Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Blaðsíða 10
Fimmtudagurinn 17. nóvember 1994 Hjónin Wolfgang Zeller frá Þýskalandi og Nazanin Naimi frá Jórdaníu: Umburðarlyndi skiptir höfuðmáli S - í samskiptum Islendinga og nýbúa. Fjölskyldan að Kirkjuvegi 72: Wolfgang og Nazanin með frumburðinn Cyrus á milli sín, Nazanin Naimi og Wolfgang Zeller búa við Kirkjuveg. Hún kemur frá Jórdaníu cn cr af írönskum ættum en hann er Þjóðverji þrátt fyrir að útlit hans sé nokkuð austurlenskt. Nazanin kom fyrst til landsins árið 1988, fór út að nýju en kom aftur til landsins 1991 og flutti til Vest- mannaeyja. Wolfgang kom til Eyja 1985 sem ferðamaður en var boðin kcnnarastaða við Framhaldsskól- ann sem hann þáði og hefur verið hér allar götur síðan. Leiðir þeirra lágu saman í Bahá’ii söfnuðinum. Þau giftu sig í hitteðfyrra og í sumar eignuðust þau sitt fyrsta barn, dreng sem hefur hlotið nafnið Cyrus. Heimili þeirra er skemmtileg blanda af evrópskri og austurlenskri menningu sem sam- cinast í syni þeirra. Bæði tala þau ágætis íslcnsku en þeirra sam- skiptamál á heimilinu er enska. Wolfgang hefur orðið í byrjun og segist líða mjög vel í Eyjum. Það hafi reyndar komið fyrir að hann hafi verið einmana eða fundið fyrir inni- lokunarkennd á þessari litlu eyju. En þá sé nú lítið mál að skreppa til Reykjavíkur eða jafnvel til útlanda. Einnig séu ættingjar duglegir við að heimsækja þau til landsins. Nazanin segir að það hafi verið undarleg tilfinning þegar hún fór að ganga um Heimaey fyrstu vikumar vegna þess hve fólki varð starsýnt á Wolfgang á Styrktartónleikum Lúðrasveitarinnar sl. laugardag. Hann spilar á flautu. hana. Þetta hafi ekki verið óþægileg tilfinning en Vestmannaeyingar hafi bara horft en verið feimnir að tala við sig. Þess vegna hafi hún verið nokkuð einangruð til aö byrja með, sérstak- lcga vegna tungumálsins en hún segir að enskan hafi orðið sinn bjargvættur. Nazanin segist aldrei hafa orðið vör viö kynþáttafordóma og trúir því ekki að þeir séu til hér í Eyjum. Wolfgang tekur undir það en segir það ansi skondið að fólk hafi fyrirfram á- kveðna skoðun á Þjóóverjum og búist við ýmsu af honum sem Þjóðverja. Hann tekur sem dæmi að fólk haldi að hann sé mjög nákvæmur og stund- vís en sjálfur segist hann ekki vera mjög nákvæmur, án þess að vera kærulaus. Þrír menningarheimar í einni fjölskyldu Þegar Nazanin fær spuminguna hvað kona úr Arabalandi, þar sem jafnrétti erekki komið eins langt og á Vesturlöndum, hafi verið að gera á Islandi, hlær hún enda hefur hún ansi oft verió spurð að þessu. Hún segist hafa komið hingað til að heimsækja Baháíi söfnuðinn eftir að hafa farió fyrst til nokkurra Vestur-Evrópu- landa. A Islandi gat hún fengió vinnu og verið sjálfstæð kona og getað lifað sínu lífi án þess að þurfa á peninga- lcgum stuðningi foreldra sinna að halda. Wolfgang segir að ekki sé hægt aö loka augum fyrir því að alls staðar séu einhverjir fordómar hjá hluta fólks og tekur hann eigið föðurland sem dæmi. Hins vegar beri lítið sem ekkert á því hér og það sé af hinu góða. Samband Nazanin og Wolfgang hefur vakið athygli fyrir það hversu ólík þau eru og segja þau að margt fólk hafi orðið hissa þegar þau voru að slá sér upp. Wolfgang segir að ættingjum og vinum í Þýskalandi hafi þótt það afar merkilegt að þau tvö, sem koma úr mjög ólíkum heimum, hafi hist á þessari pínulitlu eyju í Noróur-Atlantshafi og fallist i faðma. Samband þeirra sé auðvitað öðmvísi en önnur að því leyti að í flestum til- fellum er annar aðili hjónabandsins nýbúi en í þeirra tilfelli séu þau bæði útlendingar. Nazanin finnst að Vest- mannaeyingar hafi verið mjög glaðir að sjá svona öðruvísi