Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1961, Page 11

Húnavaka - 01.05.1961, Page 11
HALLDÓR JÓNSSON, LeysingjastöSum: Húnavaka — hugsjónir Ungmennafélagshreyfingin er flutt frá Noregi á fyrsta áratug yfir- standandi aldar og gróðursett í íslcnzkan jarðveg. Fátækir að fjármunum, en ríkir að hugsjónum og eldlegum áhuga réðust æskumenn landsins að verkefnunum með kjörorðið „íslandi allt“ að einkunn. Fullveldi landsins, skógrækt, bindindisstarfsemi og margt fleira, höfðu félögin á stefnuskrá sinni og getur enginn sagt til fulls, hve ríkan þátt þessi merkilegi félagsskapur átti í þróun atvinnu- og félagsmála og fullveldistökunni 1918. Fyrst og fremst með beinni starfsemi sinni og þó ef til vill umfram allt með mótun og þroska einstakra félaga sinna. — Það eitt er víst að hann var stór. Umrót stríðsáranna 1914—1918 og eftirstríðstíminn með sínum fylgikvillum, dró mjög úr þrótti og starfsemi ungmennafélaganna, enda var þá einu markinu náð — fullveldinu 1918 — og ýmiss konar félags- og starfsmál tóku hugina fasta, eins og oft vill verða á mótunarskeiði ríkja. Fór þá svo að sumt af félögunum lagðist niður, meðal annars Samband Húnvetnskra Ungmennafélaga hið eldra. Árið 1935 er svo núverandi Ungmennasamband stofnað. Höfðu þá á undangengnum árum verið endurreist sum þau félög er í dái höfðu legið og ný stofnuð á einstaka stað. Ný alda hugsjóna var risin. Margt var rætt og víða við komið á félaga- og héraðsfundum. Fjárskortur hamlaði þó öllum framkvæmd- um og fyrstu árin fóru að vonum mjög til þess að treysta skipulagið og félagsböndin. Fljótlega var þó komið á héraðssamkomum 17. júní og þar höfð íþróttakeppni. Héraðsþing voru háð árlega, og þar rædd og reynt að þoka áfram áhugamálum sambandsins. Eitt af því, sem fljótt bar á góma á héraðsþingum, var hvort eigi væri

x

Húnavaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.