Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.2002, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 12. desember 2002 Fréttir 13 Júlíana Bjarnveig Bjarnadóttir skrifar: Hvað eruð þið að hugsa? Mig langar að vita hver er stefna bæjar- stjórnar? Að brjóta fyrirtæki } niður, fjölga atvinnu- iausum og jafnvel fækka íbúum? En ég get alveg séð það fyrir mér gerast ef Hressó lokar. Þið hljótið að vita að það vinnur fólk í Hressó, og ekki er úr miklu að moða í atvinnulífinu. Mér flnnst bara ótrúiegt hvað það reynist mörgum úr bæjar- stjórn erfitt að sjá réttlætið í þessu máli. Það er ólöglegt að bærinn sé í samkeppni við einkaaðila, það var úrskurðað fyrir sjö árum. Eg hefði haldið að þegar úrskurður fellur ætti að fara eftir honum, eða er í lagi að stela ef maður kemst upp með það? Það væri gaman að vita hversu margar milljónir hafa farið í tækjasal Iþrótta- miðstöðvarinnar (eða eru möppurnar týndar?) Var brýnast að fara í þessa uppbyggingu um leið og ný líkamsræktarstöð var að reyna að koma undir sig fótunum í bæjarfélaginu? Mér er gjörsamlega ofboðið í þessu máli, þið teygið lopann eins lengi og hægt er. Lofið og svíkið um leið og getið ekki einu sinni verið nógu miklir menn til að viðurkenna mistökin. Sjáið nú sóma ykkar í því að semja við eigendur Hressó og biðja um leið afsökunar. Eg hvet alla bæjarbúa til þess að setja sig í spor eigenda Hressó og hugsa lengra en að sér og sínum, þá er þetta svo augljóst, algerlega óviðunandi! Ps: A kannski að setja meiri peninga í Þróunarfélagið svo að hægt sé að kaupa fyrirtæki úr Reykjavík til atvinnusköpunar? Júlíana Bjarnveig Bjarnadóttir Mér finnst bara ótrúlegt hvað það reynist mörgum úr bæjarstjóm erfítt að sjá réttlætið í þessu máli. Það er ólöglegt að bærinn sé í samkeppni við einkaaðila, það var úrskurðað fyrir sjö árum. Ég hefði haldið að þegar úrskurður fellur ætti að fara eftir honum, eða er í lagi að stela ef maður kemst upp með það? F Hreinn Óskarsson, skógarvörður skrifar: Islensk jólatré, allra hagur Það skiptir máli hvemig tré fólk velur um jólin. íslensk jólatré em umhverfisvænni en innflutt lifandi tré eða gervitré. Við ræktun íslenskra jólatrjáa er ekkert notað af mengandi efnum. Við ræktun víða erlendis er notað mikið af illgresis- og skordýraeitri sem ekki þarf hér. Við þetta bætist að eldsneytisnotkun er meiri þegar trén em flutt inn frá útlöndum. Til dæmis má nefna að gervijólatré eru flest flutt yfir hálfan hnöttinn frá Asíu hingað til lands. Lifandi tré em því umhverfisvænni en gervitré og lifandi tré má endurvinna. Með því að velja íslenskt jólatré í ár styður þú við skógrækt á Islandi og eykur lrkumar á því að Islendingar geti orðið sjálfum sér nógir um jólatré. Hér á eftir verður sagt frá íslensk- um jólatrjám, hvaðan þau koma, hvemig þau eru ræktuð og eiginleika þeirra sem jóla- trjáa. Eins og margir vita eru aðeins 20% þeirra jólatijáa sem seld em hér á landi fyrir jólin íslensk. Af því leiðir að 80% trjánna eru flutt til landsins frá útlöndum. Astæða innflutningsins er sú að ekki er ræktað nægjanlegt magn trjáa