Morgunblaðið - 31.12.2013, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 31.12.2013, Qupperneq 40
40 STJÓRNMÁL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 2013 K osningar í vor mörkuðu skörp skil við stjórn landsins. Frá völdum fór ríkisstjórn Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs og Sam- fylkingar og eftir langar stjórnarmynd- unarviðræður tók við ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Tíðindi kosning- anna voru kosningasigur Framsóknarflokks sem byggðist á stórum loforðum, síðar kölluð heimsmet af formanni flokks- ins, um almenna niðurfærslu verðtryggðra lána. Á þeim lof- orðum var ríkisstjórnin mynduð og í stjórnarsáttmálanum voru þau gerð að höfuðatriði ásamt ýmsum þjóðlegum tón- um og var ætlað að draga upp mynd af ungri ríkisstjórn í ungu lýðveldi. Hin unga ríkisstjórn hefur hins vegar ekki beinlínis verið boðberi nýrra tíma. Átök þessa árs frá og með kosningum hafa fyrst og fremst snúist um afturhvarf til gamalla stjórnarhátta veltiáranna fyrir hrun. Þau hófust strax á sumarþingi þegar ný ríkisstjórn lækkaði sérstök veiðigjöld á útgerðarfyrirtæki sem lögð voru á umframhagnað þessara fyrirtækja. Þar með afsöluðu stjórnvöld almenningi árleg- um tekjum upp á tæplega sex og hálfan milljarð af sameig- inlegri auðlind þjóðarinnar. Í kjölfarið greiddu eigendur stórútgerðanna sér út arð upp á hundruð milljóna eða millj- arða. Þar með höfðu verið færðir fjármunir úr sameig- inlegum sjóðum yfir á einmitt þá sem aflögufærir eru í samfélaginu. Mörg önnur dæmi eru um stefnubreytingu með nýrri rík- isstjórn þar sem fremur er farin sú leið að lækka álögur á þá sem breiðust bökin hafa. Hún birtist skýrast í nýsam- þykktum fjárlögum þar sem áherslan er á óþarfan og sárs- aukafullan niðurskurð á öllum sviðum samfélagsins. Þessi niðurskurður hefði ekki verið nauðsynlegur ef sanngirni hefði verið gætt í dreifingu byrða. Þannig er niðurskurður á framlögum til framhaldsskóla og háskóla mun þungbærari fyrir þær stofnanir en lítillega minni arður sjávarútvegsfyr- irtækja. Niðurskurður til ýmissa vaxtarsprota á borð við rannsóknir, nýsköpun og skapandi greinar er líka vanhugs- aður. Þessir sprotar geta skilað sér margfaldir til sam- félagsins og gildir þar einu hvort átt er við heilbrigðisvís- indi (sem skapað hafa stærstu fjárfestingar hér á landi frá hruni) eða kvikmyndagerð. Of harkalegur samdráttur rík- isins í stuðningi við fjölbreytilegt atvinnulíf við núverandi aðstæður í þjóðarbúskapnum getur verið ávísun á enn meiri vandræði í ríkisfjármálum síðar meir. Einnig er farið í nið- urskurð á almannaþjónustu og um leið talað í niðrandi tón um það sem kalla má almannaþjónustu og almannaeign. Fákeppni meðal fjölmiðla er eðlilegt áhyggjuefni stjórn- málamanna og ekki síður óeðlileg áhrif fámenns eigenda- hóps þeirra á opinbera umræðu í landinu. Þar ættum við að líta til reynslu þjóða víða um lönd, t.d. Ítalíu Berlusconis, en einnig hinnar gagnrýnislausu umræðu sem ríkti á Ís- landi fyrir hrunið 2008. Hinir íslensku stjórnarherrar kjósa hins vegar að ráðast gegn eina fjölmiðlinum sem er í sam- eign þjóðarinnar, sjálfu Ríkisútvarpinu. Við núverandi árferði er niðurskurður á samneyslunni rakalaus kredda sem sækir í smiðju hægrisinnaðra afla á Vesturlöndum sem mun leiða til vaxandi ójafnaðar og minni lífsgæða á komandi árum fyrir íbúa Evrópu og Bandaríkj- anna. Stjórnarflokkarnir virðast ætla að elta þessar kredd- ur uppi þrátt fyrir óteljandi dæmi þess hversu illa þær hafa leikið samfélög. Sú kreppa sem við Íslendingar höfum reynt á und- anförnum árum er einmitt afleiðing þessarar hugmynda- fræði, ekkert síður en hins, með hversu blindum og hroka- fullum hætti merkisberar hennar á Íslandi hrintu stefnumálum sínum í framkvæmd. Hvers vegna er hug- myndafræði sem einungis þjónar hinum fésterku orðið slíkt viðmið í samfélaginu að efnahagslegt hrun nær ekki að hrinda henni