Húnavaka - 01.05.2005, Page 205
II LJ N AVA K A
203
bekkjar sýndu söngleikinn Fame
undir leikstjórn Maríu Hebu Þor-
kelsdóttur, leikkonu. Sýningin var
afar vel heppnuð, svo vel að for-
eldrar og nemendur ákváðu að
setja sýninguna upp í Félagsheimil-
inu á Blönduósi á milli jóla og
nýárs. Söngleikurinn var sýndur í
Félagsheimilinu að kvöldi þriðju-
dagsins 28. desember við húsfylli
og vakti sýningin rnikla lukku. Við
skulum grípa hér niður í frétt
Morgunblaðsins frá 31. desember
2004. „Krakkarnir í 10. bekk
Hnnavallaskóla í Austur-Húna-
vatnssýslu gerðu sér lítið fyrir og
fluttu söngleikinn Fame (Frægð) í
Félagsheimilinu á Blönduósi fyrir
fullu húsi síðastliðið þriðjudags-
kvöld. A annan tug leikara kom
fram í sýningunni. Þennan þekkta
söngleik höfðu krakkarnir flutt á
árshátíð Húnavallaskóla fyrr í vet-
ur. Til að hita upp fyrir söngleik-
inn lék skólalúðrasveit A.-Húnvetn-
inga nokkur vel valin lög, dans-
hópurinn Superstar sýndi frum-
samin dans og hljómsveitin
Mömmustrákar lék nokkur lög. Er
nánast óþarFi að segja frá því að
undirtektir voru mjög góðar. Leik-
stjóri þessarar uppfærslu var María
Heba Þorkelsdóttir. I stuttu máli
sagt tókst þessi uppákoma krakk-
anna á Húnavöllum í Félagsheimil-
inu á Blönduósi afar vel og héldu
gesdr að skemmtun lokinni glaðir
í bragði út í húnvetnskt kvöldið,
sáttir við krakkana og tilbúnir að
glíma \'ið hálku hversdagsins."
Föstudaginn 17. desembervoru
litlu jólin þar sem nemendur yngri
bekkja sýndu hæfileika sína og
hvers af þeim má vænta í framtíð-
inni. Hátíðinni lauk með hefð-
bundnu diskóteki fyrir eldri nem-
endur og að því loknu var jólafríið
hafið.
Þorkell Ingimarsson, skólastjóri.
STARFSEMI SÝSLUMANNSINS Á
BLÖNDUÓSI.
Regluleg starfsemi embættisins var
með hefðbundnum hætti. Rekst-
urskostnaður embættisins, þ.m.t.
rekstur lögreglunnar, nam 101
millj. kr. og var hann innan fjár-
lagaheimilda líkt og undanfarin ár.
Starfsmenn sýsluskrifstofunnar
voru sex auk sýslumanns og lög-
lærðs fulltrúa. I ágúst kom dl starfa
Björn Hrafnkelsson, lögfræðingur
en Vilhjálmur H. Vilhjálmsson,
lögfræðingur, sem starfað hafði hjá
embættinu frá júní 2002, lét af
störfum og hélt til Italíu. Fastráðn-
ir lögreglumenn í fullu starfi voru
sjö og gengnar þrjár tveggja
manna vaktir auk yfirlögreglu-
þjóns en jafnframt voru fimm hér-
aðslögreglumenn til taks í
dlfallandi verkefni.
Segja má að búið sé að færa og
staðfesta í Fasteignaskrá ríkisins /
Fasteignamati ríkisins, jarðir og
aðrar fasteignir sem greindar eru í
þinglýsingabókum embættisins en
efdr er að „slípa saman“ þær eignir
sem skráðar hafa verið hjá Fast-
eignamad ríkisins í gegnum tíðina
en sem láðst hefur að stofna jafn-
framt í veðmálabókum embættis-
ins.
Eins og menn muna þá voru
miklar steypuskemmdir komnar í