Morgunblaðið - 14.02.2015, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Þórður
Vinir Þau Guðrún Gunnarsdóttir, Jógvan Hansen og Sigríður Beinteinsdóttir njóta þess að gera það sem þau eru
best í: Að syngja og skemmta. Í dagskrá þeirra eru sögur sagðar á milli laga og taka þau sig ekki of hátíðlega.
sló það í gegn rétt undir 1970. Þá
erum við Sigga sjö og átta ára, með
útvarpið á. Það var náttúrlega bara
ein stöð og maður var alltaf að
hlusta. Okkur fannst lagið báðum
ofboðslega töff! En hann Jógvan,
hann var nú ekki einu sinni fæddur
þarna,“ segir Guðrún. „Það er eitt-
hvað við þetta lag,“ segir Guðrún.
„Og við lágum bara á stofugólfinu
þegar þetta kom í Óskalögum sjúk-
linga og fannst þetta alveg æðislegt
lag. Sú minning kemur enn upp
þegar ég heyri þetta lag,“ segir
Sigga. Þó að Jógvan eigi ekki minn-
ingar um lagið úr bernsku hefur það
mikla þýðingu fyrir hann að flytja
þessi lög. „Fyrir mig er það algjör
heiður að fá að flytja þessi lög.
Þetta eru allt sígild lög og alls ekki
sama hvernig þau eru flutt. Það er
alveg bannað að láta bara vaða því
það þarf að sýna verkinu vissa virð-
ingu,“ segir Jógvan Hansen um
tónleikaprógrammið.
Þeir sem vilja tryggja sér miða
á tónleikana í Hofi þar sem flutt
verða „lögin sem allir elska“ má
nálgast miða á vefnum www.menn-
ingarhus.is og www.midi.is.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Ríkisútvarpið Uppábúin glæsikona talar í útvarpið nokkru áður en Sigga
og Guðrún fóru að hlusta á Óskalög sjúklinga. Með andakt hlýddu þær á.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015
12.30 Menntastofur samtaka í atvinnulífinu. SI, SFF, SVÞ, SAF, og SFS kynna og ræða áherslur samtakanna.
14.00 Ávinningur menntunar. Björgólfur Jóhannsson, formaður SA.
14.15 Breytt starfsnám Dana. Henning Gade, forstöðumaður hjá DA, samtökum atvinnulífsins í Danmörku.
14:45 Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna sig á Menntatorgi.
15.15 Deiglan í menntakerfinu og breytingar á starfsnámi.
Hvað segja fyrirtækin – hvernig líst þeim á – hvað vantar?
Sigurður Steinn Einarsson, starfsmaður Síldarvinnslunnar.
Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, framkvæmdastjóri Icelandair hótela.
Þórður Theodórsson, framkvæmdastjóri framleiðslu Marel.
15.45 Viðhorf fyrirtækja til starfsmenntunar. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra.
16.00 Menntaverðlaun atvinnulífsins 2015. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra afhendir verðlaunin.
Ráðstefnustjóri er Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS.
Vinsamlegast skráið þátttöku
á vef SA: www.sa.is
Fimmtudaginn 19. febrúar á Hilton Reykjavík Nordica kl. 12.30-16.30
Menntadagur atvinnulífsins 2015
Á morgun, sunnudag, verður haldinn
fyrsti alþjóðlegi Brennan-heilunar-
dagurinn. Þá munu Brennan-heilarar
um allan heim standa að uppá-
komum sem stuðla að aukinni með-
vitund á því hvað heilun geti verið og
hvernig sú aukna meðvitund geti
leitt til meira heilbrigðis, jafnvægis
og vellíðunar.
Á Íslandi munu fjórir Brennan-
heilarar sem eru útskrifaðir úr 4 ára
námi í Barbara Brennan School of
Healing, þau Jóhanna Jónas leik-
kona, Kristján Viðar Haraldsson,
söngvari úr Greifunum, Svava Matt-
híasdóttir hjúkrunarfræðingur og
Ásta Baldursdóttir hjúkrunarfræð-
ingur vera með opið hús í Rósinni,
Bolholti 4, frá kl. 13-16.
Þau munu halda kynningu um
Brennan-heilun og nám Brennan-
heilara, en það nám í Barböru Brenn-
an School of Healing er að mörgu
leyti sérstakt. Skólinn sem hefur ver-
ið starfandi í ein 30 ár býður upp á
fjögurra ára mjög strangt nám sem
er byggt upp eins og háskólanám. Í
Flórída í Bandaríkjunum, þar sem
höfuðstöðvar skólans eru, er hægt
að fá bachelor-gráðu í þessum fræð-
um sem þykir einstakt hvað heilunar-
fræði varðar.
Námið er mjög ítarlegt og yfir-
gripsmikið, byggt á námskeiðum og
fjarnámi, krefst mikillar sjálfsvinnu
og enginn útskrifast nema hafa stað-
ist þær miklu kröfur sem skólinn set-
ur fram. Einnig er
hægt að fara eftir
þessi fjögur ár í
tveggja ára fram-
haldsnám í sam-
talstækni.
Hugsjón skól-
ans og Barböru
Brennan sem
stofnaði hann er
að heilun verði sí-
fellt viðurkenndari sem stuðnings-
meðferð jafnhliða hefðbundnum
læknis- og sálfræðimeðferðum með
sinni heildrænu nálgun. Aldrei er lagt
út frá því að sjúkdómsgreina neinn,
frekar að styðja og styrkja ein-
staklinga til betri meðvitundar um
sjálfa sig og eigin orku, sem getur
leitt þá til betra lífs og heilbrigðis,
fyrir utan að stuðla að jafnvægi og
góðu orkuflæði.
Þetta er skóli mikilla umbreytinga
og í hann fara margir til að öðlast
meiri þroska og að njóta þeirrar
miklu sjálfsvinnu sem þar er boðið
upp á. Gengið er út frá því að sá sem
fari í gegnum þetta nám öðlist
ákveðin heilindi í sjálfum sér sem
geri hann betur undirbúinn til að
hjálpa öðrum.
Þau sem standa að þessum degi
hér á Íslandi segjast hlakka til að
miðla af reynslu sinni og spjalla við
þá sem hafa áhuga á því sem þau
hafa fram að færa.
Facebook: Brennan heilun á Íslandi
Opið hús í Rósinni í Bolholti á morgun, sunnudag
Jóhanna Jónas Ein þeirra íslensku Brennan-heilara sem munu kynna í dag.
Til að styðja og styrkja einstak-
linga til betri meðvitundar
Barbara Brennan