Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Side 16
F
iskmarkaður Suðurnesja
fékk alls 532 milljónir króna
af skuldum sínum afskrif
aðar árið 2010, að því er
fram kemur í ársreikningi
félagsins fyrir sama ár. Þar kemur
einnig fram að í lok árs 2010 hafi
fyrirtækið gert samning við Lands
bankann (NBI) um niðurfellingu á
328 milljónum króna af skuldum
félagsins við bankann.
Ekki kemur fram hvaða lána
stofn anir það voru sem afskrif
uðu hinar 204 milljónirnar en vit
að er að Fiskmarkaðurinn var einn
af stærstu viðskiptavinum SpKef
áður en ríkið tók bankann yfir. Í
ársreikningi fyrir árið 2010 kemur
fram að skuldir félagsins við SpKef
hafi numið rúmlega 1.500 millj
ónum í lok árs 2010. Heimildir DV
herma að frekari afskriftir á skuld
um fyrirtækisins séu fyrirhugaðar,
en unnið er að endurfjármögnun
fyrirtækisins.
Fiskmarkaður Suðurnesja er með
höfuðstöðvar í Sandgerði en er jafn
framt með útstöðvar í Grindavík,
Hafnarfirði og á Ísafirði og Höfn í
Hornafirði. Starfsmenn fyrirtækisins
eru um þrjátíu talsins að því er fram
kemur á heimasíðu fyrirtækisins.
Unnið að endurfjármögnun
„SpKef afskrifaði engar skuldir hjá
Fiskmarkaði Suðurnesja, hann
hafði aldrei þrek til þess,“ segir Ell
ert Eiríksson, stjórnarmaður í Fisk
markaði Suðurnesja og fyrrverandi
bæjarstjóri í samtali við DV. Hann
segir að það muni ráðast á næstu
vikum hvort félagið fái frekari af
skriftir: „Þetta mál er ekki búið,
og það er bara verið að vinna að
endurfjármögnun félagsins núna.“
Ellert segist ekki geta tjáð sig frekar
um málið að svo stöddu en ítrekar
að á næstu vikum ráðist fjárhags
staða félagsins.
Í gögnum um félagið segir að
Fiskmarkaður Suðurnesja hf. sé
þjónustufyrirtæki sem sjái um að
bjóða upp fisk ásamt annarri þjón
ustu við útgerðir og fiskkaupendur.
Á meðal eigenda félagsins er út
gerðarfélagið Saltver ehf. sem ver
ið hefur til rannsóknar hjá Fiski
stofu síðasta eina og hálfa árið
vegna meints kvótasvindls. DV
hefur greint frá því að Saltver sem
er í eigu Þorsteins Erlingssonar,
fyrrverandi bæjarfulltrúa, hefur
verið sakað opinberlega um skipu
lega og afar grófa löndun, þar sem
tugum ef ekki hundruðum tonna,
hafi verið landað fram hjá vigt.
Þorsteinn var stjórnarformaður
Reykjaneshafnar á sama tíma og
meint löndunarsvindl fyrirtækis
ins á að hafa viðgengist við höfn
ina. Þorsteinn situr í dag í stjórn
Fiskimarkaðarins, en hann var
stjórnarformaður SpKef á sama
tíma og Fiskmarkaðurinn var einn
stærsti viðskiptavinur bankans.
Samið við SpKef
Auk Saltvers eru stærstu eigendur
Fiskmarkaðs Suðurnesja þeir Berg
þór Baldvinsson, Einar Þórarinn
Magnússon og einkahlutafélagið
Stekkur þú ehf. Skuldir Fiskmark
aðarins voru árið 2009 rúmir 2,3
milljarðar en ári síðar voru skuld
ir félagsins komnar niður í rúman
1,7 milljarð króna. Þá kemur fram
að fyrirtækið hafi greitt niður lang
tímaskuldir upp á um 100 milljón
ir króna en það sem eftir stendur,
532 milljónir króna, voru afskrif
aðar. Í ársreikningi félagsins fyrir
árið 2010 segir að þann 27. desem
ber hafi tekist að gera samning við
Landsbankann um afskriftir á alls
328 milljóna króna skuld félags
ins við bankann gegn því að félag
ið greiddi um 115 milljónir króna í
afborganir og vexti.
Þá kom einnig fram í ársreikn
ingnum að samningaviðræður við
SpKef stæðu yfir: „Samningavið
ræður við SPKEF sparisjóð standa
yfir varðandi áframhaldandi
endurskipulagningu á skulda
stöðu félagsins en skuldir félags
ins við SPKEF sparisjóð nema um
1.515,3 milljónum króna í árs
lok og þar af eru um 106 milljónir
gjaldfallnar afborganir og vextir.“
Ellert staðfestir að niðurstöðu úr
skuldauppgjöri fyrirtækisins sé að
vænta á næstu vikum. „Við erum
að vinna í þessu máli, það er ekki
alveg búið en það verður ekkert
leyndarmál þegar að því kemur.“
Hann bendir á að stór hluti skulda
félagsins hafi verið í erlendri mynt
og því hafi þurft að endurreikna
sum lánin í kjölfar gengislána
dóms Hæstaréttar fyrr á árinu.