hér á landi. Flest sunnlensk jólatré em ræktuð í Haukadal og Þjórsárdal, auk nokkurra annarra minni svæða s.s. á Snæfoksstöðum í Grímnesi. Fyrr á árum var jólatrjáaræktun stunduð í kjarrlendi en á síðustu ámm er nær eingöngu gróðursett í mólendi. Trén eru sett niður sem litlar bakka- plöntur og er áburður borinn á þau a.m.k. einu sinni eftir gróðursetningu. Trén vaxa svo upp á 10 til 25 ámm allt eftir tegund og landsvæði. Snyrta þarf trén síðustu árin fyrir högg, t.d. með því að klippa tvítoppa. Sumarið fyrir högg fá trén oft á tíðum áburðar- skammt. Eykur þetta á barrheldni og gerir þau grænni á litinn. Trén em svo höggvin frá miðjum nóvember og fram í desember. Til stendur þó að auka framleiðslu jólatrjáa og standa vonir til að eftir 20- 30 ár verði helmingur íslenskra trjáa úr íslenskum skógum. Liður í að auka sölu íslenskra trjáa er að kynna nýjar tegundir sem nýst gætu sem jólatré. Fram til 12. desember stendur yfir kynning á stafafum sem íslensku jólatré í Smáralind í Kópavogi. Hluti af kynningunni er jólagetraun sem fer fram við hlið fallegrar stafafuru í stærri kantinum. Þrír þátttakendur, sem svara spumingunum rétt, eiga möguleika á að fá heimsenda stafafum sem jólatré íyrir jólin. Þeir sem ekki komast í Smáralind- ina eiga kost á að fara á vefsíðu Skógræktarinnar www.skogur.is og svara spumingum þar og senda svör til okkar. Nokkrar skreyttar stafafurur ættaðar frá Snæfoksstöðum í Gríms- nesi, en Skógræktarfélag Árnesinga gaf þær til þessarar kynningar, prýða Smáralind nú fyrir jólin. Skógrækt ríkisins ásamt Skógræktarfélagi ís- Iands standa fyrir kynningunni í ágætri samvinnu við Smáralind. Ástæða þess að stafafura er sérstak- lega kynnt í Smáralind er sú að þessi tegund heldur barrinu einna lengst íslenskra jólatrjáa. Ef stafafura er vökvuð reglulega fer hún að teygja úr vaxtarsprotum, ilma og heldur að sjálfsögðu nálunum betur en aðrar tegundir. Einn af kostunum við stafa- fum er að hún getur vaxið á rýmm móum upp í hentuga jólatrjáastærð á 10 til 15 ámm án áburðargjafar. Ókosturinn, sem líklega hefur komið í veg fyrir að fólk hefur viljað stafafum, er hversu grófgerð hún er. Minnir hún þannig að einhveiju leyti á heimagerð jólatré sem notuð vom hér á landi fyrir miðja öldina. Reglan er sú að það fólk sem einu sinni hefur reynt stafafuru og sætt sig við grófleikann vill ekki aðrar tegundir. Auk stafafum em rauðgreni, blá- greni, sitkagreni og fjallaþinur nýtt sem jólatré. Rauðgreni er hið hefð- bundna jólatré, þétt og ilmandi, en hefur þann ókost að tapa nálunum, sér í lagi ef það er ekki vökvað. Blágrenið og sitkagrenið hafa á síðustu árum í auknum mæli verið nýtt sem jólatré hér á landi. Þau halda nálum betur en rauðgrenið. Blágrenið er mjög fallegt, oft bláleitt eins og nafnið gefur til kynna og ilmar ágætlega. Sitkagrenið er grófgerðara og nálar mjög hvassar. Flest torgtré sunnanlands í stærri kantinum eru sitkagreni. Fjallaþin- urinn er sjaldgæfasta jólatréð og það dýrasta. Hann lflcist nokkuð inn- fluttum þin og heldur barrinu a.m.k. jafnlengi ef ekki lengur en sá