Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.2012, Blaðsíða 13
Erlent 13Miðvikudagur 1. febrúar 2012 n Vill fá 123 milljónir króna fyrir sjö ára gamla bifreið Bílaverks tæði Varahlutaverslun Smurstöð Dekkjaverkstæði Bremsur, spindilkúlur, stýrisendar, o.fl., o.fl. Allar gerðir bætiefna fyrir vél, drif og gírkassa www.bilaattan.is Allt á einum stað N ýjar ljósmyndir í lit eftir einkaljósmyndara Adolfs Hitler hafa nú birst á netinu. Þær sýna íbúð Hitlers, sum- arhöll hans í Bæjaralandi og skrifstofu hans í höfuðborginni. Þær sýna glöggt hve íburðurinn í lífi hans var mikill og að ekkert var til sparað. Ljósmyndarinn sem tók myndirn- ar heitir Hugo Jaeger og er talinn hafa tekið um 2.000 litmyndir af harðstjór- anum og lífi hans, frá árinu 1936 til stríðsloka árið 1945. Hann geymdi myndirnar fyrstu árin eftir stríðið í skjalatösku. Hermennirnir völdu koníakið Sagan segir að eitt sinn hafi hann hitt bandaríska hermenn og hafi ótt- ast að verða fangelsaður og kærður fyrir vörslu mynda af jafn hötuðum manni og Hitler var. Þegar hermenn- irnir opnuðu töskuna höfðu þeir hins vegar fyrst og fremst áhuga á forláta koníaksflösku sem þar var einnig. Þeir drukku koníakið með Jaeger en skeyttu ekki um myndirnar. Síðar gróf Jaeger myndirnar í gler- krukkum skammt frá borginni Mün- chen í Þýskalandi og vitjaði þeirra reglulega, til að athuga hvort þær hefðu varðveist. Árið 1955 gróf hann myndirnar upp og kom þeim fyrir í læstu bankahólfi í heimalandinu. Það var svo árið 1965 sem Jaeger seldi myndirnar tímaritinu Life. Þær myndir sem hér birtast hafa ekki áður birst opinberlega. Þær voru teknar á árunum 1937 til 1939 en það var árið 1939 sem markviss útrýming nasista á gyðingum hófst af fullum krafti. Góður smekkur Myndirnar, sem nú hafa birst í fjöl- miðlum víða um heim, eru um tíu talsins og eru af íbúð Hitlers í Berlín, sumarhöll foringjans í Bæjaralandi og skrifstofu í höfuðborginni Berlín. Myndirnar sem hér birtast eru úr íbúðinni hans og af skrifstofunni sem hann hafði í Berlín. Svo virðist sem Hitler hafi haft góðan smekk fyrir húsgögnum og listmunum því hýbýli hans eru afar glæsileg. Hátt var til lofts og vítt til veggja. Hitler lagði ávallt mikla áherslu á umgjörð og útlit þeirra samkoma sem hann efndi til og var haldinn fullkomnunaráráttu að því leyti. Jaeger var einn fárra ljósmynd- ara á þessum tíma sem bjó yfir þeirri tækni að geta tekið myndir í lit og því varpa þessar myndir nýju ljósi á það hvernig umhorfs var á þeim stöðum þar sem Hitler dvaldi á valdatíma sín- um. LúxusLíf HitLers n Life birtir myndir sem ekki hafa áður komið fyrir augu almennings Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is Kátt á hjalla Foringinn fær sér kaffi og með því á góðri stundu með eiginkonu svæðisstjórans Alberts Forster í Berghof. Myndir HuGo JaeGer Stór skrifstofa Hér gefur að líta risastóra skrifstofu Hitlers í Berlín. Myndin er tekin í lok fjórða áratugarins. Þarna voru að líkindum teknar afdrifaríkar ákvarðanir. Falleg íbúð Þessi mynd er tekin í íbúð Hitlers og sýnir hversu mikla áherslu foringinn lagði á að hafa fínt í kringum sig dagsdaglega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.