Töpuðu á stofnfjárbréfum
„Miðað við framangreindar upp
lýsingar um mjög erfiða fjárhags
stöðu félagsins verður erfiðleikum
háð að endurfjármagna gjaldfalln
ar skuldir ásamt vaxtagreiðslum
næstu 12 mánaða. Framtíð félags
ins er háð því að samningar ná
ist við SpKef sparisjóð um skuld
breytingar og niðurfærslu skulda,
og því er óvissa um rekstrarhæfi
þess en ársreikningurinn er gerður
miðað við að forsendan um rekstr
arhæfi sé til staðar.“ Þetta er á
meðal þess sem kemur fram í skýr
ingum með ársreikningi Fiskmark
aðs Suðurnesja fyrir árið 2010.
Þá segir ennfremur að skuld
ir félagsins hafi hækkað mikið við
gengishrun íslensku krónunnar á
árinu 2008. „Stærstur hluti skulda
félagsins myndaðist vegna kaupa
á stofnfjárbréfum í Sparisjóðn
um í Keflavík. Umrædd stofnfjár
bréf voru færð niður í núll á árinu
2009. Eftir stóðu því skuldir vegna
þessara kaupa sem höfðu hækk
að verulega við gengisfall íslensku
krónunnar á árinu 2008.“
Áfram í LÍÚ
Eftirlitsaðilar á vegum Fiskistofu
heimsóttu útgerðarfélagið Salt
ver í Reykjanesbæ þann 1. apr
íl í fyrra í þeim tilgangi að afla
gagna fyrir rannsókn stofnunar
innar á fyrirtækinu. Þorsteinn Er
lingsson vildi ekki tjá sig um málið
þegar DV hafði samband við hann
á sínum tíma. „Talaðu bara sjálf
ur við Fiskistofu og vertu blessað
ur,“ svaraði hann aðspurður hvort
hann þyrfti að greiða fjársektir og
hversu háar þær væru. Í kjölfarið
skellti hann á blaðamann.
Þorsteinn hefur lengi verið í
forystusveit LÍÚ og er einn að
almanna í stjórn, en málið hafði
ekki áhrif á setu hans í stjórn LÍÚ.
„Menn eiga að starfa eftir sett
um reglum, hann [Þorsteinn Er
lingsson] fær engan afslátt af því
þó að hann sé í stjórn LÍÚ,“ sagði
Adolf Guðmundsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs
manna, í samtali við DV á sínum
tíma. Hann sagði að ekki hefði ver
ið rætt um það innan stjórnar LÍÚ
að víkja Þorsteini úr stjórn á með
an meint löndunarsvindl Saltvers
væri til rannsóknar hjá Fiskistofu.
„Við höfum ekki húsbóndavald
yfir mönnum, hann var kosinn á
aðalfundi í stjórn félagsins.“
16 Fréttir 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað
Sjö þúsund milljónir afskrifaðar
Í fimm hundruð blaðsíðna skýrslu Price Waterhouse Coopers um starfshætti SpKef, sem unnin
var að beiðni Fjármálaeftirlitsins og opinberuð var nú í sumar, má finna ýmsar krassandi upplýs-
ingar um sjóðinn.
Skýrslan fjallar um síðustu tvö ár sjóðsins, eða þar til Fjármálaeftirlitið tók hann yfir, í apríl
2010. Um fimm mánuði tók að vinna skýrsluna, en henni var skilað til FME í fyrravor. Þar kemur
meðal annars fram að Sparisjóðurinn færði niður útlán um rúmar átján þúsund milljónir króna og
afskrifaði sjö þúsund milljónir króna síðustu tvö árin. Starfsmönnum, stjórnendum og félögum
þeim tengdum voru lánaðar háar fjárhæðir án trygginga eða viðskiptalegra forsendna.
Þá kemur meðal annars fram í skýrslunni að þáverandi sparisjóðsstjóri, Geirmundur
Kristinsson, hafi verið því sem næst einráður, og virðist stjórn sjóðsins og lánanefnd hafa verið
nánast upp á punt. Geirmundur hafði heimild til að veita lán sem voru allt að fimmtán prósent
af eiginfjárgrunni sjóðsins, og dæmi eru um að hann hafi samþykkt lánveitingar sem lánanefnd
hafði hafnað. Engar takmarkanir voru í útlánareglum um lánveitingar til aðila með neikvætt
eigið fé eða til þeirra sem höfðu fengið lán afskrifuð.
Fiskmarkaður slapp
við hálFan milljarð
n Fiskmarkaður Suðurnesja hefur fengið 532 milljónir króna af skuldum sínum afskrifaðar
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Einn eigenda Þorsteinn
Erlingsson er einn eigenda Fisk-
markaðs Suðurnesja í gegnum
fyrirtækið Saltver ehf. sem nú er
til rannsóknar hjá Fiskistofu fyrir
stórfellt kvótasvindl.
„Stærstur hluti skulda
félagsins myndaðist
vegna kaupa á stofnfjárbréf-
um í Sparisjóðnum í Keflavík
Lánadrottinn SpKef lánaði
Fiskmarkaði Suðurnesja
hundruð milljóna króna.