Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2006, Page 33
ER KAFKA FRAMXJRSTEFNUMAÐUR?
standa fyrir mjög fjölrnennum ársþingum auk annars konar starfsemi. í
markmiðslýsingu á heimasíðu samtakanna kemur fram að þau beiti sér
fyrir rannsóknum á listum í ýmsu samhengi frá síðari hluta nítjándu aldar
fram til um miðja þá tuttugustu.10
Slík drottnun módernismans yfir alllöngu tímabili byggist að hluta til
á pyrrosarsigri. Otulir fræðimenn, vitandi hversu rækilega akademían
hefur sinnt þekktustu módernistunum á undanförnum áratugum, taka að
skima efdr rithöfundum og öðrum listamönnum sem legið hafa óbættir
hjá garði þótt þeir hafi skapað athyglisverð verk á áðurnefndu tímabili.
Þegar að er gáð kemur stundum í ljós að í slíkum rannsóknum skipta litlu
eða engu máli þau fagurfræðilegu og hugmyndalegu átök sem einkenna
tengsl róttækrar (,,módernískrar“) nútímalistar við þann nútíma sem hún
er sprottin úr en rís þó oft gegn. Fyrir vikið breiðist módernisminn vissu-
lega út, í vissum skilningi, en hann þynnist líka út.u
Þannig hefur á ársþingi MSA mátt heyra ágæta fyrirlestra um höfunda
sem sömdu merkilega en hefðbundna raunsæistexta á fyrri hluta tuttug-
ustu aldar en hafa kannski lent í skugga umræðna um róttækari nýsköp-
un á þessu tímabili. Þetta er þörf iðja, ekki síst vegna þess að hún dregur
fram hvernig realisminn hefur lifað og verið endurnýjaður, og það ekki
aðeins á umræddu tímabili heldur allt ffam á okkar daga. Módernisminn
hefur ekki úrelt hann, eins og stundum hefur mátt ætla af bókmennta-
umræðunni. En að kenna slík verk við módernisma verður til að slæva
hugtakið og jafnframt skynjun manns á fagurfræðilegri róttækni og
„brotavilja“ módernista, þá egg í verkum þeirra sem kenna má við
framúrstefnu. Þetta er ein ástæða þess að ég vil ekki skera á milli hugtaka
módernisma og framúrstefnu, þótt ég sé ekki heldur á þeirri skoðun að
þau séu jafngild að merkingu.
Nú skal tekið fram að í umræðu sinni jafnar Travers módernismann
ekki út sem hreint tímabilshugtak. Hann horfir ekki heldur framhjá
framúrstefhunni en hann ljær henni ekki mikið vægi í sögulegu mati
sínu:
10 „The Modemist Studies Association is devoted to the study of the arts in their soc-
ial, political, ctdtural, and intellectual contexts from the later nineteenth- through
the mid-twentieth century. The organization aims to develop an international and
interdisciplinary forum to promote exchange among scholars in this revitalized and
rapidly changing field.“ Sbr. http://msa.press.jhu.edu/ (sótt 5. júní 2006).
11 En jafnframt því sem hér er fundið að „útjöfhun“ módemisma á ákveðnu tímabili,
vil ég þó ítreka að hæpið er að takmarka módernisma við þetta tímabil.
31