Húnavaka - 01.05.1983, Page 235
HÚNAVAKA
233
ára starf. Nýr formaður var kjör-
inn úr hópi skólanefndarmanna
Stefán Á. Jónsson, Kagaðarhóli.
Byggðaþróun:
Ekki er auðvelt að segja til um
hvernig byggðaþróun að Húna-
völlum verður háttað á komandi
árum. Trúlegt er, að einhver
byggðakjarni myndist í tengslum
við skólann á næstu áratugum,
eins og víða annars staðar hefur
gerst við hliðstæðar aðstæður.
Hreppsnefnd Torfalækjarhrepps
hefur látið skipuleggja lítið
byggðahverfi austan skólalóðar-
innar, norðan Reykjabrautar.
Þar verður hægt að byggja 16
íbúðarhús og 6 iðnaðarhús, ef á
þarf að halda. Skipulagsupp-
dráttur var lagður fyrir skóla-
nefndina í sumar, sem lagði fram
sínar ábendingar varðandi fyrir-
hugaðan byggðakjarna en var að
öðru leyti sammála byggðaþró-
uninni.
EggertJ. Levy,
Húnavöllum.
FRÁ VÖKUKONUM.
Að venju var félagsstarfið fjöl-
þætt á árinu og ýmsum verk-
efnum sinnt. Félagsfundir voru
haldnir mánaðarlega 1. þriðju-
dag hvers mánaðar, og jafnan
ýmislegt til fræðslu og skemmt-
unar. M.a. leiðbeindi Ingunn
Gísladóttir í hjálp í viðlögum og
Vigdís Ágústsdóttir um gerð
aðventu- og jólaskreytinga. Ein
félagskona sótti námskeið í þjóð-
búningasaum hjá Heimilisiðnað-
arskólanum og önnur kenndi
nælonblómagerð. Árlega er mikið
unnið í garðinum við Blöndu.
Félagið sá um opið hús fyrir
aldraða í janúar og hið árlega
þorrablót. Eigendur og sjómenn
rækjubátsins Húnavíkur gáfu
afla úr einum róðri og unnu
félagskonur aflann með góðri að-
stoð starfsmanna Særúnar, auk
eiginmanna og barna.
Veitingar voru seldar í nokkur
skipti til fjáröflunar, og var þar
stærsta verkefnið matur í þrjá
daga fyrir unglinga sem tóku þátt
í íslandsmóti í frjálsum íþróttum
á Blönduósi.
Viðgerð á félagsheimilinu fór
fram í sumar og vegna eignar-
aðildar greiddi Vaka 45.000
krónur á árinu í þann kostnað og
keypti að auki 220 bollapör og
teskeiðar, uppþvottavél, eldavél
og stóran pott í eldhús hússins.
Björgunarsveitinni Blöndu og
Hjálparsveit skáta voru veittar
43.300 krónur til kaupa á fjar-
skiptatækjum.
Aðrir aðilar, sem nutu stuðn-
ings félagsins með fjárframlögum
voru: Heimilisiðnaðarsafnið á
Blönduósi, Náttúrulækningahæli
Akureyrar, Gigtlækningafélag ís-