Morgunblaðið - 14.02.2015, Síða 35
það slæma sem fólk hefur gert í
sínu lífi. Með kúnstarinnar
reglum er fólk málað sem engl-
ar, í þínu tilviki er það alveg til-
gangslaust því þú varst og ert
engill.
Einnig var það alltaf yndis-
legt annaðhvort að fá þig í
heimsókn eða kíkja til þín. Þú
sagðir oft við mig „vertu marg-
berrassaður og sæll“ og eftir
það gat ég ekki hætt að segja
þetta við vini mína enda frábær
frasi og minnir mig sífellt á þig
ungfrú Dalrós. Ég er löngu bú-
inn að ákveða, að ef ég eignast
einhvern tímann dóttur ætla ég
að nefna hana Dalrós eftir þér.
Ástæðan fyrir því að það var
svo gaman að hitta þig var hvað
þú varst alltaf glöð að sjá alla.
Þú varst búin að ákveða u.þ.b
tveimur mánuðum eftir að ég
kynnti þig fyrir Ingibjörgu að
við Inga ættum að gifta okkur.
Þegar ég hringdi í þig á kvöldin
áður en við strákarnir í Grænni
garði ætluðum að slá garðinn
hjá þér varstu orðin verulega
spennt, því að þú ætlaðir svo
sannarlega að baka pönnukökur
fyrir okkur strákana og borða
þær með okkur daginn eftir. Ég
kom líka oft til þín á föstudög-
um eftir skóla og þá var fjör í
kotinu. Þá borðaði ég hjá þér og
talaði við þig heillengi, ég fékk
að grínast í þér og þú varst
ennþá verri tilbaka. Oft eftir að
við höfðum talað saman í nokkra
klukkutíma sagðir þú: „Þú hefur
bara ekkert skemmtilegt að
segja!“ Þá fór ég að skellihlæja
og upplifði mikla gleði.
Undir lok ævi þinnar, sem því
miður var of stutt, fórum við
nokkrum sinnum á kaffihús
saman. Þar áttum við mjög góð-
ar stundir. Þú sagðir mér sögur
frá Patreksfirði og öllum þínum
utanlandsferðum sem eru svo
gífurlega margar. Mér fannst
líka mjög fyndið að þú hafðir
það fyrir sið að hringja í Björgu
og hún í þig ef þið voruð á ein-
hverjum skrítnum stöðum eins
og t.d. uppi á fjallinu í Aust-
urríki.
Þegar við vorum röltandi
niðri í bæ eða bara á röltinu ein-
hvers staðar var mjög líklegt að
þú rækist á einhvern sem þú
þekktir, enda mjög vinsæl kona.
Ég tók eftir því að ef ég sagðist
vera dóttursonur þinn hækkaði
ég strax verulega í áliti hjá eldri
konum. T.d. á Ingibjörg ættir að
rekja til Patró og þegar við fór-
um saman í fjölskylduveislur
hafði það spurst út að ég væri
barnabarn Erlu Gísla og þá var
maður strax dottinn í lukkupott-
inn. Brynja Halldórsdóttir er
amma Ingibjargar og svo
skemmtilega vildi til að hún bjó
í sama húsi og þú á Patró. Þeg-
ar Daði bróðir hennar kom einu
sinni í fjölskylduboð krafðist
hann þess að fá að tala við mig
um ömmu mína og afa, sá gat
nú heldur betur sagt sögur af
ykkur.
Amma mín, það hryggir mig
mjög að þú sért farin frá okkur
og myndi ég svo sannarlega
óska þess að þú værir ekki búin
að geispa golunni eins og þú
fíflaðist svo oft með.
Kær kveðja, þinn dóttursonur
og brandaranemandi,
Jónas Guðmundsson.
Hún var fyrir margra hluta
sakir sérstök manneskja hún
Erla systir mín. Dugnaðarfork-
ur sem ekki veigraði sér við að
takast á við verkefni sem öðrum
hefði vaxið í augum. Það var
einhver smitandi kraftur í henni
og ekki hennar stíll að mikla
hlutina fyrir sér heldur var
gengið í verkin af ákveðni og
festu, ævinlega með bros á vör.
Alltaf var hún reiðubúin að
leiðbeina og leggja lið ef til
hennar var leitað, úrræðagóð og
ósérhlífin.
Erla lagði alla tíð mikla rækt
við fjölskylduna og frændgarð-
inn allan.
Hún lagði mikið upp úr því að
kalla stórfjölskylduna saman við
ýmis tækifæri. Heimili hennar
var ætíð öllum opið og þar var
ekki komið að tómum kofunum.
