Morgunblaðið - 24.02.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. FEBRÚAR 2015
565 6000 / somi.is
Salatið okkar
er eitthvað
ofan á brauð.
Áratuga reynsla af samlokugerð skilar sér til þín
í ferskara og ljúffengara salati. Þú getur treyst
á ferskt og vel útilátið gæðahráefni sem breytir
venjulegri brauðsneið í veislu.
Rafrænum íbúakosningum um
verkefni í hverfum Reykjavíkur
lýkur á miðnætti í kvöld. Að sögn
upplýsingastjóra borgarinnar hafa
fleiri kosið í kosningunum í ár held-
ur en á síðasta ári. Þetta er í fjórða
skiptið sem íbúakosningar fara
fram í borginni.
„Þetta er búið að ganga vel og
kjörsókn er nokkuð góð. Ætli það
séu ekki um 4.000 manns búnir að
kjósa, sem er meira en í fyrra og
við erum ánægð með það,“ segir
Bjarni Brynjólfsson, upplýs-
ingastjóri Reykjavíkurborgar.
Um 4.000 hafa kos-
ið um betri hverfi
Eimskipafélag Íslands styrkir stöðu
sína í vöruhúsastarfsemi í Dan-
mörku í kjölfar samstarfs við
Damco, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá félaginu. Eim-
skip tekur yfir 15.500 fermetra
vöruhús Damco.
„Eimskip starfrækir 6.000 fm
vöruhús í Danmörku við hlið
Damco og verður hið nýja vöruhús
samtals 21.500 fermetrar. Eftir
breytinguna verður Eimskip
stærsti rekstraraðili í alhliða vöru-
húsaþjónustu í höfninni í Árósum.
Yfir 600.000 gámar fara um höfn-
ina í Árósum á ári hverju og gerir
það hana að næststærstu höfn
Skandinavíu. Vöruhúsið er staðsett
innan gámahafnar með beint að-
gengi að höfninni,“ segir ennfremur
í tilkynningunni.
Árleg velta í Danmörku talin
aukast um 3 milljónir evra
Damco hefur starfrækt vöruhúsið
í Árósum síðan árið 2003 og er bent
á í tilkynningu Eimskips að aðal-
áhersla hefur verið á hýsingu,
pökkun, stórflutninga, umskipun,
gámahleðslu, dreifingu, vörutínslu
og merkingu.
Í kjölfar breytinganna verða
starfsmenn Eimskips í vöruhúsinu
45 talsins og er áætlað að árleg
velta Eimskips í Danmörku muni
aukast um þrjár milljónir evra.
Haft er eftir Sigurði Orra Jóns-
syni, framkvæmdastjóra Eimskips í
Danmörku, að frá og með 1. mars
verður vöruhúsið hluti af starfsemi
Eimskips, bæði gámahleðslustöðin
og vöruhúsastarfsemin. Kaupin
muni án efa styrkja starfsemi fé-
lagsins í Árósum enn frekar og eru
þau liður í frekari vexti Eimskips,
bæði í Danmörku og á Norður-
Atlantshafi.
Eimskip og
Damco taka
upp samstarf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lagarfoss Eimskip tekur yfir vöru-
húsastarfsemi Damco í Árósum.
Sjóvá höfðu í gær borist alls 74 til-
kynningar frá áramótum um tjón
vegna vega á höfuðborgarsvæðinu.
Sjóvá, sem tryggir stærstu veghald-
ara á höfuðborgarsvæðinu: Vega-
gerðina, Hafnarfjarðabæ og
Reykjavíkurborg, bárust 13 tjóna-
tilkynningar í gær. Af þessum 74
hafði þremur verið vísað til úr-
skurðarnefndar.
Skortur á viðhaldi og slæm tíð að
undanförnu hefur leitt af sér
óvenjuslæmt ástand vega á
höfuðborgarsvæðinu. Stórar, djúpar
holur er að finna víða sem hafa
valdið tjónum á bílum og dregið úr
umferðaröryggi.
Eftir hrun hafa verið notaðar
ódýrari lausnir til að viðhalda slit-
lagi en einnig að setja bætur og
fylla í hjólför í stað þess að leggja
nýjar yfirlagnir. Slæm tíð að undan-
förnu hefur haft mjög slæm áhrif á
vegina þar sem miklar leysingar
hafa fylgt kuldaköstum.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri segir slæmt ástand vega í
borginni ekki vera afleiðingu rangr-
ar forgangsröðunar á undanförnum
árum. Borgin hefur að undanförnu
eytt tugum milljóna í gatnabreyt-
ingar sem misvel mæltust fyrir.
Hann segir að rekja megi þessar
holur til veikari fjárhagsstöðu og
vill hann að stærri hlutur bensín- og
bifreiðagjalda sé nýttur til viðhalds
og uppbyggingar vega á höfuðborg-
arsvæðinu. „Okkar sérfræðingum
sýnist að ástandið sé óvenjuslæmt
og meira af holum. Það hefur verið
verra tíðarfar og allt slíkt hefur
áhrif.
Það er hinsvegar umhugsunar-
vert að það fé sem ökumenn greiða
í gegnum bensín- og olíugjald renn-
ur allt í ríkissjóð. Það fer að litlu
leyti í viðhald á höfuðborgarsvæð-
inu þar sem langflestir keyra. 2/3 af
bensíngjaldinu falla til hér í borg-
inni og eru greiddir hér en mjög lít-
ið brot skilar sér aftur til viðhalds
eða nýframkvæmda,“ segir hann.
Þá segir Dagur að fjárráð borgar-
innar hafi dregist verulega saman
um síðan í hruninu og því hafi þurft
að spara – líka í götunum.
Borgin notast við ódýrari lausnir í slitlagi
Skortur á viðhaldi og slæm tíð hefur leitt af sér óvenjuslæmt ástand vega á höfuðborgarsvæðinu
Morgunblaðið/Júlíus
Hola Eftir hrun hafa verið notaðar
ódýrari lausnir til að viðhalda slitlagi.