Morgunblaðið - 21.07.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.07.2014, Blaðsíða 4
Framara sem var lagður af stað í „rétt“ horn. Eyjamenn léku undan sterkum vindi í fyrri hálfleik og sann- ast sagna voru gestirnir úr Safamýr- inni stálheppnir að vera aðeins marki undir í hálfleik. Eyjamenn fengu fjöl- mörg færi til að bæta við marki en voru klaufar að gera það ekki, auk þess sem Hörður sá við þeim í nokkur skipti. Vörn Eyjamanna traust Framarar bættu við sóknarþung- ann undan vindinum í síðari hálfleik en það var eins og það vantaði síðustu sendinguna til að skapa verulega hættu við mark ÍBV. Gestirnir gerð- ust nokkrum sinnum ágengir við markið en helst voru það langskot sem sköpuðu einhverja hættu og Abel Dhaira var vandanum vaxinn í Eyja- markinu. Varnarleikur Eyjamanna var mjög traustur, með miðverðina Eið Aron Sigurbjörnsson og Brynjar Gauta Guðjónsson fremsta í flokki. Eða réttara sagt aftasta í flokki ef út í það er farið. Enda fór það svo að Eyjamenn héldu hreinu í fyrsta sinn í sumar. Bjarni Guðjónsson, þjálfari Fram, hitti naglann á höfuðið eftir leik þegar hann sagði að það hefði vantað kjark, þor og dug í sína leikmenn. Það var eins og leikmenn gestanna gætu gert mun betur. Auðvitað er mikill missir í Ögmundi Kristinssyni, markverði Framara, sem er farinn í atvinnu- mennsku. En hann sá ekki um að skora mörk og það var það sem Fram vantaði í gær enda var staðan 1:0 þegar komið var í uppbótartíma. Eins og áður sagði lönduðu Eyja- menn sínum þriðja sigri í röð eftir af- leita byrjun í deildinni þar sem liðið vann ekki leik fyrr en í 10. umferð. Í kjölfarið hafa komið tveir sigrar og er Eyjaliðið nú um miðja deild. En það sem kannski skiptir mestu máli, er að leikmenn virðast vera búnir að ná átt- um. Varnarleikur liðsins var góður í gær og svo eru þeir með markahæsta leikmann deildarinnar í fremstu víg- línu. Ef ÍBV heldur áfram á þessari braut, þá hafa Eyjamenn losað sig við falldrauginn. ÍBV að losa sig við falldrauginn?  Framarar komnir á botn deildarinnar eftir 2:0 tap í Eyjum  Þriðji sigur ÍBV í deildinni í röð  Jonathan Glenn er orðinn markahæsti leikmaðurinn í Pepsi-deildinni með 7 mörk Ljósmynd/Sigfús Gunnar Markahæstur Jonathan Glenn fagnar marki sínu fyrir ÍBV gegn Fram á Hásteinsvelli. Glenn er markahæsti leikmaður Pepsi-deildarinnar með 7 mörk. Á ÞÓRSVELLI Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Þrátt fyrir að ekki væri skorað í við- ureign Þórs og Keflavíkur á Akur- eyri í gær fengu áhorfendur töluvert fyrir peninginn. Þegar á heildina er litið má segja að jafntefli hafi verið sanngjörn úrslit en gestirnir voru þó nær sigri. Fengu víti í blálokin en Sandor Matus varði spyrnu Harðar Sveinssonar með tilþrifum. Bæði lið voru í sóknarhug, boðið var upp á óvenjumargar mark- tilraunir og hart var barist. Rauða spjaldið fór einu sinni á loft; því gula var í tvígang veifað framan í Inga Fannar, bakvörð Þórs, fyrir brot, sem hvorugt var þó gróft. Markvörð- ur gestanna, Jonas Sandqvist, slapp hins vegar með skrekkinn eftir rúm- ar 20 mín. þegar hann sló Jóhann Helga í vítateignum. Dómarinn gaf markverðinum gult spjald en Kefla- vík fékk aukaspyrnu þótt Jóhann virtist ekki snerta Jónas. Liðin áttu sitt hvort stangarskotið í leiknum, sitt hvort þrumuskotið yfir markið úr miðjum teig og Sandor í Þórs- markinu varði þrisvar vel áður en kom að vítinu. En besta færið – fyrir utan vítið – fékk Hörður Sveinsson í markteig Þórsara um miðjan seinni hálfleik en hitti ekki boltann. Mesta athygli vakti bandaríski framherjinn Chukwudi Chijindu hjá Þór, en hann er augljóslega að ná sér bærilega af meiðslum sem hafa plag- að hann lengst af sumri og bauð upp á glæsileg tilþrif af og til. Þórsurum veitir ekki af því að hafa hann til- tækan og í ham í botnbaráttunni. Skothríð en ekki skorað  Fjörugur leikur á Þórsvelli þótt ekki væri skorað  Vítabaninn Sandor Matus sá við Herði Sveinssyni  Gleðiefni fyrir Þórsara að Chuck er allur að koma