Franskir dagar - 01.07.2009, Blaðsíða 6

Franskir dagar - 01.07.2009, Blaðsíða 6
Franskir dagar - Les jours fran^ais Texti: Albert Eiríksson myndir: Albert og úr einkasafni Sigurrós frá Brimnesgerði Brimnesgerði í Fáskrúðsfirði lœtur ekki mikið yfir se'r í dag. Þar var áður blómlegt mannlíf þótt fátt beri þess nú merki -fjórbýlt þegar mest var, enflest höfðu býlin litlar landnytjar. Brimnesgerði var í alfaraleið þvi aðfjallvegur lá upp afbœnum um Hrossadalsskarð yfir í Hafranes íReyðarfirði. Fljótlega eftir að síminn kom til landsins var línan lögð þar um. Vegurinn lagðist af þegar bílvegur var lagður yfir Staðarskarð á fimrnta áratugnum. Anna, Elinborg, Jón, Sigurður i fangi fóöur sins Ólafs, Lovísa, Sigriöur með Sigurrós, Ragnhildur og Ásgeir. Á myndina vantar Sigurrós sem dó á Akureyri. í hlýlegri íbúð á hjúkrunarheimili í Reykja- vík hitti ég níutíu og níu ára gamla konu sem fæddist og ólst upp í Brimnesgerði, flutti síðar að Búðum og loks til Reykjavíkur. Eg bað hana að segja mér frá æskuárunum á Fáskrúðsfirði. Ólöf Sigurrós Ólafsdóttir fæddist 21. febrúar 1910 i Brimnesgerði. Foreldrar hennar voru Ólafur Finnbogason (1861- 1935) frá Brimnesgerði og Sigriðurl. Bjarna- dóttir (1868-1942) úr Skriðdal. Systkini Sigurrósar voru: Sigurrós (1891- 1908), Jón Emil (1893-1982), María Ragn- hildur (1896-1980), Lovisa (1898-1919), Anna Sigriður (1900-1980), Bjarni Ásgeir (1903-1933), Elínborg Pálína (1906-1998), Sigurður (1907-?) hálfbróðir hennar sam- feðra var Ágúst Ólafur (1899-1976). Gamla húsið í Brimnesgerði stóð á sama grunni og það sem seinna stóö þar. „Afí gerði vandaða hleðslu úr höggnu stein- límdu grjóti undir húsið. í kjallaranum var góð geymsla fyrir mjólkurarfurðir, slátur og fleira. Húsið var stofuhæð og ris, nokkuð undir súð, og háaloft þar fyrir ofan. Á vest- urloftinu var hlaðinn skorsteinn úr stein- límdum rauðum tígulsteini. Hann var óspart notaður af okkur krökkunum til að hlaupa í kring eins og jólatré. Ég hef oft undrast þann dugnað og hagsýni sem foreldrar mínir sýndu með því að ráðast í húsbyggingu og margt annað, á helmingnum af þessu litla og ótrúlega erfiða koti. Auk hússins var vetr- arQós fyrir tvær til þrjár kýr, rétt við hlaðiö, en svo var sumarfjós fyrir kýrnar neðar við Villingaána sem var notað fyrir hestana á veturna. Hlaðan var skammt fyrir vestan ibúöarhúsið og fjárhús áfast við hana, rétt við litinn læk, sem þá varð bæjariækurinn okkar.” Eftir að foreldrar Sigurrósar, Ólafur og Sigríöur, fluttu frá Brimnesgerði brann húsið. Þá var húsið Hamborg (sem stóð fyrir innan Templarann á Búðum) flutt á grunninn. Fleiri bjuggu í Brimnesgerði um síðustu aldamót. „Ásmundur föðurbróðir minn flutt- ist að Brimnesgerði árið 1895 ásamt konu sinni, Júlíönu Rasmusdóttur og börnum þeirra. Hann stundaði mest sjó en bjó litið, átti í miklum Qárhagserfiðleikum. Árið 1908 flutti hann í Höfða (milli Höfðahúsa og Lækjamóts). Þaðan stundaði hann sjó, en fórst í róðri við annan mann í fárviðri í október árið 1910. Annar föðurbróðir, Indriði, og Guðný kona hans Magnúsdóttir fluttust um 1899 að Bakkagerði. Þar var lítill torfbær sem stóð innan við Villingaána niður við sjóinn. Þar var engin grasnyt. Indriði var við sjó- róðra upp á hlut og þarna lifðu þau við sára fátækt með fimm börn. Indriði fékk slæma brjósthimnubólgu og var lengi veikur og rúmliggjandi. Það voru miklir erfiðleikar þangað til hann gat farið aftur að vinna. Þau fluttust áriö 1905 í Búðakaupstað, byggðu Hlíðarenda (þar sem Draumaland stendur nú) og smám saman vænkaðist hagur fjöl- skyldunnar. Indriði var glaöur í lund þrátt fyrir erfiðleika, söngelskur, spilaði á harm- óníku og var oft fenginn til að spila á böllum í kaupstaðnum.” SELSKAPSKONA í REYKJAVÍK Áður en leiöir Sigríðar og Ólafs lágu saman var hún selskapsdama i Reykjavík hjá Elínu Jónasdóttur Stephensen, eiginkonu Magnúsar Stephensen, síðasta landshöfðingja á Islandi. Af henni lærði hún dönsku vel. „Mamma sagði okkur oft sögur frá þessu ári hjá hjón- unum, greinilegt var að henni hafði líkað vistin þar vel.” Hún fór með Elínu hvert sem hún fór, meðal annars í allar veislumar. Sigríður hafði áður gætt barna prests- hjónanna á Valþjófsstaö i Fljótsdal og var þaðan fermd. Sigurrós telur sennilegt aö presturinn hafi þekkt til landshöfðingja- hjónanna og að móðir hennar hafi komist til þeirra að hans tilstuðlan. EFTIRMINNILEG KIRKJUFERÐ Ein af fyrstu minningum Sigurrósar er kirkjuferð á aðfangadag þegar hún var á sjötta ári. „Mamma og pabbi voru eftir heima að undirbúa jólin og jólasteikina. Við systkinin fómm samferða fólkinu af byggð- inni til messu. Það bættist í hópinn eftirþví sem viö nálguöumst prestssetrið Kolfreyju- stað. Harðfenni var yfir öllu, miklar stillur, tunglsljós og stjörnubjart. „Siggi strákur, flýttu þér, það liggur á,” man ég að Jónína á Höfðahúsum kallaði til sonar síns þegar þau vom að hafa sig til. Þegar inn í kirkjuna kom, blasti við mér sú mesta fegurð sem ég hafði augum litið. Kristalsljósakrónan glitr- aði svo fallega og endurspeglaði stórkostlega fegurð og birtu. Séra Haraldur var glæsi- legur maður, hár og grannur og bar sig vel. Þarna var hann klæddur í rautt og gyllt vesti utan yfir hvítan kyrtil. Þetta fannst mér stórkostlegt að sjá og eftirminnilegt. Mér fannst kirkjuferðin mikið ferðalag, en óskaplega var gott að koma heim í rifjasteik og jólagraut til mömmu.” Eins og siður var áður fyrr, vom lesnir 6

x

Franskir dagar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Franskir dagar
https://timarit.is/publication/1108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.