Fréttablaðið - 16.11.2013, Page 82

Fréttablaðið - 16.11.2013, Page 82
16. nóvember 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 50 FLÆKJUSAGA Illugi Jökulsson rifjar hér upp dramatíska ævi ungversks fræðimanns af Gyðinga- ættum, sem dýpkaði mjög skiln- ing okkar á Jesú frá Nasaret. Það var í Palestínu á dögum Róm-verja. Hann gekk greinilega á guðs vegum, þessi maður, rétt-látur, guðhræddur og mildur. Það safnaðist um hann fólk til að heyra hann tala um guð, og sjá, hann gerði kraftaverk í nafni guðs, og hann rak út illa anda sem sest höfðu að í saklausu fólki. Loks komst hann upp á kant við yfirvöldin, þegar hann vildi ekki nota kraftaverk sín í þágu þeirra, heldur aðeins guðs. Þá var hann drepinn. En viti menn, dauðinn gat ekki sigr- að hann. Hann hvarf vissulega um stund í dá dauðans, en svo reis hann upp aftur. Fólk vildi ekki trúa á upprisu hans, þá tók guð hann til sín og hann er á himnum. Kraftaverkamenn í Palestínu Hver var þessi góði maður? Hlýtur þetta ekki að vera Jesú sjálfur? Ónei, þetta var Honi hringateiknari. Og hann var uppi einum 60 árum áður en Jesú svo mikið sem fæddist. Viðurnefni sitt fékk hann af því að hann var eitt sinn fenginn til að biðja guð um regn, þegar brakandi þerrir hafði alltof lengi verið í Palestínu, og þá teiknaði hann hring í rykið á jörðinni, kom sér fyrir innan hringsins og kallaði síðan til guðs að hann myndi ekki hreyfa sig úr hringnum fyrr en færi að rigna. Þá fór að úða svolítið, en Honi fyrtist við og hrópaði höstugur til guðs að HRINGIR Í SANDI OG GÉZA VERMES svona spræna væri engum til gagns. Þá lét guð koma steypiregn, en Honi rótaði sér hvergi úr hringnum og útskýrði nú þolin- móður fyrir guði að hann myndi ekki hætta fyrr en kæmi venjuleg rigning, góð fyrir gróðurinn. Og guð lét undan Honi og það fór að rigna eðlilega. Honi var ekki einn á ferð. Þeir voru margir kraftaverkamennirnir í Palestínu um þær mundir. Einn þeirra, sem líka gerði kraftaverk og rak út illa anda, hann átti í svo augljósu og nánu sambandi við guð, að guð ávarpaði hann af himnum og kallaði hann son sinn. Var það þá Jesú? Nei, það var Hanina ben Dosa. Hann var uppi nokkru á eftir Jesú frá Nasaret og var svo bænheitur að þegar eðla beit hann einu sinni meðan hann lá á bæn, þá sakaði hann ekki og tók ekki einu sinni eftir bitinu, en eðlan drapst. Ótrúleg ævi Já, þeir voru fleiri slíkir kraftaverkamenn og prédikarar í Palestínu á dögum Jesú. Hasídim voru þeir kallaðir, og sá grunur kviknar náttúrlega hvort Jesú frá Nasaret hafi kannski upphaflega verið slíkur hasíd – vinalegur farandprédikari, kraftaverka- maður og læknir – frekar en að hann hafi endilega verið alveg eindreginn sendiboði guðs almáttugs. Því er ég að rifja þetta upp að rétt í þessu uppgötvaði ég að nú er dáinn sá maður, sem frekar en flestir aðrir fræðimenn bentu á hve hinar upprunalegu sögur um Jesú frá Nasaret virðast skyldar sögunum um kraftaverka- menn eins og Honi og Hanina. Þessi maður var einn af merkustu og altént skemmtileg- ustu fræðimönnum sem undanfarna áratugi hafa verið að rannsaka hinn „sögulega Jesú“ sem kallaður hefur verið. Það er að segja hver Jesú frá