Frjáls verslun - 01.02.2006, Blaðsíða 12
FRÉTTIR
12 F R J Á L S V E R S L U N • 2 . T B L . 2 0 0 6
Fullt hús var á afar vel heppn-
aðri ráðstefnu sem IBM stóð
fyrir í Smárabíói hinn 17. mars
sl. Það er ekki á hverjum degi
sem stærsta upplýsingatæknifyrir-
tæki heims heldur ráðstefnu hér
á landi. Ráðstefnan bar heitið
Lotusphere og var hún haldin í
samvinnu við Nýherja, FOCAL og
Hugvit. Yfir 140 manns mættu á
ráðstefnuna.
Lotus hugbúnaður frá IBM
nýtur mikilla vinsælda og er hann
í notkun hjá fjölda fyrirtækja og
stofnana hér á landi. Öflugt þróun-
arstarf fyrirtækisins á hugbúnaði
hefur verið að skila sér í enn betri
lausnum sem voru kynntar á ráð-
stefnunni.
Sérfræðingar IBM fræddu
ráðstefnugesti um framtíðarsýn
fyrirtækisins fyrir Lotus Notes,
Workplace - samvinnu- og vef-
gáttalausnir - og Domino, auk
þess sem gjörbreytt útgáfa af
Sametime var kynnt til sögunnar.
Þorvaldur Jacobsen, fram-
kvæmdastjóri Kjarnalausna
Nýherja, sagði að það hefði verið
mikill akkur fyrir Íslendinga að
IBM skyldi halda Lotusphere
á Íslandi. ,,IBM hefur alla tíð
átt mjög góð tengsl við Íslend-
inga og hafa ófáir sérfræðingar
fyrirtækisins mætt hingað til
lands til að flytja fyrirlestra.
Sá gríðarlegi áhugi sem var á
ráðstefnunni og hinar öflugu nýj-
ungar sem þar voru kynntar eru
merki um vaxandi áhuga á Lotus
á íslenska markaðnum. Að ráð-
stefnan skyldi haldin hér á landi
að þessu sinni staðfestir þau
góðu tengsl. Sala á IBM hugbún-
aði hefur vaxið mjög hratt undan-
farin ár og mörg af stærstu fyrir-
tækjum landsins nota hugbúnað
frá fyrirtækinu.“
Frábær ráðstefna:
IBM í
Smárabíói Bo Falkenberg, sérfræðingur í upplýsingatækni hjá IBM.
Rúmlega 140 gestir sóttu ráðstefnu IBM í Smárabíói.
Guðmundur Kjærnested, framkvæmdastjóri Rekstrarfélags stjórnar-
ráðsbygginga, og Jóhannes Páll Sigurðsson, kerfisfræðingur hjá
Focal Software & Consulting.