Lögmannablaðið - 01.03.1998, Síða 14
Markaður Evrópusam-bandsins (ESB) fyrirvöruviðskipti er gífur-
lega stór og mun vaxa enn frek-
ar ef verður af fyrirhugaðri
stækkun sambandsins í austur.
Frjáls aðgangur ríkja utan ESB að
markaði sambandsins með eigin
framleiðsluvörur er því mjög eftir-
sóknarverður og mikill efnahags-
legur styrkur. Með samningnum
um Evrópska efnahagssvæðið
(EES) er Íslandi tryggður slíkur
réttur. Landbúnaðar- og sjávaraf-
urðir eru að mestu undanskildar,
þó hagstæðir tvíhliða samningar
hafi verið gerðir við ESB um ein-
staka vöruflokka. Spurningin er
hvort ESB geti sett einhliða reglur
sem takmarki innflutning vöru-
flokka sem ekki hefur verið gert
sérstakt samkomulag um, bæði
gagnvart EES-ríkjum og öðrum ríkj-
um utan ESB. Spurningin kemur
upp á yfirborðið vegna viðskipta-
hindrana sem ESB hefur beitt ýmis
ríki á undanförnum árum og vald-
ið hafa deilum sem endað hafa
með dómsmálum, bæði innan ESB
og innan Alþjóðaviðskiptastofnun-
arinnar (World Trade Organisation
- WTO).
Framkvæmdastjórn ESB hefur
gefið út reglugerðir sem mæla fyr-
ir um takmarkanir á frjálsum vöru-
flutningum inn á markaði sam-
bandsins. Samningsríki WTO hafa
ekki verið undanþegin þessum
viðskiptahindrunum. Mest hefur
verið deilt um innflutningskvóta á
hina svokölluðu dollarabanana.
Magntakmarkanir þessar bitna að-
allega á nokkrum ríkjum Suður-
Ameríku, en útflutningur banana
hefur verið helsti tekjustofn þeirra.
Á innflutning umfram leyfilegt
magn hafa verið lagðir háir tollar.
Hefur þetta til að mynda valdið
þriðjungs hækkun á verði banana í
Þýskalandi.
Samkvæmt GATT-samkomulag-
inu, sem gildir áfram eftir stofnun
WTO og fjallar um vöruviðskipti
milli aðildarríkjanna, skulu tollar
og aðrar viðskiptahindranir, eins
og magntakmarkanir, smátt og
smátt afnumin í viðskiptum milli
aðildarríkjanna. Rúmlega 130 ríki,
þar á meðal öll aðildarríki ESB
ásamt sambandinu sjálfu, eiga að-
ild að samningum WTO. Nýjar við-
skiptahindranir má ekki taka upp í
vöruviðskiptum milli aðildarríkja
nema í sérstökum undantekningar-
tilvikum, eins og t.d. til verndar
greiðslujöfnuði ríkis gagnvart öðr-
um ríkjum eða til að styðja við
uppbyggingu innlendrar iðnaðar-
framleiðslu í þróunarríkjum.
Lögmæti þessara viðskiptahindr-
ana hefur komið til kasta dómstóla
WTO og ESB. Í nýlegum dómi
áfrýjunardómstóls WTO (AB-1997-
3 f. 9.9.1997) var komist að þeirri
niðurstöðu, að tilteknar viðskipta-
hindranir ESB væru skýlaust brot á
GATT-samkomulaginu. ESB hafði
veitt aðildarríkjum Lomé-sam-
komulagsins, sem eru fyrrum ný-
lendur aðildarríkja ESB, frjálsan að-
gang að markaði ESB fyrir banana
á meðan innfluttingur frá ríkjum
Suður-Ameríku hafði verið háður
magntakmörkunum og innflutn-
ingstollum. Þetta var talið brjóta
gegn 1. og 2. mgr. XIII. gr. GATT-
samkomulagsins, sem banna mis-
munun aðildarríkja með magntak-
mörkunum á innflutning. Þetta var
einnig talið fara í bága við bestu-
kjarareglu 1. mgr. I. gr. GATT, sem
segir til um að ef aðildarríki veiti
öðru aðildarríki ívilnun, þá eigi öll
önnur aðildarríki rétt á sömu íviln-
un. Jafnframt var talið að jafnræð-
isreglur GATT hefðu verið brotnar,
en þær er m.a. að finna í 1. mgr. I.
gr. og XIII. gr. samkomulagsins.
Evrópudómstóllinn hefur komist
að gagnstæðri niðurstöðu og að
hans mati fara ofangreindir inn-
flutningskvótar sambandsins ekki í
bága við skyldur ESB samkvæmt
GATT (mál nr. T-521/93 f.
11.12.1996 og mál nr. C-466/93 f.
9.11.1995). Dómstóllinn telur jafn-
ræðisregluna ekki brotna, því að-
stæður samningsríkja Lomé-sam-
komulagsins og annarra þriðju
ríkja séu ekki sambærilegar. Mis-
munun til hagsbóta fyrir Lomé-rík-
in sé réttlætanleg. Um sé að ræða
náið samband þessara ríkja við
ESB-ríkin og að ESB hafi rúma
heimild til að velja leiðir til að ná
markmiðum sínum, sem í þessu til-
viki séu að styðja efnahag Lomé-
ríkjanna. Rökstyður dómstóllinn
niðurstöðu sína með því að GATT-
samkomulagið sé byggt á gagn-
kvæmni að frjálsum vilja aðildar-
ríkjanna og að texti samkomulags-
ins sé frekar í formi almennra yfir-
14 Lögmannablaðið
Þórey Aðalsteinsdóttir, lögfræðingur
Skuldbindingargildi GATT-sam-
komulagsins fyrir ESB
Þórey Aðal-
steinsdóttir,
lögfræðingur. -
Höfundur er
að ljúka dokt-
orsnámi í þjóð-
arrétti frá há-
skólanum í
Heidelberg í
Þýskalandi.
. . . var komist að þeirri
niðurstöðu, að tilteknar
viðskiptahindranir ESB
væru skýlaust brot á
GATT . . .