Hún bar á borð það besta sem
til var af einstakri gestrisni, ein-
lægri ástúð og mikilli hjarta-
hlýju. Þess fengum við öll að
njóta í ríkum mæli.
Við eigum dýrmætar minn-
ingar frá verðmætri samveru
með Erlu, bæði á heimaslóðum
og einnig á ferðalögum erlendis.
Alltaf var hún glaðvær og
gefandi, sífellt að hlúa að, hvetja
og hrósa.
Erla var mikil handverks-
kona, listræn og skapandi. Þau
eru ófá vettlingaplöggin, ættuð
úr hennar ranni, sem yljað hafa
köldum fingrum í nöprum næð-
ingi.
Það er stórt skarð höggvið í
stórfjölskyldugarðinn við fráfall
Erlu.
Við eigum eftir að sakna þess
að eiga með henni gæðastundir.
Stundir þar sem lífsviðhorf
hennar spegluðust í einlægri
velvild, auðmýkt, umburðarlyndi
og drengskap en jafnframt
kjarki og víðsýni. Það mátti svo
margt af henni læra og ævin-
lega fórum við ríkari af hennar
fundi.
Við kveðjum yndislega systur
og frænku með þakklæti í hjarta
fyrir að hafa orðið þeirrar gæfu
aðnjótandi að verða samferða
slíkri gæðakonu.
Elsku Lovísa, Systa, Pétur,
Gísli, Ágústa, Hlynur og fjöl-
skyldur. Við sendum ykkur okk-
ar innilegustu samúðarkveðjur.
Björn Gíslason, börn,
tengdabörn og barna-
börn.
Elsku yndislega frænka mín.
Mér finnst erfitt að hugsa til
þess að þú sért búin að kveðja
þennan heim. Mikið verður þín
sárt saknað. Ég þekki fáar kon-
ur sem eru jafn sterkar og dug-
legar og þú. Alltaf jákvæð, kát,
hlý og gefandi. Ég vildi óska
þess að samverustundirnar
hefðu getað verið fleiri á síðustu
árum. Ég var búin að hlakka
mikið til að hitta þig oftar nú
þegar allt stefnir í að við flytj-
um aftur til Íslands eftir fjölda
ára búsetu erlendis. Ég er þó
þakklát fyrir þær stundir sem
við áttum saman, þakklát fyrir
þá umhyggjusemi, ást og hlýju
sem þú hefur alltaf sýnt mér og
síðar fjölskyldu minni. Við eig-
um yndislegar minningar um
konu sem okkur þótti öllum svo
vænt um og vissum að við gæt-
um alltaf leitað til, enda hjarta-
lagið einstakt. Það var ekki ann-
að hægt en að líða vel í návist
þinni. Það fundu börnin mín vel,
sérstaklega Sigríður sem var
svo lánsöm að fá að kynnast þér
betur en litli Benedikt Björn.
Það er alltaf sérstök stund á jól-
unum þegar við tökum upp alla
fallegu englana og hjörtun sem
þú bjóst til og hefur gefið okkur
í gegnum árin. Við komum alltaf
til með að minnast þín og þessi
stund verður nú enn dýrmætari
en áður. Það sama gildir um
hlýju og fallegu vettlingana sem
börnin setja upp á morgnana,
ballettstytturnar og handmáluðu
balletttöskuna sem þú komst
með frá Vín og sem Sigríði þyk-
ir svo vænt um og á alltaf eftir
að fylgja ballerínunni – þannig
mætti lengi telja. Alltaf að
hugsa til okkar og umhyggjan
svo fyrirfinnanleg.
Elsku góða frænka mín, ég
geymi einnig í hjartanu allar
dýrmætu minningarnar frá sam-
verustundum þegar ég var lítil
stelpa. Þú ert búin að vera til
staðar frá því að ég man eftir
mér og mér hefur alltaf þótt svo
mikið til þín koma. Við systkinin
höfum alltaf fengið að vera hluti
af þinni nánustu fjölskyldu. Það
var okkur öllum afar verðmætt
og fyrir það verð ég ævinlega
þakklát.
Ég votta yndislegu börnunum
þínum, barnabörnum og barna-
barnabörnum samúð mína og
bið góðan Guð að gefa þeim
styrk. Það er huggun harmi
gegn að vita að vel verður tekið
á móti þér af fjölskyldu og ást-
vinum sem bíða á nýjum stað.
Hvíl í friði, elsku frænka.
Anna Lilja Björnsdóttir.
