Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.10.2009, Qupperneq 8

Neytendablaðið - 01.10.2009, Qupperneq 8
Gríðarlega hröð þróun er á flatskjáum og sífellt koma nýjar tegundir á markaðinn. Niðurstöður nýlegrar gæðakönnunar sýna jafnframt að gæðin aukast jafnt og þétt en sumar eldri tegundir standa þó vel fyrir sínu. Um gæðakönnunina Gæðakönnunin var framkvæmd á rannsóknarstofu í Þýskalandi, undir umsjón ICRT (International Consumer Research and Testing) í samstarfi við neytendasamtök í Evrópu. Langalgengasta stærð flatskjáanna er á bilinu 32” til 42”. Nú eru flestir flatskjáir með innbyggða harða diska og voru gæði þeirra tekin með í þessari könnun. Myndgæðin eru mikilvægasti þátturinn og eru metin með rann­ sóknum á rannsóknarstofu. Auk þess mátu fimm þjálfaðir einstakl­ ingar gæðin með því að horfa á tækin úr 2 til 3 metra fjarlægð, en aðeins nær þegar HD tæki voru metin. Atriði úr mismunandi kvikmyndum voru metin. Þar var annars vegar um að ræða atriði utandyra í mikilli birtu ásamt atriðum þar sem skuggsýnt er. Hins vegar var metið hversu vel flatskjáirnir skiluðu hröðum atriðum og nærmyndum af andlitum. Loks voru skjáirnir metnir út frá því þegar sýndar eru á þeim ljósmyndir og þeir í raun notaðir sem tölvuskjáir. Hljómgæði voru fyrst og fremst metin út frá huglægu mati þriggja sérfræðinga. Þrjár tegundir hljóðs voru þannig metin; klassísk tónlist, popptónlist og atriði úr kvikmyndum þar sem raddir bæði karl­ og kvenmanna heyrast með tónlist í bakgrunni. Tæknilegar mælingar voru einnig gerðar til að meta hve hátt hátalarnir geta verið stilltir og um leið hljómað vel og allt sviðið frá bassa til hæstu raddar var metið. Notendaviðmót var metið af þremur einstaklingum og var þar m.a. skoðað hve auðvelt er að tengja tækið, dagleg notkun og það hve auðvelt er nota það með og án fjarstýringar. Loks voru notkunar­ leiðbeiningar metnar af tveim sérfræðingum. Valmöguleikar voru metnir og ein einkunn gefin. Meðal annars var skoðað hvort á tækinu sé usb kortaaflesari og í því innbyggður harður diskur og mynd í mynd. Eins var athugað hvaða önnur tæki er hægt að tengja við sjónvarpið. Textasjónvarp var einnig metið og þá hve fljótlegt er að skipta á milli síðna og hversu læsilegir bókstafirnir eru á skjánum. Hvað þýðir HD ready og Full HD-1080? HD stendur fyrir High Definition (mikil upplausn), sem þýðir að skjárinn hefur minnst 768 eða 1080 lóðréttar myndlínur. Myndin sýnir því fleiri smáatriði en venjuleg sjónvarpsmynd úr gömlu túpu­ tækjunum gerir, en skjáir slíkra tækja hafa 576 línur. Ef setið er meira en 1,5 metra frá 26” skjá eða meira en 2,5 metra frá 40” skjá skiptir ekki máli hvort tækið sé Full HD eða ekki. Í þessari fjarlægð getur augað ekki numið mismuninn í smáatriðum í myndinni. Því er mælt með að kaupa gott HD­ready sjónvarp með 768 myndlínum fremur en meðalgott sjónvarp með 1080 línum. Flestar sjónvarpsstöðvar senda út í SD (Standard Definition – 567 línur) sem getur leitt til þess að myndin verði kornótt í HD­ready sjónvarpi með 768 línur eða meira. 100 Hz / 24p? Á gömlu túputækjunum sem eru 100 Hz endurnýjast myndin 100 sinnum á hverri sekúndu til að komast hjá því að myndin titri eða leiftri. Varðandi flatskjái lítur málið öðruvísi út. Í stað þess að sýna sömu myndir í fleiri skipti er á mörgum nýrri gerðum flatskjáa aukamynd inni á milli tveggja myndmerkja. Örgjörvi í tækinu reiknar út myndina út frá tveimur skjámyndum. Þessi tækni getur gefið meiri fljótandi hreyfingar í myndina. Á nokkrum þeirra flatskjáa sem kannaðir voru, og þar sem hægt er að slökkva á 100Hz möguleikanum, batna hreyfingar í myndinni verulega ef slökkt er á þessum möguleika. Við hægar eða fáar hreyfingar er minna um stafrænar truflanir. Hins vegar er það skýr niðurstaða að hraðar hreyfingar á myndinni, eins og t.d. í spennumyndum, leiða af sér stafrænar truflanir í nánast öllum tilvikum þegar 100 Hz eru á. 100 Hz duga mjög vel þegar horft er á fréttir en gera myndina óskýrari þegar horft er á spennumynd. Hér áður, á meðan gömlu túputækin voru á markaði, var hins vegar kostur að hafa 100 Hz sjónvarp. Í dag er raunverulega enginn munur á skjánum með eða án þessa möguleika. 24p er tækni sem á að tryggja sem mest myndgæði. Þessi nýja tækni gengur út á að fá þær 24 myndir á sekúndu sem kvikmynd byggir á sýndar í sem mestum gæðum á skjá sem er byggður til að sýna 60 myndir á sekúndu. Í gæðakönnuninni var þó ekki að sjá að myndgæði væru meiri með þessari nýju tækni. Jafnvel voru dæmi um að hreyfingar í myndinni voru lakari. Aðeins fáeinir flatskjáir eru með betri myndgæði þegar þeir fá 24p merki, en munurinn er ekki mikill. Það er því ástæða til að hafa það í huga að flatskjár með 100 Hz og 24p er ekki endilega betra tæki. Óskaðu því eftir því í viðkomandi verslun að fá sýndar t.d. kvikmyndir sem teygðar eru út en fylla ekki út allan skjáinn og myndir með hröðum hreyfingum þannig að þú getir metið hvort þessi tækni skili þér einhverju. Sjá nánari upplýsingar um sjónvörp á ns.is, undir gæðakannanir og markaðskönnun á 145 tækjum og 45 plasmaskjám sem gerð var í ágúst og september hér á landi. Gæðakönnun á sjónvörpum  NEYTENDABLA‹I‹ 3. TBL. 2009

x

Neytendablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.