverfa
með fötin í miðju hlaupinu.
Þegar manninum var skilað á hót-
el sitt biðu fötin hans í móttökunni
en stúlkurnar voru hvergi sjáan-
legar að sögn lögreglunnar.
Í sokkunum
einum fata
Stjórnarráðið við
Lækjargötu.
Algengast er að verð á jólamat hafi
hækkað um 5-10% frá því í fyrra,
samkvæmt verðkönnun sem verð-
lagseftirlit ASÍ gerði í verslunum á
þriðjudag. Þó eru dæmi þess að
verð hafi hækkað um allt að 70%.
Birkireykt úrbeinað hangilæri
frá SS, sem er afar vinsælt á borð-
um landsmanna um jólin, hefur
hækkað töluvert í verði frá því í
fyrra. Mest hefur verð á hangilær-
inu hækkað hjá Nettó eða um 16%,
hjá Bónus og Krónunni um 13% og
Fjarðarkaupum um 6%.
Hagkaup eru eina verslunin þar
sem vöruverð
hefur sjáanlega
lækkað síðan í
fyrra. Hagkaup
hafa lækkað
verð á vöru í um
helmingi tilfella
sem kannað var,
t.d. hefur verð á
reyktu jólakjöti
lækkað þar síðan
í fyrra en hins
vegar hækkar það í öllum hinum
verslununum sem könnunin náði
til.
Algengt að 5-10% dýrara
sé að kaupa inn fyrir jólin
Verð Jólamatur er
dýrari en í fyrra.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Virðing
Réttlæti
Færð þú umsaminn hvíldartíma í desember?
Hvíldartíminn