Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Blaðsíða 12
12 Fréttir 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað
S
jö sækjast eftir embætti
tveggja dómara við Hæsta-
rétt Íslands sem auglýst
voru í byrjun júní. Sam-
kvæmt lögum um skipan
dómara skal skipa sérstaka dóm-
nefnd sem fer yfir hæfi umsækj-
enda. Nefndinni er ætlað að skila
innanríkisráðuneytinu umsögn um
hæfi þeirra sem sækjast eftir starf-
inu.
Árið 2010 var lögum um skip-
an dómara breytt og vægi nefndar-
innar aukið. Þá kveða lögin á um
að ráðherra dómsmála verði bund-
inn af niðurstöðu dómnefndar, en
þó geti hann vikið frá henni með
því að Alþingi samþykki tillögu hans
um að skipa í embætti annan hæf-
an umsækjanda en dómnefnd hefur
talið standa fremst. DV hefur safnað
saman upplýsingum um umsækj-
endurna sjö en skipað verður í emb-
ættið frá og með 1. október. Hjónin
Arnfríður Einarsdóttir héraðsdóm-
ari og Brynjar Níelsson hæstarétt-
arlögmaður eru bæði á meðal um-
sækjenda. Ljóst er að ekki er hægt
að skipa þau bæði sem dómara við
Hæstarétt Íslands, því lögum sam-
kvæmt mega hjón ekki vera samtím-
is dómarar við sama rétt.
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
B
rynjar Níelsson hefur starf-
að við lögfræði í um 20 ár. Þar
til nýlega var hann formað-
ur Lögmannafélags Íslands.
Hann er giftur Arnfríði Einarsdóttur
héraðsdómara og sama eiga þau
tvo syni. Brynjar var kjörinn for-
maður lögmannafélagsins árið 2010
með 75 prósentum atkvæða. „Mér
hefur fundist undanfarin miss-
eri bæði stjórnmálamenn og fjöl-
miðlamenn, sem og margir aðrir,
þjarma að réttarríkinu svo það hef-
ur bognað og gæti jafnvel brotnað,“
sagði Brynjar við Lögmannablað-
ið stuttu eftir formannskjörið sem
ástæðu fyrir því að hann ákvað að
bjóða fram krafta sína. Í sama við-
tali sagði Brynjar þættina Réttur er
settur, vera áhrifavald í lífi sínu. „Ég
sá að lagadeildin byrjaði ekki fyrr
en 1. október, þar voru engin jóla-
eða miðsvetrarpróf og bara einhver
þrjú próf að vori. Unga manninum
þótti þetta henta sér mjög vel enda
frekar latur á þessum árum. Þetta
er nú ástæðan fyrir því að laganám-
ið varð fyrir valinu. Að vísu hafði ég
haft gaman af því að horfa á þættina
„Réttur er settur“ sem voru vinsælir
sjónvarpsþættir á þeim tíma.“
Hann útskrifaðist með stúd-
entspróf frá Menntaskólanum
í Hamrahlíð og fór þaðan í lög-
fræði við Háskóla Íslands það-
an sem hann lauk embættisprófi
árið 1986. Afstaða Brynjars og op-
inber ummæli hafa oftar en ekki
bakað honum vandræði. Hann er
afar umdeildur til að mynda vegna
framgöngu sinnar og ummæla um
nektarstaði. Brynjar hefur gjarnan
tekið upp hanskann fyrir rekstrar-
aðila slíkra staða. Raunar var Brynj-
ar lögmaður Ásgeirs Þórs Davíðs-
sonar heitins, betur þekkts sem
Geira á Goldfinger. Annar fræg-
ur viðskiptavinur Brynjars er Jón
Gerald Sullenberger en Brynjar
var lögmaður hans í Baugsmálinu
svokallaða. Jón Gerald var dæmd-
ur í þriggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að útbúa ranga reikn-
inga.
Brynjar skrifar pistla reglulega
á vefsíðunni pressan.is en í einum
slíkum gagnrýndi hann aðgerð-
ir Stóru systur sem meðal annars
gagnrýndi linkind lögregluyfir-
valda í málum þar sem grunur er
um mansal. Brynjar gagnrýndi að-
ferðafræði hópsins og sagði hann
taka lögin í sínar hendur.
Brynjar Níelsson varði tvo í hópi
níumenninganna svokölluðu sem
ákærðir voru fyrir að hafa í heim-
ildarleysi ruðst inn í Alþingishús-
ið 8. desember 2008. Níumenn-
ingarnir voru ákærðir á grundvelli
100. greinar hegningarlaganna
en það hafði síðast verið gert eftir
mótmælin á Austurvelli þegar Ís-
land gekk í Atlantshafsbandalagið
í mars 1949.
Í nýlegri nærmynd Íslands í dag
á Stöð 2 um Brynjar er honum lýst
sem ljúfmenni sem þoli illa rugl og
óréttlæti. „Er einn fárra sem þora
að segja það sem flestir hugsa en
þora ekki að tala um vegna hræðslu
við að reita litla háværa hópa sem
telja sig hafa einu réttu skoðunina
til reiði.“ Þar var klæðaburði hans
lýst sem einum helsta ókostinum
við hann. Brynjar klæðir sig nefni-
lega eins og kommúnisti ef marka
má nærmynd Stöðvar 2. Klæðn-
aður Brynjars virðist endurtek-
ið til umræðu meðal lögfræðinga
og kom hann meðal annars inn á
kommúnistaklæðnaðinn í þakkar-
ræðu eftir að hann var kjörinn for-
maður Lögmannafélagsins.
