Fréttablaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 71

Fréttablaðið - 16.10.2014, Blaðsíða 71
FIMMTUDAGUR 16. október 2014 | MENNING | 59 „Bræður geta verið hreinskilnari hver við annan,“ segir tónlistarmað- urinn Unnar Gísli Sigurmundsson, betur þekktur sem Júníus Meyvant. Hann kemur fram á Iceland Airwaves-hátíðinni ásamt tveimur bræðrum sínum, þeim Guðmundi Óskari og Ólafi Rúnari. Fjórði bróðirinn, Einar, verður ekki með í þetta sinn því hann er staddur í Vestmannaeyjum þar sem bræð- urnir ólust upp. Júníus sló í gegn í sumar með laginu Color Decay en Unnar segir tónlistina vera sér í blóð borna. „Það spila allir á hljóðfæri í fjöl- skyldunni. Mamma og pabbi eru líka tónlistarfólk þannig að það er enginn skilinn eftir.“ En mun hann einhvern tímann fá mömmu og pabba til að troða upp með sér? „Við gætum endurflutt eitthvað eftir Mamas & the Papas, eða The Man- son Family,“ segir hann og hlær. Að sögn Unnars munu æfing- ar með bræðrunum tveimur hefj- ast fyrir alvöru í vikunni. Í hljóm- sveitinni eru einnig þeir Kristófer Rodriguez Svönuson og Árni Magnús son. Guðmundur spilar á gítar og hljóðgervla en Ólafur spil- ar á píanó og hljóðgervla. Júníus Meyvant treður upp alls sex sinn- um á Airwaves, fjórum sinnum með hljómsveitinni en tvisvar verð- ur Unnar einn á báti, bæði „on“ og „off-venue“. Unnar vinnur nú að fyrstu plötu sinni sem kemur út á næsta ári. „Þið munuð heyra einhver lög fyrir jól og í kringum Airwaves. Síðan kemur út plata í framhaldi af því,“ segir Unnar, sem er þegar búinn að semja allt efnið á plötunni. thorduringi@frettabladid.is Bræður spila saman á Airwaves Júníus Meyvant, sem sló í gegn í sumar, kemur nú fram ásamt bræðrum sínum tveimur. MEYVANTSBRÆÐUR Unnar segir þá bræður vera hreinskilnari en gengur og gerist. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Scott Walker, sem gerði garðinn frægan á sjöunda áratugnum með bræðrum sínum í The Walker Brothers, mun gera tónlistina fyrir kvikmyndina The Child- hood of a Leader. Myndin er fyrsta verk leikar- ans Bracy Corbet sem leikstjóri. Robert Pattinson úr Twilight- myndunum leikur aðalhlutverkið en Tim Roth (Reservoir Dogs) og Bérénice Bejo (The Artist) munu einnig leika hlutverk. Walker hefur búið til afar framsækna og óvenjulega jaðar- tónlist á undanförnum áratugum eftir að hann gafst upp á miðju- moði. Plata hans með drunu- og hávaðasveitinni Sunn O))), Soused, kemur út í næstu viku. The Childhood of a Leader fjallar um ungan Bandaríkja- mann sem býr í Frakklandi árið 1918 en faðir hans vinnur fyrir Bandaríkjastjórn við að koma Versalasamningnum í kring. Það sem maðurinn verður vitni að mótar skoðanir hans en myndin sýnir „fæðingu hræðilegs egós“. Semur kvik- myndatónlist SCOTT WALKER Gafst alveg upp á miðjumoðinu. Söngkonan Ke$ha, 27 ára, er búin að kæra upptökustjórann sinn Dr. Luke, 41 árs, og vonast söngkon- an til að losna undan samningi við hann. Tímaritið Us Weekly hefur kæruna undir höndum en í henni heldur söngkonan því fram að Dr. Luke hafi beitt hana líkamlegu og andlegu ofbeldi síðan hún skrif- aði undir samning hjá honum þegar hún var átján ára. Ke$ha fór í meðferð gegn átröskun í janúar síðastliðnum og segir að Dr. Luke hafi oft neytt hana til að drekka áfengi eða nota fíkniefni svo hann gæti fengið sínu framgengt kynferðislega. Ke$ha segir að Dr. Luke hafi eitt sinn gefið henni pillur og að næsta dag hafi hún vaknað nakin í rúm- inu hans, „aum, veik og mundi ekki hvernig hún endaði þar“. Ke$ha kærir Dr. Luke KE$HA Söngkonan hefur kært upp- tökustjórann sinn og vill losna undan samningi. NORDICPHOTOS/GETTY Leikarinn Brad Pitt segir í við- tali við Radio Times að hann hafi fengið fyrstu byssuna sína þegar hann var sex ára. „Bróðir minn fékk byssu pabba míns og ég fékk byssu afa míns þegar ég var í leikskóla,“ segir Brad um hefðir í sinni fjölskyldu. Þegar hann var átta ára skaut hann í fyrsta sinn af byssu. „Það jákvæða er að faðir minn kenndi mér að bera mikla virðingu fyrir vopninu,“ segir Brad og bætir við að hann sé ekki öruggur á heim- ili sínu nema hann viti af byssu í húsinu. Fékk fyrstu byssuna 6 ára afsláttur í öllum verslunum Lyfju dagana 16. – 19. október25%
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.