Hagskýrslur um dómsmál - 01.01.1927, Page 28

Hagskýrslur um dómsmál - 01.01.1927, Page 28
Hagstofa Islands gefur út eftirfarandi rit: I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í sjálf- stæðum heftum og fást þau keypt einstök. Af Hagskýrslunum er út komið: Verslunarskýrslur 1912—1924. Búnaðarskýrslur 1912—1925. Alþingiskosningar 1908—1923. Fiskiskýrslur og hlunninda 1912—1925. íslensk mannanöfn 1. des. 1910. Barnafræðsla 1909—1920. Þjóðaratkvæðagreiðsla um sambandslög 1918. Mannfjöldaskýrslur 1911—1915. Skýrslur um skipakomur 1913—1917. Manntal á íslandi 1. des. 1920. II. Hagtíðindi, blað, sem kemur út mánaðarlega. Eru þar birtar ýmsar niðurstöður skýrslnanna áður en þær geta komið út í sjer- stöku hefti, svo og niðurstöður skýrslna, sem ekki þykir taka að birta í sjerstöku hefti, nema þá á fleiri ára fresti. Af Hagtíðindum er út komið: 1.—12. árg. 1916-1927. III. Starfskrá íslands. Handbók um opinberar stofnanir og starfs- menn. Kemur út á nokkurra ára fresti. Af henni er út komið eitt hefti, árið 1917. Menn geta gerst áskrifendur að ofannefndum ritum Hagstofunnar með því að snúa sjer beint til hennar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið fyrir þau öll, en 4 krónur fyrir Hagskýrslurnar eingöngu og 1 og 50 aurar fyrir Hagtíðindi eingöngu. Auk ofannefndra rita gefur Hagstofan út Manntal á íslandi árið 1703 tekið að tilhlutun Árna Magnússonar og Páls Vídalín. Er það prentað í heild sinni og er gert ráð fyrir, að eitt hefti komi út á ári. Áskrift að öðrum ritum Hagstofunnar gildir ekki fyrir þetta rit, en menn geta gerst áskrifendur að því sjerstaklega og er sú áskrift bindandi fyrir alt ritið, en einstök hefti eru ekki seld sjerstök. Andvirði hvers heftis greiðist við móttöku. Komin eru út 1.—4. hefti, samtals 20 arkir að stærð, er kosta alls 12 krónur. Byrjað var á Gullbringusýslu og er komið vestur í Barðastrandarsýslu.

x

Hagskýrslur um dómsmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hagskýrslur um dómsmál
https://timarit.is/publication/1129

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.