Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2012, Qupperneq 36
16 ára þegar hug-
myndin kviknaði
36 10.–12. ágúst 2012 Helgarblað
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Hvað er að
gerast?
Laugardagur
Föstudagur
Sunnudagur
11
ágú
10
ágú
12
ágú
Tony Bennett í Hörpu
Hinn eini sanni Tony Bennett lýkur
hljómleikaferð sinni um Evrópu
með tónleikum í Hörpu í kvöld. Þar
kemur hann fram ásamt hljóm-
sveit sinni í Eldborgarsal Hörpu.
Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og
miðaverð er kr. 8.900–16.900.
Gítar og fiðla
Joaquín Páll Palomares og
Ögmundur Þór Jóhannesson halda
tónleika í Salnum í Kópavogi í
kvöld. Tónleikarnir eru hluti af tón-
listarhátíð unga fólksins. Miðaverð
er 2.500 krónur og tónleikarnir
hefjast klukkan 20.
Gleðigangan
Gleðiganga Hinsegin daga
hefst klukkan 14. Lagt er af stað
stundvíslega í volduga gleði-
göngu frá BSÍ og verður gengið
eftir Sóleyjargötu, Fríkirkjuvegi
og Lækjargötu og að Arnarhóli.
Hátíðardagskrá hefst svo við
Arnarhól klukkan 15:30. Hinsegin
hátíðardansleikur verður svo
haldinn á Broadway um kvöldið
og hefst klukkan 23.
Rockabilly stuð
Kanadíska rokkabilly-stjarnan
Bloodshot Bill heldur tónleika á
Gamla Gauknum í kvöld. Hann
spilar hrátt og fjörlegt rokka-
billy og það eru Langi Seli og
Skuggarnir sjá um að hita upp fyrir
hann. Tónleikarnir hefjast klukkan
22 og er miðaverð 1.700 krónur.
Kammertónleikar
kennara
Kammertónleikar kennara eru
fastur liður í dagskrá Tónlist-
arhátíðar unga fólksins, en á
tónleikunum munu kennarar
á námskeiðum hátíðarinnar
taka höndum saman og leika
fjölbreytta kammertónlist. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 20 og er
miðaverð 2.500 krónur.
Regnbogahátíð
Hinsegin dagar halda Regnboga-
hátíð fjölskyldunnar og hefst hún
í Viðey klukkan 14:30. Bátsferðir
verða á klukkutíma fresti frá 11:15.
H
ugmyndin kviknaði
fyrir mörgum árum.
Ég var 16 ára gömul
og var að þjálfa lít-
inn strák í fimleikum
sem hét Valur. Hann bað mig
alltaf um að kalla sig Völu,“
segir Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir sjónvarps- og kvik-
myndagerðarkona um upp-
hafið að myndinni Hrafnhild-
ur sem frumsýnd var í vikunni.
Ragnhildur vísar þarna
í Völu Grand sem upphaf-
lega átti að vera viðfangsefni
myndarinnar en það var
einmit Vala sem benti Ragn-
hildi á Hrafnhildi Guðmunds-
dóttur sem áður hét Halldór
Hrafn.
Myndin segir sögu Hrafn-
hildar fyrir og eftir kynleið-
réttingaraðgerð en hún sagði
í samtali við DV.is í vikunni að
það erfiðasta sem sér þótti við
að horfa á myndina var að sjá
sig ræða um sjálfsvígshugsan-
irnar. Hrafnhildur var komin á
þann stað í lífinu að velja ann-
að hvort að fara í aðgerð eða
svipta sig lífi. Eftir 26 ára þögn
steig hún fram og sagði fjöl-
skyldu sinni að hún væri ekki
stelpa heldur strákur. Í kjöl-
farið leitaði hún sér aðstoðar
sálfræðinga og geðlækna, hóf
kynleiðréttingarferli og fann
hamingjuna á ný.
Ragnhildur vann myndina
ásamt unnusta sínum, knatt-
spyrnumanninum Hauki Inga
Guðmundssyni, en hann er
sálfræðimenntaður og hafði
líkt og Ragnhildur mikinn
áhuga á viðfangsefninu.
Einfalt að spegla sig í
Hrafnhildi
„Áhuginn kviknaði þarna
þegar ég hitti Völu fyrst en
þá vissi ég ekkert um trans-
mál eða um heimildamynda-
gerð. Leiðir okkar Völu Grand
lágu síðan aftur saman fyrir
fimm árum og þá datt mér í
hug að áhugavert væri að gera
heimildamynd um kynleið-
réttingarferlið á Íslandi. Við
Haukur Ingi hófumst strax
handa við að afla okkur upp-
lýsinga og lesa okkur til um
transmál. Eftir því sem við
fræddumst meira um þessi
mál komumst við að því í sam-
ráði við Völu að hún væri ef til
vill ekki rétti einstaklingurinn
fyrir myndina. Vala er opin og
ófeimin persóna sem ræður
vel við sviðsljósið. Einstak-
lingar með kynáttunarvanda
eru oftast fremur hlédrægir og
vilja falla inn í samfélagið og
láta lítið á sér bera. Við vorum
sammála um að sagan yrði að
gefa raunsæja mynd og Vala
kynnti okkur fyrir Hrafnhildi.“
Ragnhildur segir að þegar
upp var staðið hafi það verið
rétt ákvörðun að segja sögu
Hrafnhildar því hennar saga
gefur raunhæfari innsýn inn
í þennan heim og þetta ferli.
„Hrafnhildur er þannig mann-
eskja að það er mjög einfalt
að spegla sig í henni. Og ég
held að fólk eigi auðvelt með
að sjá hana fyrir sér sem bara
frænku, vinkonu eða ættingja.“
Skilningur heima fyrir
Landsmenn þekkja Ragn-
hildi vel af skjánum en hún
hefur starfað við hina ýmsu
dagskrár gerð hjá RÚV undan-
farin ár. Það var því nokk-
uð strembið verk að vinna
myndina ásamt því að vera í
fullu starfi og að sinna móð-
urhlutverkinu. Það kom sér
því vel að vinna með unnust-
anum.
„Þetta er þannig verk-
efni að ég hef þurft að vinna
þetta algjörlega um helgar og
n Hálfnuð með aðra mynd n Gaman að vinna með unnustanum
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
Viðtal Ragnhildur Steinunn
Þjálfaði lítinn strák sem
hét Valur en vildi láta
kalla sig Völu.
mynd ElEna SigtRyggSSon
„Bókina ættu allir
að lesa …“
Ég er á lífi, pabbi
Siri Mari Seim Sønsteli,
Erik Sønsteli
„Endalok á
epískum þríleik“
The Dark Knight Rises
Christopher Nolan