Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 97

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 97
Umsagnir um bækur Sannar myndir Fyrir síðustu jól sendi húsfreyja norður við Mývatn, Jakobína Sigurðardóttir, frá sér átta smásögur athyglisverðar.1 Fjórum ár- um áður hafði Jakobína gefið út Kvœði, 7 arkir að stærð, þrungin skaphita, ættjarðar- ást og baráttuhug fyrir mannréttindum og frelsi, en um leið með ósviknum hagleiks- blæ. Sögur þessar eru með sömu einkennum og kvæðin og standa þeim síður en svo að haki í heild, þó að misjafnar séu að gæð- um. Beztu kostir þeirra eru næmleiki og skilningur á viðbrögðum fólks í lífsins leik og tilfinninga túlkun, sem snertir lesand- ann ósjaldan djúpt og fyllir hann samúð með persónunum. Jakobína gerþekkir oft- ast það, sem hún skrifar um. Samtöl eru víðast eðlileg. Hún kann jafn vel að leggja orð í munn blindri öldurkonu sem hús- freyjunni ungu, rótgrónum óðalsbónda í sveit eins og sjómanni, nýkomntim heim úr veiðiför til konu og bama. Skal nú litið á einstakar sögur. Hin fyrsta heitir Þessi blessaða þjóð og fjallar um andstæður gamals og nýs tíma, er augnabliksmynd af sveitaheimili um sum- ardag, þegar ungan gest á vegum Rann- sóknarstofu Háskólans ber að garði, en hann á að taka heysýnishom hjá bónda, sem kemur inn til hádegisverður frá að bjástra árangurslaust við bilaðan súgþurrk- unarmótor. Húsfreyjan gengur um beina, en amman, blind að mestu, reynir að 1 Jakobína Sigurðardóttir: Púnktur á skökkum stað. Heimskringla, 1964. 137 bls. hjáipa til við uppþvott og barnagæzlu. Sam- tal hjónanna og gestsins er um vandamál véla og annríkis, þar eð hálfþurrt heyið i hlöðunni liggur undir skemmdum vegna vöntunar á blæstri, og slægjan á túninu þarfnast snúnings, en enginn til að annast hana: bóndinn á kafi í vélarviðgerð, hús- freyja vanfær, bömin of ung til að geta hjálpað, en gamla konan blind. Hún er með allan hugann við liðinn tíma og ræðir ýmist um ágæti afa og ömmusystur gests- ins eða hún vitnar í ljóðmæli Jónasar og Stephans G., en á hvoru tveggja virðist unga kynslóðin vita jafnlítil deili — sönn mynd, en átakanleg af djúpi því, sem stað- festst hefur milli kynslóðanna, er skilur nú tæpast hvor aðra: Onnur lifir í horfinni veröld skáldskapar og hugsjóna, hin á ofsa- hraðri ferð inn í nýja tíð vélveldis og raun- sæi, en getur ekki snúið við, þó að hún feg- in vildi. í annarri sögu bókarinnar Stellu, þar sem greinir frá hjónabandsárekstrum, er sýnt annars konar djúp eða fjarlægð milli and- stæðna. Ef til vill mætti frekar nefna það múr, sem aðskilur persónumar, skilrúm, er lokar draum frá vemleika. Vöntun sam- stillingar og gagnkvæms skilnings meðal hjónanna veldur ógæfunni. Og fyrir bragð- ið eru þau jafnfjarlæg hvort öðm, þó að heim sé kominn sem þá hann var á sjónum. Þau húa í bragga, hann er óbreyttur háseti, hún alltaf ólétt — og kennir honum um fá- tæktina og baslið, fyrst hann lét ógert að afla sér réttinda til betur launaðrar stöðu. En rætur ósamþykkisins ná þó dýpra. Þær eru sálræns eðlis, einstaklingsbundnar. Hér er vel á efninu haldið og af nærfæmi túlk- uð hin misræmu sjónarmið. 87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.