Morgunblaðið - 06.11.2014, Síða 95

Morgunblaðið - 06.11.2014, Síða 95
Það endaði með því að ég var í sveit hjá Boggu og Magnúsi í Vatnsnesi í Grímsnesi, frá sex og til 14 ára aldurs. Þar var allt unnið með hestum nema slátturinn. Ég upplifði því innreið 20. aldarinnar í landbúnaði á þessum góða og lær- dómsríka stað.“ Geir Óttar var í Ísaksskóla og Æfingadeild kennaraskólans, í gagnfræðadeild Hlíðarskóla, í VÍ og útskrifaðist þaðan 1973. „Í Ísaksskóla og Æfingadeildinni var maður í töluvert vernduðu um- hverfi þar sem fylgst var náið með námi og líðan hvers og eins. Það varð því svolítið menningarsjokk að koma í Hlíðarskóla. Þar var heimurinn svolítið harðari og hver og einn varð að passa upp á sig og sitt.“ Með náminu við Verslunarskól- ann starfaði Geir Óttar við raf- virkjun. Hann og Margrét, kona hans, giftu sig 1975 og þá um haustið hófu þau kennslu við Grunnskólann á Raufarhöfn. Leikmyndir og búningar fyrir leikrit, óperur og kvikmyndir Geir Óttar hóf starfsnám á teiknistofu og málarasal Þjóðleik- hússins í leikmyndahönnun og mál- un 1977, undir handleiðslu Sig- urjóns Jóhannssonar og Birgis Engilberts leikmyndahöfunda, og Jóns Svans listmálara. Þar var hann í fimm ár við nám og störf. Á þessum árum var hann jafnframt sviðs- og tæknimaður við Litla svið Þjóðleikhússins í þrjú ár. Geir Óttar hefur verið leik- mynda- og búningahöfundur frá 1982. Meðal kvikmynda sem hann vann að eru Á hjara veraldar, Hvítir mávar, Foxtrott, Magnús, Börn náttúrunnar, Ingaló og Skýjahöllin. Þá hefur hann hannað leiktjöld og búninga fyrir sjón- varpsleikrit, sjónvarpsþætti, fjölda leikrita á sviði og óperur, sem og hundruð sjónvarpsauglýsinga og hannað fjölda auglýsingabása. Í sumarleyfum leikhússins starfaði hann svo við Kleppsspít- alann og við Unglingaheimili rík- isins til 1985. Fjölskyldan var búsett í Banda- ríkjunum á árunum 1989-91. Þar stundaði Margrét framhaldsnám en Geir Óttar gætti bús og barna, ásamt því að stunda nám og skoða og teikna leikmyndir. Geir Óttar varð sviðsstjóri hjá Íslensku óperunni í ársbyrjun 1998 og starfaði þar til 2004. Starf- ið fólst í daglegum rekstri sviðs- ins, útboðum og framkvæmdum vegna leikmynda sem og sýning- arstjórn á mörgum leikritum og viðburðum leigutaka. Auk þess hannaði hann leikmyndir og sá um alla útleigu hússins. Haustið 2005 varð Geir Óttar sviðs-/verkefnastjóri Stóra sviðs Þjóðleikhússins í afleysingum og gegndi því starfi fram á haust 2007. Hann hefur síðan starfað á eigin vegum að ýmsum verk- efnum. Fjölskylda Eiginkona Geirs Óttars er Mar- grét Harðardóttir, f. 4.9. 1954, skólastjóri. Hún er dóttir Harðar Sveinssonar, f. 28.3. 1932, d. 16.10. 2006, forstjóra, og Elínar Krist- insdóttur, f. 9.3. 1934, versl- unarstjóra. Börn Geirs Óttars og Margrétar eru Hildur Elín Geirsdóttir, f. 12.4. 1979, flugfreyja, búsett á Sel- tjarnarnesi en maður hennar er Grétar Elías Finnsson og eru syn- ir þeirra Stefán Breki, f. 2007, og Finnur Kári, f . 2009; Gylfi Már Geirsson, f. 25.6. 