Nasaret hafi verið í sögulegu samhengi, hvað fyrir honum kunni að hafa vakað og hvað hafi í rauninni gerst á ævi hans, alveg burtséð frá allri þeirri guðfræði sem smíðuð hefur verið í kringum hann síðustu 2.000 árin og rúmlega það. Þessi fræðimaður var ungverskrar ættar og hét Géza Vermes, hann dó þann 8. maí í vor og einmitt um það leyti var ég að festa kaup á rafrænni útgáfu af síðustu bókinni hans, sem kom út í fyrra. Og burtséð frá áhugaverðu efni þeirrar bókar, sem fjallaði um upphaf kristindómsins allt frá Jesú frá Nasaret og fram að kirkjuþinginu í Níkeu sem hófst árið 325, þá var líka ein- hvern veginn einkennilega vel við hæfi að lesa Vermes í splunkunýrri Kindiltölvu vegna þess að hann hóf í raun fræðimannsferil sinn á að rannsaka einhver þau elstu handrit sem til eru í Biblíufræðum, það er að segja Dauðahafs- handritin víðkunnu sem fundust rétt upp úr seinni heimsstyrjöld í hellum nálægt Dauða- hafinu í Palestínu. Vermes átti sjálfur ótrúlega ævi, sem er jafn mikil ástæða til að halda til haga og fræðistörfum hans. Hann fæddist í smá- borg í Ungverjalandi 1924 og var af Gyð- ingaættum. Ætt hans hafði hins vegar ekki iðkað trú sína að neinu ráði í hundrað ár og þegar Géza var sjö ára létu foreldrar hans skírast til kaþólskrar trúar. Það gerðu þau til að sonurinn hefði betri tækifæri en ella í Ungverjalandi þar sem Gyðingahatur var landlægt og fór vaxandi eftir fyrri heims- styrjöldina. Foreldrar hans voru báðir frjáls- lyndir í skoðunum og pólitík, faðirinn blaða- maður og móðirin kennari. Trúskiptin áttu þannig aðeins að vera til málamynda, en svo fór að móðir Géza gerðist trúuð mjög á kaþ- ólska vísu og sonurinn var sendur í kaþólsk- an skóla. Þegar hann útskrifaðist tæplega tvítugur var heimsstyrjöldin síðari skollin á, Ungverjar höfðu skipað sér í lið með Þjóð- verjum og enn fór að harðna á dalnum hjá ungverskum Gyðingum þótt skipulögð morð hæfust ekki fyrr en 1944, þegar Þjóðverjar hrifsuðu til sín stjórnartaumana í landinu. Þá kom Adolf Eichmann til Ungverjalands og skipulagði fjöldamorð á þeim, það eru til einstaklega óhuggulegar ljósmyndir af kátu starfsfólki útrýmingarbúðanna í Auschwitz þegar það fór í berjaferð haustið 1944, þá var fólkið talið verðugt notalegrar hvíldarferðar, því þær vikurnar var allt vitlaust að gera í vinnunni við að drepa ungverska Gyðinga. Þar á meðal voru foreldrar Géza Vermes. Fólkið í berjaferðinni, og maðurinn með harmóníkuna, taldi sig kærleiksríka arftaka hinna fyrstu lærisveina Jesú frá Nasaret sem hefði komið til að kenna nýjan sið og segja skilið við gyðingdóm þeirra Honis og Hanina. Þvert ofan í það, sem Géza hélt fram síðar, þegar hann sýndi fram á að bita- munur en ekki fjár var á Honi, Hanina og sjálfum Jesú. Trúskiptin höfðu nefnilega alls ekki bjarg- að foreldrum hans. Hann sjálfur hafði farið í prestaskóla í von um að njóta verndar kaþ- ólsku kirkjunnar þegar hryllingurinn reið yfir, og það gekk eftir. Kirkjan faldi Vermes fyrir morðæði Eichmanns og hinna kátu starfsstúlkna í berjaferðinni. Eftir stríðið lauk hann námi í prestaskólanum en hafði reyndar aldrei hug á að starfa sem prestur, heldur hafði hann