Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Síða 20
Taska kostar árslaun í landinu
n Kim Jong-Un gerir vel við nýja eiginkonu
Á
meðan milljónir íbúa Norður-
Kóreu líða gríðarlegan skort og
eiga vart í sig né á virðist Kim
Jong-Un leiðtoga þjóðarinnar
ekki muna um að splæsa ríkulega á
nýbakaða eiginkonu sína.
Í nýlegri heimsókn á herstöð náðist
mynd af hjónakornunum þar sem þau
sátu í forsælunni og börðu hernað-
aræfingar svokallaðrar hersveitar
númer 552 augum og líkaði vel.
Nágrannar þeirra í suðri virðast nú
hafa lagst í að kryfja þessa mynd sem
stjórnvöld í norðri sendu út í gegnum
ríkisfjölmiðil sinn enda má sjá að Ri
Sol-Ju er með dýrindis handtösku sér
við hlið í sætinu.
Og niðurstaðan er sú að þarna
sé leiðtogafrúin með lúxusveski frá
Christian Dior sem þykir hin mesta
munaðarvara í hinum vestræna
heimi. En töskur sem þessar, að því
gefnu að þær séu ekta, geta kostað
sem nemur allt að 180 þúsund krón-
um. Það er svipuð upphæð og meðal-
verkamaðurinn í hinu fátæka ríki
Kim Jong-Un getur vænst að þéna á
heilu ári!
En slíkur samanburður hefur
sjaldnast truflað einræðisherra Norð-
ur-Kóreu sem lifað hafa í vellysting-
um um áratugaskeið meðan 24 millj-
ónir þegna þeirra lifa í sárri fátækt.
mikael@dv.is
20 Erlent 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað
Þ
etta er eins og vatnaveröld,
sagði Benito Ramos, yfir-
maður almannavarna Fil-
ippseyja, um ástandið í höf-
uðborginni Maníla. Minnst
níu eru látnir eftir að linnulausar
rigningar kaffærðu borgina með til-
heyrandi aurskriðum sem engu hlífa
sem á vegi þeirra verður. Yfirvöld
áætla að allt að 60 prósent höfuð-
borgarinnar séu bókstaflega á kafi.
Samgöngur hafa lamast og tugþús-
undir þurft að flýja heimili sín en
björgunarsveitir hafa unnið myrkr-
anna á milli alla vikuna. Flóðin eru
þau verstu síðan árið 2009 þegar
hundruð létu lífið í skyndiflóðum.
Ástandið nú er afleiðing monsún-
rigninga sem orðið hafa til þess að
helstu stíflur og ár í nágrenni borg-
arinnar flæddu yfir bakka sína. Með-
fylgjandi er brot af því besta sem
ljósmyndarar Reuters-fréttastofunn-
ar hafa náð á mynd af raunum Fil-
ippseyinga.
n Neyðarástand í Maníla n Rúmlega helmingur höfuðborgarinnar á kafi
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Rýmt með bátum Björgunar-
menn draga gúmmíbát fullan af
fólki sem neyddist til að yfirgefa
heimili sín í Marikina í Maníla.
Tugþúsundir þurftu að gera slíkt
hið sama í höfuðborginni.
MYNDIR: REUTERS
Enginn hunda-
vaðsháttur
Þessi maður er með
forgangsmálin á
hreinu og bjargar
hundum sínum af
húsþaki, þangað
sem þeir flúðu
vatnsflauminn.
Ungbarni
bjargað Björg-
unarsveitarmenn
koma fjölskyldu til
hjálpar sem þurfti
að flýja heimili sitt
með nýfætt barn.
Við slíkar aðstæður
er mikilvægt að hafa
styrkar hendur.
Biðin langa Mínúturnar eru langar að
líða þegar þú situr í glugga sem er eini
þurri staðurinn í húsinu og bíður eftir
aðstoð eins og þessi maður í Quezon í
Maníla.
HÖFUÐBORG
ORÐIN VATNAVERÖLD
Árslaun verkamanns Það tæki verka-
mann í Norður-Kóreu heilt ár að vinna
sér inn fyrir svona Christian Dior-veski.
Enginn myndi þó láta sig dreyma um að
kaupa slíka munaðarvöru þar.
MYND: REUTERS
Gríðarlegt tap
hjá Murdoch
Skilnaður er milljarðamæring-
um sjaldnast ódýr, hvort sem er
í einkalífi eða rekstri fyrirtækja.
Rupert Murdoch og News Corp-
veldi hans fær nú að reyna það því
samsteypan skilaði stjarnfræði-
legu tapi á síðasta ársfjórðungi. 1,6
milljörðum Bandaríkjadala. Er tap-
ið að mestu rakið til áforma um að
skilja arðbæran afþreyingarhluta
fyrirtækisins frá útgáfuhluta þess
sem átt hefur í miklum vandræð-
um. Að auki hefur símaskandallinn
í Bretlandi reynst News Corp dýr
og málskostnaður vegna dóms-
mála honum tengdur er kominn
í 200 milljónir dala. Þá var mikið
tekjuhögg fyrir samsteypuna að
leggja niður News of the World í
tengslum við þann skandal.
Bestur í að
senda SMS
Hinn 17 ára gamli Austin Wi-
erschke er hraðasti smáskilaboða-
skrifari í Bandaríkjunum eftir
að hafa unnið National Texting
Competition sem haldin var á
Times Square í vikunni. Þar tók-
ust á tíu hröðustu smáskilaboða-
skrifarar víðs vegar að úr Banda-
ríkjunum og stóð Austin uppi sem
sigurvegari. Er hann 50 þúsund
dölum ríkari fyrir vikið. Þetta er
annað árið í röð sem hann vinnur
keppnina. „Þetta er ótrúleg tilfinn-
ing,“ er haft eftir sigurvegaranum
sem ætlar að nota peningana til
að fjármagna háskólagöngu sína.
Keppnisfyrirkomulagið er þannig
að bundið er fyrir augu keppenda
og hraði, nákvæmni og fingrafimi
þeirra mæld.
Hitlers-vín
veldur usla
Bandaríski lögmaðurinn Micha-
el Hirsch frá Philadelphiu átti ekki
til orð þegar hann var ásamt fjöl-
skyldu sinni á ferðalagi í ítalska
Garda og fann í verslun einni vín-
flöskur til sölu sem skreyttar voru
myndum af Adolf Hitler. Þá var
að finna ýmiss konar nasistaáróð-
ur og slagorð á flöskunum. Fór
þetta mjög fyrir brjóstið á Hirsch
sem fór með málið í þarlenda fjöl-
miðla og segir í breska blaðinu
Telegraph að málið, sem litið sé
alvarlegum augum, sé nú komið
inn á borð saksóknara á svæðinu.