Bæjarins besta - 04.01.2007, Blaðsíða 16
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
bb.is – fjölsóttasti vestfirski vefurinn
Erlendir ríkisborgarar eru
7% af heildaríbúafjölda á Vest-
fjörðum samkvæmt bráða-
birgðatölum Hagstofunnar
fyrir árið 2006. Hlutfall er-
lendra ríkisborgara á lands-
vísu eru 6%. Flestir útlend-
ingar eru nú búsettir á Aust-
urlandi eða rúmlega fjórðung-
ur íbúa þar en hlutfall útlend-
inga var um allangt skeið
hærra á Vestfjörðum en annars
staðar á landinu.
Árið 1996 voru 3,7% íbúa
Vestfjarða útlendingar saman-
borið við 1,8% á landinu í
heild og árið 2001 var hlut-
fallið 5,9% á Vestfjörðum og
3,4% á landinu í heild.
Íbúum með íslenskt ríkis-
fang hefur fækkað um 32 í
Bolungarvík, 51 í Ísafjarðar-
bæ, einn í Reykhólahreppi,
átta í Tálknafjarðarhreppi, 32
í Vesturbyggð, 10 í Súðavík-
urhreppi, 12 í Kaldrananes-
hreppi, þrjá í Bæjarhreppi og
sex í Strandabyggð. Á Vest-
fjörðum búa samkvæmt þess-
um tölum íbúar frá 32 löndum,
auk Íslendinga. Flestir koma
frá Póllandi eða 327, Taílend-
ingar eru 32 og Filippseyingar
24. Þjóðverjar eru 22 talsins á
Vestfjörðum.
– thelma@bb.is
Sjö prósent íbúa á Vestfjörð-
um erlendir ríkisborgarar
Jón Svanberg settur að-
stoðaryfirlögregluþjónn
Jón Svanberg Hjartarson,
varðstjóri í lögreglunni á
Ísafirði, hefur verið settur
aðstoðaryfirlögregluþjónn á
Vestfjörðum. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá lög-
reglustjóranum á Vestfjörð-
um, Kristínu Völundardótt-
ur. Eru þetta ný embætti sem
urðu til með sameiningu
sýslumannsembætta á Vest-
fjörðum um áramótin. Jón
Svanberg hóf störf þann 1.
janúar og starfar á Ísafirði
fyrsta mánuðinn, en mun þar
á eftir hafa starfstöð á Patr-
eksfirði.
Yfirlögregluþjónn á Vest-
fjörðum verður Önundur
Jónsson sem hingað til hefur
verið yfirlögregluþjónn á Ísa-
firði. Þá verður Jón Bjarni
Geirsson, varðstjóri í Bol-
ungarvík, forvarnar- og fræð-
slufulltrúi nýs lögregluem-
bættis á Vestfjörðum. Lög-
reglan á Vestfjörðum er
samansett úr lögregluem-
bættunum á Ísafirði, í Bol-
ungarvík, á Patreksfirði og
á Hólmavík. Þess má geta
að hið nýja embætti verður
gífurlega stórt að flatarmáli,
eða á milli níu og tíu þúsund
ferkílómetrar.
– hbh
Jón Svanberg Hjartarson.
Fjárhagsáætlun Bolungarvíkurkaupstaðar og stofnana hans fyrir árið 2007
Gert ráð fyrir 44 milljóna króna halla
Gert er ráð fyrir rúmlega 44
milljóna króna halla á rekstri
Bolungarvíkurkaupstaðar þeg-
ar aðalsjóður og B hluta stofn-
anir eru teknar saman í sam-
stæðureikningi samkvæmt
frumvarpi til fjárhagsáætlunar
fyrir árið 2007. Veltufé frá
rekstri í samstæðu án fjármagns-
liða er neikvætt um 3.133.000
króna. Fjárþörf verður mætt
með lántöku.
„Þessi niðurstaða er ásætt-
anleg í ljósi þeirrar stöðu sem
sveitarfélagið er í en ljóst er
að rekstrarumhverfið hefur
ekki verið hagstætt sveitarfé-
laginu sl. ár. Hallarekstur er
hins vegar ekki ásættanlegur
sem viðvarandi ástand og hef-
ur verið leitað leiða til að hag-
ræða og endurskipuleggja
hvar sem því verður komið
við. Áætlun sú sem nú er lögð
til fyrri umræðu byggir á raun-
hæfri tekju- og útgjaldaáætl-
un. Umhverfið virðist vera
hagstæðara næstu árin en
fyrirhugaðar eru umtalsverðar
framkvæmdir í sveitarfélag-
inu sem gera má ráð fyrir að
bæti rekstrarumhverfi sveitar-
félagsins“, segir í greinargerð
Gríms Atlasonar bæjarstjóra.
Síðari umræða fjárhagsáætl-
unar fyrir árið 2007 fer fram
18. janúar. Stefnt er að því að
þriggja ára áætlun liggi fyrir
eigi síðar en 1. febrúar. Bolungarvík.
Minna tjón en óttast hafði verið
Tjón af völdum óveðursins
á Vestfjörðum á aðfaranótt
Þorláksmessu virðist hafa
orðið minna en óttast hafði
verið. Eins og sagt hefur verið
frá fór saman mikið hvassviðri
úr suðri og há sjávarstaða sem
oft hefur reynst beiskur kokt-
eill fyrir íbúa á Ísafirði. Við
þetta bættust rafmagnstrufl-
anir sem urðu til þess að dælur
í lagnakerfi bæjarins urðu
óvirkar.
„Það varð náttúrlega tjón,
en miðað við veðurhæð og
annað held ég að menn hafi
sloppið frekar vel“, segir Torfi
Einarsson hjá tryggingafélag-
inu Sjóvá – Almennar. „Í
mörgum þeirra húsa sem
flæddi inn í hefur flætt áður.
Menn hafa varann á og geyma
yfirleitt ekki mikil verðmæti
á gólfum í kjöllurum þessara
húsa.“
Aftakaveður var um nóttina
og fór vindhraði á Ísafirði upp
í 32 m/s og ríflega 43 m/s í
hviðum. Á Þverfjalli mældist
sterkasta vindhviðan 56,4 m/
s. Um morguninn minnti efri
hluti miðbæjarins helst á Fen-
eyjar á Ítalíu þar sem miðhluti
eyrarinnar var eins og hafsjór
á að líta.
– hbh
Nýskipan lögreglumála um áramót
Miðbærinn minnti helst á Feneyjar á Ítalíu.