Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Síða 26
26 Viðtal 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað
V
ala Grand hefur verið áber-
andi í íslenskum fjölmiðl-
um undanfarin ár. Hún
hefur rætt opinskátt um
kynáttunarvanda sinn en
Vala fæddist karlmaður og gekkst
undir kynleiðréttingaraðgerð fyrir
um tveimur árum síðan. Margir hafa
skoðun á Völu Grand, hvort sem fólk
þekkir hana eða ekki. Því hún er ör,
opin og segir nákvæmlega það sem
henni býr í brjósti.
Fljótlega eftir aðgerðina dró Vala
sig út úr sviðsljósinu og hefur lítið
til hennar spurst undanfarið ár.
Ástæðan er sú að Vala kynntist stóru
ástinni skömmu eftir aðgerð, Eyjólfi,
en hann á fjögur börn úr fyrra sam-
bandi. Vala dró sig úr sviðsljósinu
þeirra vegna.
Vala lauk nýverið við seinni að-
gerðina sem fylgir kynleiðréttingu
og er hæst ánægð með útkom-
una. Næst á dagskrá hjá Völu er
brjóstastækkun en hún segist ótt-
ast þá aðgerð meira en sjálfa kyn-
leiðréttinguna. Þegar blaðamaður
DV hitti á Völu var hún á leiðinni á
frumsýningu myndarinnar Hrafn-
hildur en hún fjallar um íslenska
konu sem gekkst undir sams konar
aðgerð og Vala.
Gæti orðið amma
„Það er alveg ástæða fyrir því að
ég hef dregið mig út úr allri fjöl-
miðlaumfjölluninni. Mamma stjúp-
barna minna vill ekki að ég sé mjög
áberandi í fjölmiðlum, barnanna
vegna,“ segir Vala sem virðir þær ósk-
ir og ber hag barnanna fyrir brjósti.
Vala segir að henni hafi verið tekið
ótrúlega vel af börnum Eyjólfs og að
hún finni sig í stjúpmóðurhlutverk-
inu. „Þau elska mig alveg ofboðslega
mikið. Þau eru mjög dugleg og hlýð-
in en börn eru samt alltaf börn og
það geta alveg verið læti í þeim. Þau
eru mjög orkumikil. Þau eru fimm,
sjö og níu ára og svo á Eyjólfur son
sem er tvítugur. Þau eru öll rosalega
klár og gáfuð. Til dæmis kann sá sem
er fimm ára fimm sinnum töfluna,“
segir Vala sem er greinilega stolt af
krökkunum. „Svo er stóri strákurinn
sem er tvítugur kominn með kær-
ustu og er í sambúð. Kærastan hans
er þremur árum yngri en ég. Svo ég
gæti alveg farið að verða amma á
næstu árum, spáðu í það!“
Barnanna vegna
Vala segir að til að byrja með hafi
barnsmóðir Eyjólfs ekki tekið vel í
samband þeirra. Það hafi þó lagast
með tímanum: „Fyrst voru mikil læti
og hún hafði rosalega mikið á móti
mér. Það er alltaf erfitt að sjá fyrrver-
andi maka sinn byrja með einhverj-
um öðrum og sérstaklega ef það eru
börn í spilinu. En núna í dag þegar
ég hef sýnt henni að ég er ekki að
fara neitt, þá hefur þetta lagast mik-
ið. Í dag tölum við reglulega saman
vegna barnanna og reynum að gera
allt í sátt og samlyndi.“
Vala er alsæl í þessu nýja hlutverki
en hún segir mikilvægt hvað tengda-
foreldrarnir hafi tekið sér vel. „Ég
er ótrúlega heppin með tengdafor-
eldra,“ segir Vala „Tengdamóðir mín
er æðisleg! Hún er meira að segja að
fara að passa börnin fyrir mig á eft-
ir meðan ég fer á frumsýninguna.
Ég á líka tvo yndislega tengdafeður
þannig að ég er mjög rík,“ bætir Vala
við en foreldrar Eyjólfs skildu fyrir þó
nokkrum árum síðan.
Vala setur sig í annað sæti
Líkt og áður sagði hefur Vala rætt sín
málefni opinskátt en hún átti upp-
haflega að vera viðfangsefni myndar-
innar Hrafnhildur sem Ragnhildur
Steinunn Jónsdóttir gerði. Vala og
Ragnhildur voru hins vegar sammála
um það að Vala væri ekki þessi hefð-
bundna transmanneskja sem að öllu
jöfnu kærir sig ekki um athygli. Vala
benti Ragnhildi því á Hrafnhildi.