innflutti. Það er ekki sama hvemig tré em meðhöndluð sem jólatré, enda em þau lifandi vemr. Nýhöggvið íslenskt tré þarf að standa á köldum stað t.d. utandyra eða í kaldri geymslu þangað til það er tekið inn í stofu. Ekki skemmir fyrir að láta tréð standa í vatnsbaði í geymslunni. Sumt fólk segir best að tréð standi upp á endann meðan það er geymt í kulda. Þegar tréð er skreytt í stofunni er þjóðráð að saga 5 til 10 sm sneið neðan af stofninum og stinga því í góðan vatnsfót eða fötu með sandi í. Mælt hefur verið með að stofninum sé stungið í sjóðandi vatn til að opna viðaræðarnar og auðvelda vatnsupp- töku. Mikla margir þetta fyrir sér t.d. ef eldhúspláss er takmarkað. Jafngott ráð er að setja sjóðheitt vatn í fótinn í íyrsta sinn sem vatn er sett á tréð. Þess verður að gæta að aldrei þomi í fæt- inum meðan tréð stendur í stofunni. Ef þessum reglum er fylgt em mun meiri líkur á að tréð standi ferskt og ilmandi yfir hátíðimar. Það skiptir máli hvernig tré fólk velur um jólin. Islensk jólatré em um- hverfisvænni en innflutt lifandi tré eða gervitré. Við ræktun íslenskra jólatijáa er ekkert notað af mengandi efnunt. Við ræktun víða erlendis er notað mikið af illgresis- og skordýraeitri sem ekki þarf hér. Við þetta bætist að eldsneytisnotkun er meiri þegar trén eru flutt inn frá útlöndum. Til dæmis má nefna að gervijólatré em flest flutt yfir hálfan hnöttinn frá Asíu hingað til lands. Lifandi tré em því umhverfisvænni en gervitré og lifandi tré má endurvinna. Með því að velja íslenskt jólatré í ár styður þú við skógrækt á íslandi og eykur líkumar á því að Islendingar geti orðið sjálfum sér nógir um jólatré í framtíðinni. Fyrir þessi jól verður hægt að kaupa íslensk jólatré hjá a.m.k. tveim aðilum í Eyjum: Eyjablómum og Blóma- stofunni Bám. Um leið og undirritaður óskar Vestmannaeyingum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, em les- endur hvattir til að skoða íslensk jólatré með opnum huga íyrir þessi jól og prófa leiðbeiningamar um meðferð tijánna sem skrifaðar vom hér að ofan. Hreinn Óskarsson, skógarvörður á Suðurlandi. Stefán Örn Jónsson og Guðmunda Á. Bjarnadóttir skrifa: Býður upp á líkamsrækt fyrir alla Það vill svo til að 10. desember er væntanlegur maður frá hlutlausri endurskoðendaskrifstofu til að taka út rekstur þreksalarins í íþróttamiðstöðinni. Komist hann að þeirri niðurstöðu að rekstur salarins sé í fullu samræmi við samkeppnislög, finnst okkur illa að okkur vegið sem höfum stundað salinn í Iþróttamiðstöðinni þ.e.a.s verði krafin um mun hærri greiðslur en víða annars staðar á landinu, eins og fram kemur hér á undan. Undanfamar vikur hafa verið töluverðar um- ræður um Iík- amsræktarsal Iþróttamiðstöðv- arinnar. Við er- um meðal ann- arra sem stunda þennan sal og höfum gert það sl. 15 ár. Við teljum ómaklega vegið aðþessari starfsemi sem fer fram í Iþrótta- miðstöðinni. Salurinn var tekinn vel í gegn í upp- hafi þessa árs, málaður, skipt um loftræstingu, sett nýtt á gólf og hluti tækja endumýjaður. Við teljum að salurinn hafi verið tekinn áður í gegn um 1980. Þama líða