1981, við- skiptastjóri, búsettur í Reykjavík, en sambýliskona hans er Tara Yo- ung. Bróðir Geis Óttars er Jón Ólaf- ur Geirsson, f. 25.11. 1950, búsett- ur á Seltjarnarnesi. Foreldrar Geir Óttars: Bryndís Jónsdóttir, f. 11.10. 1927, fyrrv. deildarstjóri, og Geir Ísleifur Geirsson, f. 20.5. 1922, d. 9.4. 1999, rafvirkjameistari. Úr frændgarði Geirs Óttars Geirssonar Geir Óttar Geirsson Halldóra Ólafía Jónsdóttir húsfr. á Seltjarnarnesi Þórður Jónsson sjóm. á Seltjarnarnesi Ingunn Elín Þórðardóttir húsfr. í Rvík Jón Ólafur Gunnlaugsson stjórnarráðsfulltr. Í Rvík Bryndís Jónsdóttir deildarstj. á Seltjarnarnesi Soffía Skúladóttir húsfr. frá Breiðabólstað í Fljótshlíð Gunnlaugur Jón Halldór Þorsteinsson hreppstj. á Kiðjabergi í Árnessýslu Guðrún Árnadóttir húsfr. frá Reynifelli á Rangárvöllum Tómas Böðvarsson b. á Reyðarvatni á Rangárvöllum Guðrún Tómasdóttir húsfr. í A-Landeyjum Eyjum og í Rvík Geir Ísleifur Ísleifsson b. á Kanastöðum í A-Landeyjum Geir Ísleifur Geirsson rafvirkjam. á Seltjarnarnesi Sigríður Árnadóttir húsfr. frá Langholti í Laugardælum Ísleifur Magnússon b. á Kanastöðum ÍSLENDINGAR 95 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2014 Karl Friðbert Jónsson læknirfæddist á Strýtu við Ham-arsfjörð 6.11. 1896. Hann var sonur Jóns Þórarinssonar, bónda og þjóðhagssmiðs á Strýtu, og Ólafar Finnsdóttur húsfreyju. Jón var sonur Þórarins Rich- ardssonar, bónda á Krossi og á Núpi á Berufjarðarströnd, og Lísi- betar Jónsdóttur húsfreyju. Þór- arinn var sonur Richards Long, ættföður Longættar. Ólöf var dóttir Finns Guðmundssonar, bónda og söðlasmiðs í Tunguhóli í Fáskrúðs- firði, og f.k.h., Önnu Margrétar Guðmundsdóttur húsfreyju. Meðal systkina Karls voru Rík- harður Jónsson myndskeri og Finn- ur Jónsson listmálari. Eiginkona Karls var Gudrun Margrethe Jónsson, f. Möller, og eignuðust þau tvo syni, Leif, sér- fræðing í skurð- og lýtalækningum, og Finn verkfræðing. Karl lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1919, embættisprófi í læknisfræði frá Há- skóla Íslands 1925 og öðlaðist sér- fræðileyfi í gigtarlækningum 1930. Karl var aðstoðarlæknir í Ólafs- vík 1922-23 og í Flateyrarhérði 1924, aðstoðarlæknir í Stykkishólmi 1925-26, í Rigshospitalet í Kaup- mannahöfn 1926, við Amtssyge- huset í Árósum og á Svendborgs Amt og Bys Sygehus 1927 og á Folkekuranstalten hjá Hald á Jót- landi 1927-30. Karl var starfandi læknir og sér- fræðingur í gigt- og endurhæfing- arlækningum í Reykjavík frá 1930 og til æviloka. Hann var jafnframt yfirlæknir og gigtarsérfræðingur við Heilsuhæli Náttúrulækninga- félags Íslands í Hveragerði á ár- unum 1957-66. Karl var einn af frumkvöðlum golfíþróttarinnar hér á landi. Hann var einn af stofnendum Golfklúbbs Íslands, 1934, sem síðar tók upp nafnið Golfklúbbur Reykjavíkur. Karl keppti í golfi um árabil og vann til ýmissa verðlauna. Þá var hann heiðursfélagi í Félagi orku- og endurhæfingalækna. Karl lést 1.1. 