Morgunblaðið - 14.02.2015, Qupperneq 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015
Austurveri • Glæsibæ • Húsgagnahöllinni • Mjódd • Smáratorgi • Suðurveri Vinir okkar á Facebook
Heill heimur af bollum!
ÞESSAR GÖMLU GÓÐU– VATNSDEIGSBOLLUR OG GERBOLLUR
Rjómi, jarðarberjasulta og súkkulaði ofan á • Rjómi, jarðarberjasulta og karamella ofaná • Jarðarberjarjómi, jarðarberjasulta og jarðarberja-súkkulaðispænir ofan á
Rommrjómi, jarðarberjasulta og flórsykur ofan á • Irish-Coffee-rjómi, jarðarberjasulta og súkkulaði ofan á og orange-súkkulaðispænir
HÁTÍÐARÚTGÁFUR
Vínarveislubolla: Vínarbrauðsdeig, rjómi, vanillukrem, núggat, sólberjasulta, glassúr og dökkur súkkulaðispænir ofan á
Lúxusbollameð ávöxtum: Rjómi, jarðarberjasulta, fersk jarðarber, kívi, bláber og súkkulaði ofan á
Berlínarbollameð sultu
Kíktu á nýju vefverslunina okkar
bakarameistarinn.is Sími 533 3000
Yfir fimm þúsund manns voru við
útför þriggja ungmenna sem skotin
voru til bana í háskólabænum
Chapel Hill í Norður-Karólínu á
þriðjudaginn var. Fjölskyldur ung-
mennanna og fleiri hafa krafist
þess að morðin verði rannsökuð
sem hatursglæpur.
Þau Deah Shaddy Barakat, 23
ára, eiginkona hans, Yusor Mo-
hammad Abu-Salha, 21 árs, og 19
ára gömul systir hennar, Razan Mo-
hammad Abu-Salha, voru skotin til
bana í árás, sem þótti minna á af-
töku. Nágranni þeirra, Craig
Stephen Hicks, 46 ára, er grunaður
um morðin.
Talið er að Hicks sé harður and-
stæðingur trúarbragða. Hann hef-
ur til að mynda margoft fordæmt
íslam og kristni á Facebook-síðu
sinni.
Lögreglan telur að ástæða morð-
anna sé rifrildi um bílastæði við
heimili ungmennanna í Chaphel
Hill en fjölskyldur þeirra telja að
meginástæðan sé hatur morðingj-
ans á múslímum. Nágrannar Hicks
segja að hann hafi margoft abbast
upp á þá vegna bílastæða og gengið
um vopnaður í hverfinu.
Auk lögreglunnar í Norður-
Karólínu hefur bandaríska alríkis-
lögreglan, FBI, hafið rannsókn á
morðunum, m.a. á því hvort þau
geti talist hatursglæpur.
Bandarískir fjölmiðlar hafa verið
gagnrýndir fyrir að hafa ekki veitt
morðunum næga athygli í upphafi
og fjalla ekki um þau sem haturs-
glæp vegna þess að fórnarlömbin
voru múslímar.
Múslímarnir myrtir vegna haturs
á íslam eða vegna bílastæðis?
AFP
Hatursglæpur? Múslímar biðja við athöfn í Raleigh í Norður-Karólínu í
fyrradag til minningar um þrjú ungmennin sem voru myrt í vikunni.
Minningarathafnir fóru fram í
Dresden í Þýskalandi í gær í tilefni
af því að 70 ár eru liðin frá mann-
skæðum loftárásum Bandaríkja-
manna og Breta á borgina í síðari
heimsstyrjöldinni. Talið er að um
25.000 manns hafi beðið bana í
árásunum og 33 ferkílómetra svæði
var lagt í rúst.
Árásanna var m.a. minnst í
Frúarkirkjunni þar sem Joachim
Gauck, forseti Þýskalands, flutti
ávarp. Þúsundir manna söfnuðust
einnig saman í miðborginni í gær-
kvöldi til að minnast þeirra sem
létu lífið í árásunum.
Loftárásanna á
Dresden minnst
AFP
Forseti Joachim Gauck í Frúarkirkjunni.
ÞÝSKALAND
Varalitafar á
munnþurrku,
sem Margaret
Thatcher notaði í
Bandaríkjunum,
hefur verið sett á
uppboð á netinu.
Starfsmaður
leikhúss í Ohio
tók munnþurrk-
una úr ruslakörfu í búnings-
herbergi sem Thatcher notaði þeg-
ar hún flutti fyrirlestur í leikhúsinu
árið 2000. Hæsta boðið í munn-
þurrkuna til þessa er 1.950 pund,
jafnvirði tæpra 400.000 króna.
Munir sem tengjast Thatcher hafa
verið mjög eftirsóttir á uppboðum á
netinu.
BRETLAND
Varalitakoss
Thatcher eftirsóttur
Yfirvöld í Úsbek-
istan hafa hvatt
ungt fólk til að
sniðganga vest-
rænar hefðir val-
entínusardags-
ins, sem er í dag,
og gert 14. febr-
úar að degi ljóð-
listarinnar. Þótt
stjórnin hafi ekki gengið svo langt
að banna valentínusardaginn hafa
skólar fyrirskipað nemendum að
sniðganga hann og gefa engar
valentínusargjafir. Þess í stað er
unga fólkið hvatt til að lesa ástar-
ljóð stríðsprins sem fæddist þennan
dag á 15. öld og er þekktur fyrir
mansöngva.
ÚSBEKISTAN
Lesi ljóð og hunsi
valentínusardaginn