um það bil 22 ár. Það hafa verið keypt tæki að raun- kostnaði fyrir u.mþ.b. 7 milljónir frá 1980. Við sem veljum að sækja líkams- ræktarsalinn, viljum geta farið á þeim tíma sem okkur hentar, (breytilegur vinnutími) sækjum í pottana, sund og sauna eftir líkamsrækt. Ef bæjaryfirvöld hafa brotið sam- keppnislög, eins og rekstraraðilar Hressó tala um, þá hefur heldur betur verið tekið á því máli, því verð í líkamsrækt hefur hækkað um 40%. Það má skilja það í skrifum rekstr- araðila Hressó í síðustu Fréttum að Iþróttamiðstöðin verði að fylgja hækk- unum sem verða á Hressó. Þetta stenst varla samkeppnislög. Samanborið við aðra staði á landinu þar sem bæjarfélag rekur líkams- ræktarsal tengdan sundlaug þá kostar í stakan líkamræktartíma á Egilstöðum 300 kr. og þriggja mánaðakort 7000 kr. og árskort 21.000 kr. í Borgamesi kostar stakur tími í líkamsrækt 380 kr., mánaðarkort 3300 kr. og árskort 25.000 kr. í Eyjum kostar stakur tími í lflcamsrækt 550 kr og þriggja mánaða kort kostar 12.000 kr. Okkur sem þetta skrifum finnst þessi munur töluverður og okkur skilst að hann hangi við verð á Hresjó. Eru þetta kjarabætur fyrir Eyjabúa? Það vill svo til að 10. desember er væntanlegur maður frá hlutlausri endurskoðendaskrifstofu til að taka út rekstur þreksalarins í Iþróttamiðstöð- inni. Komist hann að þeirri niður- stöðu að rekstur salarins sé í fullu samræmi við samkeppnislög, finnst okkur illa að okkur vegið sem höfum stundað salinn í Iþróttamiðstöðinni þ.e.a.s. að verða krafin um ntun hærri greiðslur en víða annars staðar á landinu, eins og fram kemur hér á undan. Ef bæjarvöld geta sýnt fram á að þær tekjur sem koma inn standi undir kostnaði við rekstur salarins þá er ekki hægt að sjá að brotið sé á öðrum aðilum í sambærilegum rekstri. Til að efla flóru Eyjanna þá teljum við að það að geta valið hvar við stundum lflcamsrækt sé meðal gæða þess að búa hér. Þú átt að geta valið hvort þú vilt sækja í tiltekinn félags- skap og ákveðna þjálfun á Hressó eða hvort þú vilt vera í íþróttahúsi að stunda þína rækt. Okkur skilst að einn bæjarfulltrúi hafi notað þetta sem kosninga- loforð, að loka eða leggja salinn undir rekstr- araðila Hressó, þá finnst okkur að sá bæjar- fulltrúi þurfi að endurskoða sín mál rækilega vegna þess að hagsmunir margra skarast þar, t.d íþróttafólkið okkar, landsliðsfólkið, öryrkjar og eldri borgarar hafa haft mjög greiðan aðgang að líkamsræktarsal íþrótta- hússins til að byggja sig upp. Við skulum ekki gleyma árangri okkar fólks en íþróttafólk sækir mikið salinn og er það styrkur frá bæjarbúum til íþróttamála hér í bæ. Við hin, sem borgum inn og teljum okkar hagsmuni í því að geta valið, erum mjög ósátt við þessi loforð bæjarfulltrúans. Ef það eru hagsmunir bæjarfé- lagsins að leigja út líkamsræktarsalinn hlýtur það að gerast í opnu útboði svo að allir hafi sama rétt á að bjóða í salinn einnig eru það hagsmunir bæjarfélagsins að fá sem hagstæðasta tilboðið. Heilbrigð sál í hraustum líkama. Stefán ÖmJónsson Guðmunda A. Bjamadóttir.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.