til  Þór fór upp úr botnsætinu 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚLÍ 2014 Þórsvöllur, Pepsi-deild karla, 12. umferð, sunnudag 20. júlí 2014. Skilyrði: Gerast vart betri. Völl- urinn góður, hiti 17 stig og léttur norðaustan andvari. Sólarlaust. Skot: Þór 10 (7) – Keflavík 12 (7). Horn: Þór 8 – Keflavík 7. Þór: (4-5-1): Mark: Sándor Matus Vörn: Sveinn Elías Jónsson, Orri Freyr Hjaltalín, Atli Jens Alberts- son (Jóhann Þórhallsson 56.), Ingi Freyr Hilmarsson Miðja: Sigurður Marinó Kristjánsson (Kristinn Þór Björnsson 68.), Hlynur Atli Magn- ússon, Orri Sigurjónsson, Ármann Pétur Ævarsson, Jóhann Helgi Hannesson. Sókn: Chukwudi Chij- indu. Keflavík: (4-5-1): Mark: Jonas Sandqvist Vörn: Aron Grétar Ja- fetsson, Einar Orri Einarsson, Unn- ar Már Unnarsson, Magnús Þórir Matthíasson Miðja: Bojan Stefán Ljubicic (Sigurbergur Elíasson 82.), Sindri Snær Magnússon, Frans Elvarsson (Paul McShane 71.), Jóhann Birnir Guðmundsson (Magnús S. Þorsteinsson 61.), Elí- as Már Ómarsson. Sókn: Hörður Sveinsson. Dómari: Ívar Orri Kristjánsson – 5. Áhorfendur: 595. Þór – Keflavík 0:0 Hásteinsvöllur, Pepsi-deild karla, 12. umferð, sunnudag 20. júlí 2014. Skilyrði: Stífur vindur á annað mark- ið, skýjað en völlurinn mjög góður. Skot: ÍBV 19 (12) – Fram 11 (4). Horn: ÍBV 5 – Fram 6. ÍBV: (4-3-3) Mark: Abel Dhaira Vörn: Jökull I. Elísabetarson, Brynjar Gauti Guðjónsson, Eiður Aron Sigurbjörns- son, Matt Garner Miðja: Atli Fannar Jónsson, Gunnar Þorsteinsson, Ian Jeffs. Sókn: Dean Martin (Jón Inga- son 82.), Jonathan Glenn, Víðir Þor- varðarson (Arnar Bragi Bergsson 82.). Fram: (4-3-3) Mark: Hörður Fannar Björgvinsson Vörn: Orri Gunnarsson, Tryggvi Sveinn Bjarnason, Ingiberg Ólafur Jónsson, Ósvald Jarl Trausta- son. Miðja: Hafsteinn Briem (Aron Þórður Albertsson 41.), Jóhannes Karl Guðjónsson, Viktor Bjarki Arn- arsson. Sókn: Arnþór Ari Atlason, Al- exander Már Þorláksson (Ásgeir Marteinsson 58.), Haukur Baldvins- son (Aron Bjarnason 70.). Dómari: Þóroddur Hjaltalín - 7 Áhorfendur: 441. ÍBV – Fram 2:0 1:0 Víðir Þorvarðarson, 5. skaut aflöngu færi úr aukaspyrnu og í netið. Boltinn hafði viðkomu í varnar- manni Fram og breytti um stefnu. 2:0 Jonathan Glenn, 90. vann bolt-ann af Herði Björgvinssyni, markverði Fram, sem var kominn langt út úr vítateignum og skoraði í tómt mark- ið. I Gul spjöld:Brynjar (ÍBV), 12. (brot), Tryggvi (Fram), 65. (brot), Arnþór (Fram), 86. (brot), Jóhannes (Fram), 89. (brot). I Rauð spjöld: Engin. M Brynjar Gauti Guðjónsson (ÍBV) Matt Garner (ÍBV) Eiður Aron Sigurbjörnsson (ÍBV) Dean Martin (ÍBV) Gunnar Þorsteinsson (ÍBV) Atli Fannar Jónsson (ÍBV) Víðir Þorvarðarson (ÍBV) Jonathan Glenn (ÍBV) Jóhannes Karl Guðjónsson (Fram) Tryggvi Bjarnason (Fram) Haukur Baldvinsson (Fram) I Gul spjöld:Sandqvist (Keflavík) 22. (sló Jóhann Helga), Ingi Freyr (Þór) 30. (brot), Magnús Þórir (Keflavík) 44. (brot), Frans (Keflavík) 65. (brot), Hlynur Atli (Þór) 70. (brot), Orri Freyr (Þór) 87. (mótmæli) I Rauð spjöld: Ingi Freyr (Þór) 66. (brot). MM Sándor Matus (Þór). M Atli Jens Albertsson (Þór) Hlynur Atli Magnússon (Þór) Chukwudi Chijindu (Þór) Frans Elvarsson (Keflavík) Sindri S. Magnússon (Keflavík) Elías Már Ómarsson (Keflavík) Í EYJUM Júlíus G. Ingason sport@mbl.is Eyjamenn losuðu sig úr fallbarátt- unni í bili í það minnsta með þriðja sigri sínum í röð í efstu deild en ÍBV lagði Fram að velli í Eyjum í gær, 2:0. Sigur Eyjamanna var verðskuldaður en leikmenn heimaliðsins óðu í færum í fyrri hálfleik á meðan gestunum gekk illa að skapa sér færi. Með sigr- inum sendu Eyjamenn Framliðið nið- ur á botn deildarinnar en lítið hefur gengið hjá Safamýrarliðinu und- anfarið. Leikurinn var rétt nýhafinn þegar Víðir Þorvarðarson kom ÍBV yfir með þrumuskoti af um 25 metra færi. Hljómar vel en boltinn hafði viðkomu í varnarmanni Fram, breytti um stefnu og fór þannig framhjá Herði Björgvinssyni, hinum unga markverði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.