Gaflari - 03.04.2014, Blaðsíða 16

Gaflari - 03.04.2014, Blaðsíða 16
Kristján Theodór Sigurðsson eðlisfræðisnillingur Kristján Theodór er 19 ára Flens- borgari sem á dögunum gerði sér lítið fyrir og vann sér inn sæti í landsliði Íslands í eðlisfræði. Hann keppir því á Ólympíuleikunum í eðlisfræði í Astana í Kazakstan í júlí. Sjá viðtal á gaflari.is „Kristján Theodór er heilsteyptur og góður strákur. Hann er heiðarlegur, traustur og hógvær. Það hefur aldrei verið neitt vesen á honum. Hann er félagslyndur, hress og hefur alltaf átt auðvelt með að bræða fólk. Stærðfræði hefur alltaf legið mjög vel fyrir honum og það kom mér því ekkert sérstaklega á óvart þegar hann náði þessum góða árangri.“ Sigurður Th. Guðmundsson, pabbi. „Kristján Theodór er mjög góður vinur enda er hann minn besti vinur og ég get treyst honum fyrir öllu. Kristján Theodór er mjög hress og skemmtilegur. Hann er alls ekki þetta hefðbundna nörd. Hann kann að lifa lífinu og skemmta sér. Við höfum farið til útlanda saman og í margar sumarbústaðarferðir. Hann nær einhvern veginn að gera miklu meira úr tímanum en við hinir, hann er duglegur að vinna, læra og stunda félagslífið þannig að hann er greinilega mjög skipulagður.“ Birgir Óli Snorrason, vinur. Í áraraðir hefur Ragnar Björnsson ehf. framleitt rúm af öllum stærðum og gerðum, allt eftir þínum óskum. Lengd, breidd og mismunandi hæð á rúmunum eykur þægindin. Mismunandi stífleika er hægt að velja, allt eftir þyngd þeirra sem á dýnunum hvíla. Þú velur rétta hæð á rúmið þitt og stígur létt framúr. Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við sölumenn okkar. Svíf þú inn í svefninn RÚMDalshrauni 8 - Hafnarfirði | Sími 555 0397 | rbrum@rbrum.is| rbrum.is ÍSLENSK HÖNNUN – ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA Sigríður Anna Sigurð- ardóttir, gullsmiður. Helgin mín verður stút- full af skemmtilegheit- um enda ætla ég að vera í Hafnar- firði alla helgina. Ég er svo heppin að vinna í skemmtilegustu vinnu í geimi og fæ að leiðbeina mömmum, ömm- um, frænkum og frændum með val á fermingargjöfum en fermingar eru í hámarki þessa dagana. Á föstudags- kvöldið ætla ég að skemmta mér með ofurhressum FH konum á Konukvöldi FH í Kaplakrika. Laugardagar eru alltaf skemmtilegir í búðinni minni því þá er andrúmsloftið oft eitthvað svo létt og afslappað. Um kvöldið á ég von á að Timo dekri við mig með góðri steik úr Kjötkompaníinu. Á sunnudög- um förum við hjónin gjarnan í góða göngu, ég baka oftast eitthvað með kaffinu og svo er alveg extra gott að enda helgina í heita pottinum. Ólafur Helgi Guðmunds- son, stoðtækjasmiður. Eftir vinnu á föstu- daginn ætla ég að taka því rólega og hef engin önnur plön en að slaka á. Laugardagar hefjast oftast á því að ég fer í ræktina og eftir hádegi er ætlunin að fara í vor- hreingerningu og tiltekt í geymslunni. Færa til dót og henda helst engu. Um kvöldið verður grillið líklegast tekið fram. Ef veður leyfir verður stefnan sett á Helgafellið á sunnudaginn, svo eru rólegheit eftir það og vonandi nær fjölskyldan að borða saman á sunnu- dagskvöldið. STENDUR UPP ÚR HELGIN MÍN

x

Gaflari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gaflari
https://timarit.is/publication/1097

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.