fyllst áhuga á Biblíufræðum, ekki síst Nýjatestamentisfræðum. Eftir að Dauða- hafshandritin fundust árið 1947 hellti Vermes sér út í rannsóknir á þeim í Ísrael og átti mik- inn þátt í að skapa sátt um hvað þar væri á ferðinni. Lengi vel vissu menn nefnilega ekki hverjir hefðu skrifað öll þau innblásnu trúar- rit sem fundust í hellunum við Dauðahaf- ið og voru ýmsar kenningar í gangi. Niður- staða Vermes og félaga var sú að handritin hefðu verið skrifuð af ströngum sértrúar- flokki Gyðinga eitthvað laust fyrir árið 100 fyrir Krist, sumir telja að Jesú frá Nasaret hafi seinna meir kynnst mönnum úr þess- um flokki og dregið frá þeim dágóðan hluta kenningar sinnar. Brautryðjendastarf við kynningu Vermes gaf út fræga bók um Dauðahafs- handritin árið 1962 og hann var síðar fremstur í flokki þeirra sem börðust ákaft gegn þeirri tilhneigingu ísraelskra stjórn- valda, sem fengu yfirráð yfir handritun- um, að loka þau niðri og veita ekki hverjum sem var aðgang að þeim til rannsókna. Það var ekki fyrr en árið 1992 sem Ísraelsmenn féllust loks á að „frelsa“ handritin eins og Vermes komst að orði. Um miðjan sjötta áratuginn hafði Vermes lagt frá sér prestshempuna þegar hann varð ástfanginn af giftri enskri konu, hún skildi við mann sinn, hann við kirkj- una og þau fluttu til Englands þar sem hann varð að lyktum prófessor við Oxford og helgaði sig margvíslegum rannsókn- um á sögu Gyðinga kringum Krists burð. Smátt og smátt fjarlægðist hann kaþólsku kirkjuna og gekk aftur til liðs við Gyðing- dóm, þótt hann segðist raunar alls ekki vera trúaður í neinum hefðbundnum skiln- ingi. Hann sagðist bara hafa „vaxið upp úr“ kirkjunni en fundið æ betur fyrir sínum gyðinglegu rótum. Bækur þær sem Vermes skrifaði um Jesú frá Nasaret fóru að koma út á áttunda ára- tugnum og blésu nýju lífi í rannsóknir á hinum „sögulega Jesú“. Sú fyrsta hét „Jesus the Jew“ og vakti heilmikla athygli á sínum tíma, sem og síðari bækur hans. Kenningar hans eru ekki alveg óumdeild- ar, en hann vann ásamt fáeinum öðrum mikið brauðryðjendastarf við að kynna okkur hinn gyðinglega bakgrunn Jesú. Fyrir nú utan að hann kynnti okkur fyrir bráðskemmtilegum fýrum eins og þeim Honi og Hanina. En viti menn, dauðinn gat ekki sigrað hann. Hann hvarf vissu- lega um stund í dá dauðans, en svo reis hann upp aftur. Fólk vildi ekki trúa á upprisu hans, þá tók guð hann til sín og hann er á himnum. Hver var þessi góði maður? Hlýtur þetta ekki að vera Jesú sjálfur? Ónei, þetta var Honi hringa- teiknari. Landssamband Slökkviliðs- og Sjúkraflutningamanna boðar til ráðstefnu um;„Viðbrögð vegna flugslysa á alþjóðlegum flugvöllum á Íslandi“ Hótel Natura 5. desember kl. 13:00–17:00 M.a. verða umræður um þær breytingar sem hafa verið gerðar á björgunar- og slökkviþjónustu á Keflavíkurflugvelli og Reykjavíkurflugvelli á síðustu árum. Hvernig hefur til tekist og hvert stefnir? Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir Nánar á heimasíðunni www.lsos.is Vinsamlegast skráið þátttöku á lsos@lsos.is JESÚ PÁRAR Í DUFTIÐ, RÉTT EINS OG HONI HRINGATEIKNARI GLATT Á HJALLA Í BERJAFERÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.