Morgunblaðið - 26.03.2013, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 6. M A R S 2 0 1 3
Stofnað 1913 71. tölublað 101. árgangur
DANSAÐ AF
MIKILLI GLEÐI
Í VATNI
FRÁ BRILLO-
GLÖSUM TIL
BRYNDREKA
GÍTAR-STUBBUR
SEM VARÐ RISI
Í BLÚSHEIMI
BÍLAR BLÚSHÁTÍÐ 46AQUA ZUMBA 10
Dagskráin breytist
» Þingstörfum átti samkvæmt
starfsáætlun að ljúka 15. mars.
» Enn á eftir að ljúka umræðu
um 41 þingmál hið minnsta.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Ég er vongóð um framhaldið,“ sagði
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir,
forseti Alþingis, á tólfta tímanum í
gærkvöldi, skömmu eftir að hún sleit
þingfundi. Hafðu hún þá frestað
þingfundi sex sinnum í gær.
Formenn flokkanna funduðu síð-
degis í gær og síðan fóru stjórnarlið-
ar yfir málin innbyrðis án þess að
það tækist að semja um þinglok.
Þingforseti boðaði til þingfundar
klukkan 13.30 í dag og átti að nota
tímann fram á nótt og fyrir hádegi til
að finna leiðir til að ljúka þinginu.
Töldu nokkrir þingmenn ekki úti-
lokað að þingið starfaði fram yfir
páskahelgina. „Við bíðum enn eftir
því að heyra frá stjórnarflokkunum,“
sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokksins,
á tólfta tímanum í gærkvöldi. Bæði
Framsóknarflokkurinn og Sjálf-
stæðisflokkurinn vilja að einstök
þingmál verði lögð til hliðar.
Innan stjórnarflokkanna hefur
hins vegar ekki náðst samkomulag
um slíkt. »2
Þráteflið heldur áfram
Enn ósamið um þinglok Stjórnarandstaðan krefst þess að mál verði sett á ís
Fylkingar innan stjórnarflokka eru andvígar málamiðlun í vissum þingmálum
Malbik endar Enn má víða sjá var-
úðarmerki um malarslitlag.
Aðeins vantar tæpa 8 kílómetra upp
að hægt sé að aka hringinn í kring-
um landið á bundnu slitlagi. Þá þarf
að fara um suðurfirði Austfjarða og
Fáskrúðsfjarðargöng. Hringveg-
urinn liggur hins vegar um Breið-
dalsheiði sem er ómalbikuð og vant-
ar tæpa 33 kílómetra upp á að hægt
sé að aka hinn formlega hringveg á
bundnu slitlagi.
Hringvegurinn er talinn 1.332 km.
Ekki er í samgönguáætlun gert ráð
fyrir fjármagni til að leggja bundið
slitlag á veginn í Berufjarðarbotni
og yfir Breiðdalsheiði. Hlutfall mal-
arkafla sem er 2,5% af hringnum
mun því ekki breytast í ár. 7,72 kíló-
metra kafli í Berufjarðarbotni er
eini spottinn sem er lagður mal-
arslitlagi ef fjarðaleiðin er farin en
hún er lengri. Áformað er að laga
veginn um Berufjarðarbotn á ár-
unum 2015 til 2018. Stysta leiðin
liggur um fjallveginn Öxi og þar
vantar 29 kílómetra upp á að bundið
slitlag nái endum saman. Áætlað er
að leggja pening í þann veg á ár-
unum 2019 til 2022. Ekki er tekinn
með smákafli við Múlakvísl á Mýr-
dalssandi sem fór í sundur í jök-
ulflóðum á árinu 2011.
Bundið slitlag á vegakerfinu í
heild er orðið 5.307 kílómetrar. Að-
eins bættust við 54 kílómetrar á síð-
asta ári. Er það helmingur til þriðj-
ungur af því slitlagi sem bæst hefur
við síðustu ár og minnsta viðbót góð-
vega frá 1979. Breytingin felst í því
að engu stórverki lauk í fyrra. »4
33 km af
hringvegi
á möl
Aðeins lagðir 54
km af slitlagi í fyrra
Það varð mikil gleði hjá börnunum á bænum
Þverá í Reykjahverfi, þeim Heiðdísi, Árdísi og
Kristjáni, þegar þau komu í fjárhúsin um helgina
og sáu að ærin Bauga hafði borið tveimur fal-
legum gimbrum. Óvanalegt er að lömb komi í
heiminn svo snemma á vorin.
Börnin gleðjast yfir snemmbornum lömbum
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Sauðburður hefst snemma á Þverá í Reykjahverfi
Starfshópur sem fór yfir rannsókn á Guðmund-
ar- og Geirfinnsmáli segir hafið yfir allan skyn-
samlegan vafa að framburður allra þeirra, sem
hlutu dóm í málinu hafi verið óáreiðanlegur eða
falskur. Segir starfshópurinn veigamiklar
ástæður fyrir því að málin verði tekin upp á ný.
Starfshópurinn leggur til þrjár leiðir: Að rík-
issaksóknari meti hvort tilefni sé til endurupp-
töku, að hinir dæmdu fari fram á endurupptöku
þeim að kostnaðarlausu eða að lagt verði fram
frumvarp á Alþingi sem mæli fyrir um endur-
upptöku málanna.
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra
sagði í gær að rétt væri að bíða niðurstöðu rík-
issaksóknara um hvort embættið hygðist gera
eitthvað í ljósi skýrslunnar sem birt var í gær.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari
sagði við Morgunblaðið að málið væri komið
inn á borð til hennar. Sagðist Sigríður mundu
fara yfir skýrsluna ásamt tveimur öðrum sak-
sóknurum og ætla að gefa sér tíma fram yfir
páska.
Gísli H. Guðjónsson, prófessor í réttarsál-
fræði, aðstoðaði starfshópinn við störf sín.
Sagði Gísli í gær að hann hefði aldrei komið að
máli þar sem sakborningar hefðu verið í ein-
angrun jafn lengi og í Guðmundar- og Geir-
finnsmáli. Hann sagði við Morgunblaðið að með
aðkomu þýska lögreglumannsins Karls Schütz
að rannsókn málsins hefði komið regla á hlut-
ina en Schütz hefði þó greinilega verið sann-
færður frá upphafi um sekt sakborninga. Gísli
segist efast um að nokkur dómstóll hefði dæmt
fólkið ef Schütz hefði ekki komið að málum.
MGuðmundar- og Geirfinnsmál »14-17
Ríkissaksóknari fer yfir málið
Guðmundar- og Geirfinnsmál í sviðsljósið á ný Játningar óáreiðanlegar Tilefni til endurupptöku
Morgunblaðið/Rósa Braga
Óáreiðanlegt Starfshópurinn kynnti niður-
stöður sínar í gær og vill endurupptöku mála.