Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.11.2013, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.11. 2013
Lífsviðhorf Hafsteins Vilhelms-
sonar sem er í viðtali í blaðinu í
dag er til eftirbreytni. Þótt aðrir
hafi verið til í að láta það bitna á
honum að vera dökkur á hörund
hefur hann aldrei látið það á sig fá.
Hann mætir fordómum með gleði
og léttleika, ekki hatri og reiði.
„Ég áttaði mig snemma á því að
þetta gæti orðið óbærilegt léti ég
það ná til mín. Þess vegna slæ ég
þessu iðulega upp í grín og af-
vopna fólk þannig,“ segir hann í
viðtali aftar í blaðinu í dag þar
sem hann greinir frá því að þótt
hann mæti enn fordómum hér á
landi vegna hörundslitar síns hafi
mjög dregið úr þeim í seinni tíð.
Þótt Hafsteinn erfi ekkert við
neinn þá segir hann þó frá því
þegar hann var krakki á fótbolta-
velli og fékk yfir sig gusur frá
áhorfendum vegna hörundslitar
síns. Það er eiginlega ekki hægt
annað en að leiða hugann að því
hvort það hafi verið krakkar eða
foreldrar þeirra sem hreyttu út úr
sér einhverju fordómarausi við lít-
inn fótboltapjakk. Getur verið að
það gerist enn?
Fyrir skömmu steig unglings-
stúlka fram, Selma Björk Her-
mannsdóttir, og sagði frá einelti
sem hún hefur orðið fyrir á netinu
og í raunheimum fyrir það eitt að
vera með skarð í vör. Hún er öðru-
vísi og það er nóg til að fá yfir sig
formælingar og mega upplifa
þjösnaskap og útskúfun. Hún
vakti athygli á því hvernig hægt
er að mæta slíku ranglæti með
gæsku og jákvæðni. Svipað við-
horf kemur fram hjá Hafsteini –
að mæta ranglæti og fordómum
með engu nema gleði, gríni og
góðmennsku. Og hann veltir sér
barasta ekkert of mikið upp úr
ranglæti yfir höfuð heldur horfir á
fegurðina í augum dóttur sinnar.
Það er gaman að bera á borð
fyrir lesendur viðtal við mann með
svona heilbrigt viðhorf til lífsins.
RABBIÐ
Heilbrigð viðhorf
Eyrún Magnúsdóttir
Réttur barna til hamingju, matar, foreldra og heilbrigðis var mörgum ofarlega í huga í réttindagöngu barna sem fram fór í Reykjavík í vikunni. Einhverjir
nefndu reyndar að þeim þætti einnig mikilvægt að börn ættu rétt á bíl! Tæplega 300 börn gengu sem leið lá frá Hallgrímskirkju að Ráðhúsinu þar sem
Jón Gnarr borgarstjóri tók á móti þeim. Börnin voru úr Austurbæjarskóla, af leikskólanum Miðborg og frístundaheimilunum Draumalandinu, Eldflauginni
og Halastjörnunni. Liðin eru 24 ár frá því Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna var samþykktur á Allsherjarþingi SÞ og í tilefni þess verður haldið menning-
armót, vegleg hátíð, í aðalsal Borgarbókasafnsins í Tryggvagötu sunnudaginn 24. nóvember kl. 15.00. Allir eru velkomnir, þátttaka ókeypis og heilmargt
verður til skemmtunar. Börnum gefst kostur á að troða upp og sýna skemmtiatriði, einnig að koma með eigin hluti af ýmsu tagi og sýna öðrum.
AUGNABLIKIÐ
Morgunblaðið/Ómar
BÖRN EIGA RÉTT
TÆPUR ALDARFJÓRÐUNGUR ER SÍÐAN BARNASÁTTMÁLI SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA VAR SAMÞYKKTUR Á ALLS-
HERJARÞINGI ÞESS. HALDIÐ VERÐUR UPP Á TÍMAMÓTIN MEÐ VEGLEGUM HÆTTI Í BORGARBÓKASAFNINU.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Friðuð hús skoðuð.
Hvar? Hafnarborg, Hafnarfirði.
Hvenær? Sunnudag kl. 15.
Nánar: Sigríður Björk Jónsdóttir leiðir
göngu um miðbæ Hafnarfjarðar.
Friðuð og falleg hús
Hvað? Opið skákmót
fyrir alla, háa sem lága.
Hvar? Vin, Hverf-
isgötu 47.
Hvenær? Mánudag
kl. 13.
Nánar: Mót tileinkað skáklandnáminu
á Grænlandi.
Skákmót
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Málþing með þátttöku um 30
glæpasagnahöfunda og þýðenda.
Hvar? Norræna húsinu.
Hvenær? Laugardag og sunnudag.
Nánar: Viðburðir alþjóðlegu glæpa-
sagnahátíðarinnar eru opnir öllum. Frír
aðgangur, sjá dagskrá á icelandnoir.com.
Glæpasagnahátíð
Hvað? Sýningunni
Hinsegin fólk í máli og
myndum lýkur um
helgina.
Hvar? Þjóðminjasafn-
inu.
Hvenær? Opið kl. 11-
17 laugardag og sunnudag.
Nánar: Jónína Leósdóttir les upp úr bók
sinni Við Jóhanna kl. 13.30 á laugardag.
Hinsegin sýningu lýkur
Hvað? Tónleikar með Stjórninni.
Hvar? Græna hattinum, Akureyri.
Hvenær? Kl. 20 og 23 á laugardag.
Nánar: Miðaverð er 3.000 krónur.
Stjórnin fyrir norðan
Hvað? Barna-
leiksýning.
Hvar? Kúlunni,
Þjóðleikhúsinu.
Hvenær?
Laugardag kl.
13.30 og 15.
Nánar: Búið
er að sýna verkið um bræðurna sem
höggva í tennur yfir hundrað sinnum í
þessari lotu. Miðaverð er 1.900 krónur.
Karíus og Baktus
* Forsíðumyndina tók Eggert Jóhannesson