HINSTA KVEÐJA
Elsku Erla amma. Það
er sárt að hugsa til þess að
þú hafir þurft að yfirgefa
okkur svona skyndilega.
Við huggum okkur við allar
yndislegu minningarnar
sem við munum geyma í
hjörtum okkar. Vertu sæl
og góða ferð inn í eilífðina,
elsku Erla amma, knúsaðu
afa og pabba fast frá okkur,
þín er sárt saknað.
Stefán Breiðfjörð,
Sigrún Erna og
Tristan Breiðfjörð.
Fleiri minningargreinar
um Erlu Dalrós Gísladóttur
bíða birtingar og munu birt-
ast í blaðinu næstu daga.
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2015
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi
liður, „Senda inn minning-
argrein,“ valinn úr felliglugg-
anum. Einnig er hægt að slá inn
slóðina www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar en
á hádegi tveimur virkum dögum
fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum.
Minningargreinar
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
Davíð
Ósvaldsson
útfararstjóri
551 3485 - www.udo.is
Óli Pétur
Friðþjófsson
útfararstjóri
Elskuleg móðir mín,
UNNUR JÓNSDÓTTIR,
lést á elliheimilinu Grund fimmtudaginn
5. febrúar.
Útför hennar verður gerð frá Hallgrímskirkju
miðvikudaginn 18. febrúar kl. 13.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á starf Sambands
íslenskra kristniboðsfélaga, sími 533 4900, eða sumarstarf
KFUK í Vindáshlíð, sími 588 8899.
.
Margrét Þorkelsdóttir.
Okkar ástkæra
JÓNÍNA RAGNARSDÓTTIR,
Ráðagerði,
Seltjarnarnesi,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 10. febrúar.
Útför hennar verður gerð frá
Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 17. febrúar og hefst athöfnin
kl. 13.
.
Finnur Jónsson,
Grétar Elías Finnsson, Hildur Elín Geirsdóttir,
Freyja Finnsdóttir, Henrik Andersen,
Arnar, Sara Natalía, Stefán Breki,
Finnur Kári, Balder og August Jón.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JARÞRÚÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
Hólabergi 78,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
aðfaranótt sunnudagsins 8. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn
19. febrúar kl. 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
líknarstofnanir.
.
Ragnhildur R. Fossheim, Terje Fossheim,
Bjarnfríður K.R. Holla, Geir Holla,
Snæbjörn Reynisson, Dórothea H. Jóhannsdóttir,
Guðrún H. Reynisdóttir, Guðmundur Hermannsson,
Hjörtur Reynisson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
VALGERÐUR KRISTJÁNSDÓTTIR,
Gnoðarvogi 16,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
föstudaginn 6. febrúar.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 19. febrúar
klukkan 13.
.
Guðrún Kristjánsdóttir,
Elfa Hörgdal Stefánsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SUMARLIÐI JENS SUMARLIÐASON,
Eirhömrum 2,
Mosfellsbæ,
lést á líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 5. febrúar.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 16. febrúar
kl. 13. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á styrktarsjóð FSMA á Íslandi,
0315-26-002380, kt. 650902-2380.
.
Ingibjörg Bjarnadóttir,
Bjarni Jensson, Elínborg Guðný Theodórs,
Arnar Jensson, Ragna Björk Þorvaldsdóttir,
Sólveig Jensdóttir, Gunnlaugur Bjarnason,
Sigrún Jensdóttir, Birgir Ingvason,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku faðir okkar, tengdafaðir og afi,
HELGI ELLERT JÓNATANSSON,
varð bráðkvaddur á heimili sínu
þriðjudaginn 27. janúar.
Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 16. febrúar kl. 15.
.
Einar Helgason,
Linda Björg Helgadóttir, Stefán Jökull Jakobsson,
Sara Ósk Stefánsdóttir og Heba Sól Stefánsdóttir.
GUNNAR SIGURÐSSON,
Dvergabakka 12,
áður bóndi á Ljótsstöðum 1,
Vopnafirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Mörk
mánudaginn 9. febrúar.
Útför hans fer fram frá Langholtskirkju föstudaginn 20. febrúar
kl. 13. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Blindrafélag
Íslands eða hjúkrunarheimilið Mörk.
.
Aðstandendur.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐLAUGUR VEIGAR EYJÓLFSSON,
lést á Landspítalanum mánudaginn
2. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Fyrir hönd aðstandenda,
.
Guðlaugur, Margrét,
Gísli,
Guðlaug, Jan-Anders,
Gunnþór,
Gabríel
og barnabörn.