Fréttablaðið - 17.05.2014, Blaðsíða 104
NÆRMYND
„Róbert Aron er einstaklega vandaður
karakter, ofsalega ákveðinn og þrjóskur
sem hefur líka komið honum langt.
Hann er gríðarlega traustur, fyndinn og
skemmtilegur. Hann er mikill húmoristi
og líka blíður og almennilegur. Frá því
að hann var lítill drengur hefur
hann verið mikið sjarmatröll
og hefur heillað alla upp úr
skónum. Ég er hreykin af því
að vera móðir hans. “
Anna Bentína Hermansen
móðir.
„Hann er ótrúlega hæfileikaríkur hand-
boltamaður og hefur allt sem góður
handboltamaður þarf að hafa, hann
getur skotið, er með leikskilning, frábær
varnarmaður og mjög útsjónarsamur.
ef hann nær að vinna rétt úr sínum
hæfileikum á hann eftir að ná mjög
langt. Hann getur þó verður lokuð týpa
og getur stundum átt í vandræðum
með hausinn á sér í leik en
getur farið alla leið og spilað
með stærstu liðum heims
ef hann heldur rétt á spil-
unum. Hann æfir mikið
og leggur mikið á sig.“
Gunnar Magnússon,
þjálfari ÍBV.
Hann er toppnáungi og ef það er
hindrun í hans vegi þá lemur hann
hindrunina frá sér. Hann er virkilega
efnilegur FIFA-spilari, við erum gott
dúó í FIFA og Týri hafa
ekki roð við okkur. Hann
er stjórnsamur en
mjúkur. Hann er
traustur vinur og það
er alltaf hægt að stóla á
að hann vinni titil.“
Elías Bóasson vinur.
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla og
Vesturbergi
ht.is
ÞVOTTAVÉLAR
Róbert Aron Hostert
Handknattleikskappi
ALDUR 23 ára
FORELDRAR Anna Bentína Herman-
sen og Grétar Örn Hostert
KÆRASTA Bryndís Þórólfsdóttir
Róbert Aron varð Íslandsmeistari í hand-
bolta með ÍBV á fimmtudagskvöld. Þetta er
annað árið í röð sem Róbert Aron verður Ís-
landsmeistari í handbolta, því hann varð Ís-
landsmeistari með Fram í fyrra. Hann spil-
aði stórt hlutverk í meistaraliði ÍBV og fer
út til Danmerkur á næsta tímabili og spilar
þar með Mors-Thy.