Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Blaðsíða 62
Björgvin Halldórsson sagði Veðurguðunum bransasögur á æfingu: „Hann var eins og 25 ára“ „Við erum búnir að vera saman í þessari hljómsveit frá því við vor- um kannski 18 ára gamlir. Það var frábært að fá Björgvin á hljómsveit- aræfingu,“ segir tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson eða Ingó veður- guð, eins og hann er kallaður. Veðurguðirnir munu spila á Írsk- um dögum á Akranesi um helgina. Þeir troða upp á laugardagskvöld- ið á Lopapeysunni, árlegu dans- iballi á hátíðinni. Björgvin Hall- dórsson kemur til með að troða upp með Veðurguðunum. Ingó segir að þótt Veðurguðirnir hafi spilað með mörgum hafi þeir aldrei leikið með Björgvini áður. „Björgvin Halldórs- son spilar ekkert hvenær og hvar sem er. Við höfum á þessum sveita- böllum sem við höfum verið á úti um allt, tekið nokkur lög eftir Björgvin en við höfum aldrei haft hann með okk- ur. Hann kemur inn í prógrammið og syngur nokkur af lögunum sínum,“ segir Ingó spenntur og bætir við að það verði mjög skemmtilegt. Ingó sagði í stöðuuppfærslu á Facebook eftir æfingu með Björgvini að honum hafi liðið eins og hann hefði hitt Elvis Presley. „Og þrátt fyr- ir að vera sextugur sagði hann samt góðar sögur á okkar mælikvarða,“ skrifaði Ingó. Spurður út í þá sögur segir Ingó að Björgvin hafi sagt þeim ýmsar sögur af hinum og þessum týpum úr tónlistarheiminum. „Hann sagði okkur bransasögur af Geirmundi og fleirum sem ég kann ekki að nefna. Hann var eins og 25 ára og var mjög skemmtilegur,“ segir Ingó og tekur undir að margt sé hægt að læra af manni eins og Björg- vini. Ingó segist hlakka til að spila á Írskum dög- um. Veðurguð- irnir hafi nokkr- um sinnum spilað á Akranesi undanfarið og böllin þar séu jafn- an góð. Á því verði tæpast breyting að þessu sinni. baldur@dv.is 62 | Fólk 1.–3. júlí 2011 Helgarblað Troða upp saman Björgvin Halldórsson slæst í lið með Veðurguðunum á Írskum dögum. Vildi gera besta lag sögunnar „Ég vildi bara að þetta yrði besta lag sögunnar,“ sagði tónlistarmaðurinn Berndsen í viðtali við Monitor. En á fimmtudagsmorguninn var lagið Úlfur Úlfur frumflutt á Rás 2. Lagið er af- rakstur samvinnu Berndsens og Bubba Morthens en Berndsen starfar sem tæknimaður á RÚV. Þeir unnu saman við þáttinn Færibandið en útvarpsmaðurinn góðkunni Óli Palli átti frumkvæðið að samstarfi þeirra í tónlistinni. Berndsen segir að hann hafi unnið í laginu, sem er sannkallaður eitís-smellur, í heilt ár. Hann hafi viljað fullkomna verkið. spaugsamur sveinn andri „Mér skilst að ég og Dwight Yorke séum eins og svart og hvítt,“ skrifar lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson á Facebook-síðu sína og splæsir broskalli. Sveinn Andri er nýhættur með fyrirsætunni Kristrúnu Ösp Barkardóttur, eins og frægt er orðið. Þau hættu saman eftir nokkurra vikna samband. Kristrún grét það ekki lengi og flaug rakleiðis til Bretlands til að endurnýja samband sitt við knattspyrnugoðið Dwight Yorke, sem er þeldökkur. Þá staðreynd virðist Sveinn Andri láta sér í léttu rúmi liggja. „Hann gaf mér gjafir, jú, en ég vil ekki vera að monta mig. Mér líður hálf- illa með þetta, því þetta er eiginlega einum of mikið,“ segir sjónvarpskon- an Vala Grand. Á dögunum var hún í Kaupmannahöfn þar sem hún tók upp þátt fyrir Mbl-sjónvarp. Það var áður en hún færði sig yfir á Bleikt.is. Vala var stödd á fínum bar þegar hún hitti Nikolaj Voll, danskan kaup- sýslumann, sem á hugbúnaðarfyrir- tæki í Danmörku. „Við kynntumst þar og fórum að tala saman. Við höf- um verið saman í næstum því tvo mánuði,“ segir Vala. Tíu milljóna króna BMW Vala er nýkomin heim frá Danmörku þangað sem hún fór til að heimsækja Nikolaj. Þar tók hann á móti henni færandi hendi. „Þegar ég kom til landsins rétti hann mér skartgripa- skrín sem innihélt lykil að BMW. Ég hélt að í því væri skart en þetta var lykill að bíl. Hann gaf mér reyndar líka armbandsúr með demöntum þarna á flugvellinum,“ segir Vala en á henni má heyra að henni finnist nóg til um gjafirnar. „Ég er hamingjusöm en ég þarf ekki allar þessar gjafir til þess,“ segir hún. Hún segir aðspurð að bíllinn sé af gerðinni BMW 530D M5 style. Slíkur bíll er um 245 hestöfl og kostar nýr á Íslandi um tíu millj- ónir króna. Draumaprins En gjafaflóðinu var ekki lokið. Í ferð- inni gaf hann henni einnig nýj- an iPhone, iPad og tvö ilmvatns- glös. „Svona hugbúnaðarfyrirtæki eru alveg að gera sig,“ segir hún og hlær. Hún segir Nikolaj vera æðis- legan mann. „Ég hélt að þeir strák- ar sem ég hef verið að smakka hér heima væru flottir, en þeir eru ekkert í samanburði við hann. Hann er al- gjör draumaprins og rosalega góður við mig, betri en allir aðrir,“ segir hún hugfangin. Spurð hvað nú taki við hugsar Vala sig um og segir svo sposk: „Ég er reyndar að pakka niður núna.“ Spurð hvert hún sé að fara segir Vala að hún sé á leið með kærastanum í vikuferð til Spánar. „Við erum bara að fara að slappa af. Hann ætlar að taka sér frí og tæma hugann, aðeins að líta upp frá viðskiptunum,“ segir hún full til- hlökkunar. „Hann vildi bara bjóða kellingunni með,“ segir hún og hlær. Vala segir að í ágúst ætli þau til Þýskalands og í október til Parísar. „Ég verð í skólanum hér heima en við notum hvert tækifæri til að hittast.“ baldur@dv.is n Vala Grand er yfir sig ástfangin af dönskum viðskiptamanni n Hann gaf henni BMW, iPhone, iPad, ilmvatnsglös og armbandsúr n „Hann er algjör draumaprins“ Kærastinn gaf henni BMW Flottur kaggi Vala er stoltur eigandi BMW. SKJÁSKOT AF BLEIKT.IS Ástfangin Þau Vala og Nikolaj fara ekki leynt með ást sína. SKJÁSKOT AF BLEIKT.IS „Ég er hamingju- söm en ég þarf ekki allar þessar gjafir til þess.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.