samband á þessari litlu eyju. I þessari litlu fjölskyldu mætast þrír ólíkir menningarheimar, hinn austræni, evrópski og íslenski, og ber heimili þeirra töluverðan keim af því. Það er skemmtileg blanda af þessu öllu saman og þau taka undir það. Fimm tungumál á heimilinu Nazanin og Wolfgang varð sonar auðið í sumar og segja þau spennandi að sjá hvemig honum gengur að að- lagast þessum óvenjulegum heimilisaðstæðum og íslensku þjóð- félagi. Líklega verði hann meiri íslendingur en þau en hann mun alast upp á heimili þar sem ægir saman fimm tungumálum. Nazanin talar tvö tungumál reipbrennandi frá sínu heimalandi, arabísku og persnesku, móðurmál Wolfgangs er þýska, hjónin tjá sig á ensku sín í milli og svo er það íslenskan. „Við verðum aldrei Islendingar og enginn sem gætur ætlast til þess af okkur,“ segir Wolfgang. Nazanin segir mjög auð- velt fyrir útlendinga að einangrast og það sé' beinlínis hættulegt fyrir þá. Það sé ósköp eðlileg tilhneiging að útlendingar dragi sig saman vegna aðstöðu sinnar. Wolfgang bendir á að síðan vaxi ný kynslóð úr grasi, afkomendur nýbúa, sem séu Is- lendingar en með annan uppruna. Þau segjast vera sest að í bili í Vestmannaeyjum en séu opin fyrir öllum möguleikum og öðrum tæki- færum. Þau hugsa stundum út í eldgosið fyrir rúmum tveimur ára- tugum en stendur engin ógn af því. Þau eru sátt við lífið og tilveruna og líður vel. Wolfgang bendir á að það sem skipti mestu máli í samskiptum íslendinga og nýbúa sé umburðar- lyndi. „Við sem komum hingað verðum að sætta okkur við nýtt um- herfi og þeir sem fyrir eru verða að sætta sig við nýja þjóðfélagsþegna." Jólaföndur Jólaföndrið í ár hjá Starfsmannafélagi Vestmanna- eyjabæjar verður í höndum Bergþóru Þórhallsdóttur handavinnukennara. Bergþóra var með mjög skemmtilegt jólaföndur hjá okkur í fyrra og er með fullt af nýjungum í ár. Föndrið verður á eftirfarandi tímum: Fimmtudagur24. nóv. kl. 20:00-23:00 Laugardagur26. nóv. kl. 10:00-17:00 Sunnudagur27. nóv. kl. 10:00-17:00 Fimmtudagur 1. des. kl. 20:00-23:00. Föndrið verður með svipuóu sniói og undanfarin ár, þ.e. opin vinnuhelgi og kvöld fyrir alla félagsmenn, maka og börn þeirra. Námskeiðsgjald er ekkert, en fólk kaupir efni og áhöld eftir þörfum. Sýnishorn veróa á skrifstofu félagsins vikunni áóur. Vinsamlegast skráió ykkur á skrifstofu félagsins í síma 11095 eða á símsvarann fyrir 24. nóvember nk. Stjórnin STARFSMAN N AFÉLAG VESTMAN N AEYJ ABÆJ AR Félagsmenn / 4-ý í Sjómanna-tefc^ félaginu Jötni Atkvæðagreiðsla stendur yfir um breytingar á kjarasamningi sem undirritaður var 22. sept. sl. á milli Sjómannasambands íslands annars vegar og Landssambands íslenskra útvegsmanna hins vegar. Atkvæðagreiðslan fer fram á skrifstofu Sjómanna- félagsins Jötuns alla virka daga frá kl. 13:00 til 16:00 og stendur til og með 30. nóv. 1994. Eftirfarandi breytingar voru gerðar á samn- ingnum: a) Breytingar á kaupliðum. b) Um skiptaverð þegar siglt er með aflann. c) Breytingar á hafnarfríum á togurum. d) Rækjuveiðar þegar afli er unninn um borð. e) Um hafnarfrí o.fl. á skipum sem stunda úthafsveióar og landa erlendis. f) Samningur fyrir togara sem salta aflann um boró. g) Samningur fyrir línuveiðar með beitningavél og netaveiðar þegar aflinn er saltaður, frystur eða hluti ísaður um borð. h) Samningur fyrir tveggja skipa botnfisksveiðar, þ.e. eitt frystiskip og eitt dráttarskip sem veiða með einu trolli. i) Samningur um humarveiðar þegar aflinn erfryst- ur um borð. j) Samningur um frystingu á loðnu um borð í frysti- skipi þegar aflinn er keyptur af ööru skipi. k) Um gildistíma samningsins og uppsagnarfrest.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.