1980. Merkir Íslendingar Karl F. Jónsson 90 ára Baldur Böðvarsson 85 ára Dagrún Erla Ólafsdóttir Kristín Haraldsdóttir Marta Kristjánsdóttir Sveinn Brynjólfsson 80 ára Lilja Gísladóttir Sigurbjörn Bernódusson Skúli Matthíasson 75 ára Ársæll Lárusson Ásgerður Óskars Lauritsen Hannes Stephensen Friðriksson Lára Haraldsdóttir Páll Bjarnason Valgerður Valsdóttir Viktoría Karlsdóttir Vilborg Hjartardóttir 70 ára Aðalbjörg R. Pálsdóttir Dóra Bergs Sigmundsdóttir Elínborg Sigurbjörnsdóttir Elín Þormóðsdóttir Guðbjörg Andrésdóttir Hörður Jónsson Jón A. Bjarnason María Steinmarsdóttir Pétur Maack Pétursson Ragnheiður Helga Óladóttir Stefán Kristinn Ólafsson Þórður Kristjánsson 60 ára Bjarni Guðmundsson Ingvar Sigurjón Garðarsson Ólöf Þóra Steinólfsdóttir Páll Rúnar Ingólfsson Ragnar Berg Gíslason Róbert Viðar Pétursson Sigrún Svava Stefánsdóttir Sævar Sigurhansson Valgarður J.L. Jökulsson 50 ára Elías Birgir Andrésson Elísabet Halldórsdóttir Gísli Kristinn Skúlason Heiðrún Davíðsdóttir Kjartan Friðrik Adólfsson Nili Ben-Ezra Rúnar Jens Halldórsson Steinar Ingi Vilhjálmsson Þorvarður Árni Þorvarðarson 40 ára Bjarni Þór Finnbjarnarson Guðbjörg Kristín Georgsdóttir Margrét Rós Andrésdóttir Sigurður Kaiser Guðmundsson Thelma Breiðfjörð Ragnarsdóttir Vignir Örn Stefánsson 30 ára Elva Sif Ingólfsdóttir Hicham Saber Kamil Zygmunt Barwiak Linda Rós Jóhannesdóttir Svanhvít Harðardóttir Til hamingju með daginn 30 ára Sigurður ólst upp á Ísafirði, býr í Reykjavík, lauk sveinsprófi í mál- araiðn og er sölumaður hjá Málingu ehf. Unnusta: Rúna Sirrý Guðmundsdóttir, f. 1985, stunðningsfulltrúi við Klettaskóla. Börn: Viktor Örn, f. 2008, og Bylgja Stefanía, f. 2011 (stjúpdóttir). Foreldrar: Pétur S. Sig- urðsson, f. 1958, og Krist- ín Böðvarsdóttir, f. 1958. Sigurður Pétursson 30 ára Hrannar ólst upp á Húsavík, lauk vélstjórn- arprófi frá Vélskóla Ís- lands og er vélfræðingur hjá Landsvikjun við Lax- árvirkjun. Maki: Eygló Sófusdóttir, f. 1988, nemi við HÍ. Dóttir: Emma Katrín, f. 2013. Foreldrar: Gylfi Sigurðs- son, f. 1962, sjómaður á Húsavík, og Aðalbjörg Ív- arsdóttir, f. 1961, versl- unarstjóri á Húsavík. Hrannar Gylfason 30 ára Ósk ólst upp á Ak- ureyri, býr í Reykjavík og er naglafræðingur. Maki: Guðmann Valdi- marsson, f. 1980, nemi í rafmagnstæknifræði. Börn: Stefana, f. 2008, og Valdimar, f. 2010. Foreldrar: Jóhannes Páll Héðinsson, f. 1956, um- sjónarmaður hjá Akureyr- arbæ, og Svandís Ebba Stefánsdóttir, f. 1958, símakona við Sjúkrahúsið á Akureyri. Ósk Jóhannesdóttir HJÓLA-OGSPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · SÍMI 5200200 ·GAP.IS ReebokFitnessog BiggestLoser Ísland veljaStarTrac tækin fráokkur! MYND FRÁ STAR FSMANNAAÐST ÖÐU ADVANIA VILTUKOMAUPPAÐSTÖÐUÁÞÍNUMVINNUSTAÐ? Í nýlegri rannsókná200starfsmönnumhjá 3 stórfyrirtækjum íBandaríkjunum, kom í ljós aðþeir skiluðu allt að 15%meira vinnuframlagiognýttu tímannbetur á þeimdögumsemheilsurækt var stunduð. HAFÐUSAMBANDOGVIÐFINNUMBESTU LAUSNINAFYRIRÞIG.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.