af stalli? Hér verðum við sem kennum okkur við vinstristefnu að líta í eigin barm. Höfum við vanrækt að spyrja stóru spurninganna? Þegar hægristefnan fer út í öfgar dugir ekki aðeins að andmæla á hugmyndafræðilegum grunni heldur þarf líka að spyrja siðferðilegra spurninga um réttlæti og ranglæti. Er það réttlátt að þeir sem hafa einkarétt á að nýta auðlindina í sjónum sem skilgreint er í lögum að sé eign þjóðarinnar greiði ekki af henni sann- gjarna rentu? Er það réttlátt að ákveðinn hluti almanna- þjónustunnar sé afhentur einkaaðilum sem geta tekið af honum arð án þess að bera neina ábyrgð þegar illa gengur? Réttlæti er lykilatriði ef við viljum tryggja stjórnfestu og sátt um stjórnskipulagið. Almenningur í landinu hefur kall- að eftir þessu réttlæti, t.d. þegar yfirgnæfandi meirihluti greiddi því atkvæði að ákvæði um að auðlindir landsmanna ættu að vera í sameign þjóðarinnar í atkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá haustið 2012. Það er skylda stjórnmál- anna að bregðast við slíkum kröfum. Og fyrir því eru ekki aðeins réttlætisrök, heldur líka hrein nytjarök þar sem ljóst má vera að aukinn jöfnuður – tryggður meðal annars með þrepaskiptu skattkerfi og almannaþjónustu sem er fjár- mögnuð úr sameiginlegum sjóðum en ekki með gjaldtöku af sjúklingum eða öðrum sem standa höllum fæti – eykur líka velsæld í samfélaginu. Fleiri spurningar um réttlæti og ranglæti vakna þegar síðustu fjárlög eru skoðuð; ekki síst sú ákvörðun núverandi stjórnarmeirihluta að skerða framlög til þróunarsamvinnu, þvert á nýsamþykkta ályktun Alþingis. Það er dæmi um ákvörðun sem er í grunninn ranglát – þegar þjóð sem skip- ar sér meðal 15 til 20 ríkustu þjóða heims ákveður að draga úr framlögum til að aðstoða þjóðir sem skipa neðstu sætin á sömu listum. Það er mikilvægt að pólitísk umræða glatist ekki í tal um vinnubrögð eingöngu. Komið hefur fram að almenningur hefur litla trú á vinnubrögðum á Alþingi. Við því þarf að bregðast og þar geta allir lagt sitt af mörkum. Auðvitað mætti margt segja um flausturkennd vinnubrögð núverandi meirihluta á Alþingi þar sem þingsetningu var frestað til að ríkisstjórnin hefði tíma til að vinna fjárlög sem tóku síðan stórfelldum breytingum á lokametrunum og reyndust að mörgu leyti óígrunduð. Sama má segja um vondar tillögur um sjúklingaskatta sem ríkisstjórnin féll svo frá á loka- metrunum vegna andstöðu samhentrar stjórnarandstöðu og mikils þrýstings frá almenningi. Og sama um fjáraukalög sem komu seint fram, risavaxnar breytingatillögur upp á 20 milljarða sem rötuðu inn í fjárlög örfáum dögum fyrir jól og snerust um skuldaleiðréttingar og skattheimtu og undarleg samtöl þingmanna og ráðherra í stjórnarmeirihlutanum í fjölmiðlum. Vissulega má bæta vinnubrögð en það breytir því ekki að stjórnmálin snúast alltaf fyrst og fremst um inntak. Um það hvernig við getum tryggt réttláta stjórn- skipan og tryggt að almenningur í landinu eigi þátt í henni. Þar á stefna Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs brýnt erindi. Til að tryggja réttlæti þarf réttláta nýtingu auðlinda, ekki aðeins fyrir þau okkur sem erum núna á jörðinni heldur líka komandi kynslóðir. Til að tryggja rétt- læti þarf að stuðla að jöfnuði í samfélagi þar sem auður hef- ur færst á fárra hendur og ósjálfbær efnahagsstefna hefur leitt Vesturlönd í djúpa kreppu. Til að tryggja réttlæti þarf að hafa félagsleg markmið og sjálfbærni að leiðarljósi við mótun efnahagsstefnu komandi ára. Þannig stuðlum við að bættum hag okkar allra. Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs Morgunblaðið/Ómar Réttlæti og stjórnmál Við núverandi árferði er niðurskurður á samneysl- unni rakalaus kredda sem sækir í smiðju hægri- sinnaðra afla á Vesturlöndum sem mun leiða til vaxandi ójafnaðar og minni lífsgæða á komandi árum fyrir íbúa Evrópu og Bandaríkjanna.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.