Brynjar Níelsson
Þa vilja í Hæstarétt
Fæðingarár: 1960
Starf: Hæstaréttarlögmaður
Stjórnmálatengsl: Fékk
frelsisverðlaun SUS, kennd við
Kjartan Gunnarsson, árið 2010.
B
enedikt var skipaður héraðs-
dómari án sætis árið 2001 af
Sólveigu Pétursdóttur, þá-
verandi dómsmálaráðherra.
Fyrsta starfsstöð Benedikts var við
Héraðsdóm Vesturlands. Ögmund-
ur Jónasson innanríkisráðherra
setti Benedikt í embætti dómara við
Hæstarétt Íslands frá og með 1. nóv-
ember 2011 til 31. desember 2014.
Benedikt tók sæti í landsdómi í fjar-
veru Bjargar Thorarensen prófessors
sem telst vanhæf sökum þess að hún
er gift Markúsi Sigurbjörnssyni, for-
seta landsdóms. Hann er einn þeirra
dómara sem vildu sýkna Geir H. Ha-
arde, fyrrverandi forsætisráðherra, af
öllum ákæruliðum.
Benedikt útskrifaðist úr lögfræði
frá Háskóla Íslands árið 1990. Hann
starfaði sem skrifstofustjóri laga-
skrifstofu dóms- og kirkjumála-
ráðuneytis frá árinu 1997 til 2001 í
ráðherratíð Þorsteins Pálssonar og
Davíðs Oddssonar. Árið 2004 skip-
aði Þorgerður Katrín Gunnarsdótt-
ir, þá menntamálaráðherra og vara-
formaður, Benedikt sem formann
útvarpsréttarnefndar, forvera fjöl-
miðlanefndar.
Fjallað var um bíóferð Bene-
dikts og Karls Axelssonar, verjanda
Baldurs Guðlaugssonar fyrrverandi
ráðuneytisstjóra í fjármálaráðu-
neytinu, sem seinna var kallaður
sem vitni fyrir landsdóm. Benedikt
var einn dómara í máli Baldurs, þess
sama og Karl var verjandi í. Hæsti-
réttur staðfesti dóm héraðsdóms yfir
Baldri um miðjan febrúar.
Benedikt sat í stjórn Heimdall-
ar, félags ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík á árunum 1983 til 1987.
Þá sat Benedikt í stjórn Sambands
ungra sjálfstæðismanna á árunum
1989 til 1991. Með honum í stjórn var
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins.
Benedikt Bogason
Fæðingarár: 1965
Starf: Hæstaréttardómari
Stjórnmálatengsl: Hefur
gegnt trúnaðarstörfum fyrir
Sjálfstæðisflokkinn
I
ngveldur er formaður Dómara-
félags Íslands en hún náði nokk-
uð óvænt kjöri síðari hluta ársins
2009. Áralöng hefð hafði skap-
ast í félaginu fyrir kosningu varafor-
manns sem formanns með einföldu
lófaklappi þegar sitjandi formað-
ur hafði tilkynnt um ætlun sína að
hætta. Á aðalfundi félagsins árið
2009 bauð Ingveldur sig fram gegn
tillögu aðalfundar um sama hátt. Þá
var lagt til að kosningin yrði leyni-
leg. Benedikt Bogason sem er nú
meðal umsækjenda um starf hæsta-
réttardómara var á þeim tíma vara-
formaður. Svo fór að Ingveldur var
kjörin formaður félagsins sem talar
opinberlega fyrir hönd dómara.
Ingveldur hefur talað fyrir stofn-
un sérstaks millidómstigs hér á
landi sem hefði þá tekið á auknu
álagi vegna málarekstrar fyrir
landsdómi sem og fjölda mála sem
fyrirsjáanlegt er að verði fylgifisk-
ur rannsóknar sérstaks saksóknara.
Þá gagnrýndi Ingveldur úrskurð
kjararáðs um laun dómara á síð-
asta ári. Kjararáð hafði þá ákveðið
launahækkun til handa hæstarétt-
ardómurum og dómurum Héraðs-
dóms Reykjavíkur. Krafðist Ingveld-
ur að hækkunin næði jafnt yfir alla
dómara.
Ingveldur skrifaði grein í Lög-
mannablaðið í fyrra þar sem hún
hvatti lögmenn til að fara varlega
í gagnrýni á dómstóla. Hún sagði
gagnrýni ávallt af hinu góða væri
hún málefnaleg. „Erfiðara er fyrir
dómara að skilja ummæli sem lög-
menn láta falla á opinberum vett-
vangi um dómarana sjálfa og eru
svo miskunnarlaus og óvægin að
eftir er tekið.“ Þá sagði hún dómur-
um oft gerðar upp skoðanir og að
þeir væru gerðir að blóraböggli.
„Þeim eru gerðar upp stjórnmála-
legar skoðanir, þeir eru á ómálefna-
legan hátt dregnir í dilka og berlega
gefið í skyn að þeir séu ekki starfi
sínu vaxnir.“
Ingveldur Þ. Einarsdóttir
Fæðingarár: 1959
Starf: Héraðsdómari
Stjórnmálatengsl: Óljós
m
y
n
d
m
o
r
g
u
n
b
la
ð
ið