„Ég sá í viðtali við Hrafnhildi um
daginn að hana langaði til að eignast
börn eins og auðvitað mörgum sem
hafa farið í svona aðgerð. Þó það sé
ekki líkamlega hægt. Það má segja að
ég sé komin með allan pakkann. Ég
er komin með manninn, börnin og
húsið, ég hef allt! Við erum samt ekki
komin þangað í sambandinu að við
ætlum að fara að ættleiða. Það má
ættleiða til 45 ára og kallinn minn er
38 ára svo við höfum nægan tíma til
að ræða það.“
Vala segist heldur ekki tilbú-
in alveg strax til þess að bæta barni
við fjölskylduna. „Ég er manneskja
sem var barnlaus en núna á ég þrjú
lítil stjúpbörn. Svo það er ákveðin
breyting. Það getur verið erfitt fyr-
ir manneskju sem er vön því að vera
alltaf númer eitt að vera allt í einu
númer tvö. Mig langar svo að koma
því á framfæri fyrir þá sem eru að
fara að verða stjúpforeldrar að leyfa
ykkur aldrei, aldrei að líða illa yfir því
að þið séuð númer tvö. Það er alltaf
þannig að þegar börnin eru hjá okk-
ur, þá eru þau númer eitt. Það er
endalaust mikilvægt að vera alltaf
góður við börnin og börnin eru guðs
blessun. Ég þurfti sjálf að læra þetta
og það var erfitt og tók mig nokkra
mánuði og ég er ennþá að læra
þetta,“ segir Vala og slær svo á létta
strengi: „Ef Vala Grand getur sett sig í
annað sæti, þá geta það allir!“
„Ástin mín, þú ert sú eina
sanna“
Vala er nýkomin úr seinni aðgerðinni
sem fylgir kynleiðréttingunni og er
hún hæstánægð með útkomuna. „Ég
fór í aðgerðina í júlí og þetta er að-
gerð þar sem klárað er að móta kyn-
færin. Það sést ekkert núna að ég hafi
verið með typpi. Nú er ég komin með
innri barma.“
Þegar Vala var á sjúkrahúsinu
sendi Eyjólfur henni bréf sem hitti
hana beint í hjartastað. „Það hljóm-
ar svona: Elsku litla hjartað mitt. Ég
óska þér þess að þér líði sem best og
náir fullum bata fljótt og um leið vil
ég óska þér til hamingju með tveggja
ára afmælið þitt. Þú kannski fæddist
ekki eins og hinar stelpurnar en ástin
mín, þú ert sú eina sanna, svo lang-
flottust bæði á líkama og sál. Til að
halda upp á baráttuna sem vannst
loks fyrir tveimur árum ætla ég að
gefa þér þennan dag sem sérstak-
an auka afmælisdag á hverju ári svo
lengi sem ég lifi. Til hamingju með
daginn elsku dúllan mín, þinn fram-
tíðarmaður Eyjólfur Svanur.“
C, D eða DD
En þó Vala hafi lokið kynleið-
réttingunni segir hún ferlinu ekki
lokið enn. Eitt atriði sé eftir og það
hræðist hún mest af öllu. Vala er á
leiðinni í brjóstastækkun. „Í nóvem-
ber fer ég í brjóstastækkun, Eyjólf-
ur vill hafa mig með risastór brjóst!“
segir Vala og skellihlær. „Nei, nei.
Hann hefur samt alveg sagt að hann
vilji hafa konuna sína með stór
brjóst svo ég hugsa að ég fari í skála-
stærð C, D eða jafnvel DD. Ég er
samt skíthrædd við þessa brjóstaað-
gerð, miklu hræddari við brjóstaað-
gerðina heldur en ég var við pjöllu-
aðgerðina,“ segir Vala hreinskilin.
Sexí gefur öryggi
Almennt séð segir Vala að umræð-
an um kynleiðréttingar hafi opn-
ast mjög mikið síðan hún fór í að-
gerðina fyrir tveimur árum. Hún
segir að ein ástæða þess að hún var
mjög áberandi þegar hún fór í kyn-
leiðréttinguna hafi verið að gera
þessa umræðu almennari. „Ég hef
sjálf vitað að ég er kona frá því að ég
var um fjögurra ára gömul og aldrei
efast um það. Ég fékk svo gott upp-
eldi að ég var nógu sterkur einstak-
lingur til að ganga í gegnum þetta og
hef aldrei séð eftir neinu.“ En ekki eru
allir jafn öryggir með sig og Vala og
því mikilvæg þróun sem hefur átt sér
stað. Til að mynda hefur Hrafnhildur,
viðfangsefni samnefndu heimilda-
myndarinnar, sagt að fyrir hana hafi
aðeins verið tvær leiðir í boði: kyn-
leiðrétting eða sjálfsvíg.
En aukinni umræðu fylgja líka
neikvæðar hliðar og hún getur oft
og tíðum verið óvægin. Vala hefur
sjálf þurft að lesa ótrúlegustu hluti
um sjálfa sig og undrast hversu
hatursfullt fólk getur verið. „Það er
fullt af fólki sem er alltaf að skrifa
eitthvað um mig á síðum eins og
bland.is. Fólk sem felur sig bara á
bakvið tölvuna og myndi aldrei geta
sagt þessa hluti við mig augliti til
auglitis. Það sem hefur reynst mér
best gagnvart öllu því neikvæða
sem ég hef lesið um mig er að brosa
Kidda Svarfdal
kidda@dv.is
Viðtal
Ennþá að læra á
móðurhlutverkið
Vala Grand lauk fyrir skömmu seinni aðgerðinni sem fylgir kynleiðréttingu.
Hún er yfir sig ástfangin og hefur dregið sig út úr sviðsljósinu – stjúpbarna sinna
vegna. Vala segir börnin vera númer eitt en hún hafi þurft að læra það af því að
hún var vön að vera í fyrsta sæti. Vala lætur ósmekkleg ummæli um sig á netinu
ekki trufla sig og dansar fyrir framan spegil til að auka sjálfstraustið. Næst á dag-
skrá hjá Völu er að koma sér fyrir á nýja heimilinu og að fara í brjóstastækkun.
Vala og Eyjólfur Eru ástfangin upp fyrir haus.
Á leið í brjóstastækkun „Ég hugsa að ég fari í skálastærð C, D eða jafnvel DD.“
„Ef Vala
Grand
getur sett sig í
annað sæti, þá
geta það allir!