Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 36

Lögmannablaðið - 01.09.2005, Blaðsíða 36
36 3 / 2 0 0 5 sérfræðingar um ágreininginn og allar aðstæður tengdar honum og því best til þess fallnir að finna í sameiningu lausn sem báðir eða allir aðilar geti unað við til frambúðar. Þar sem málið er jú komið fyrir dóm má segja að sáttamiðlun sé lokatækifæri aðila til að finna sjálfir lausn á ágreiningi sínum. Nefndu dómararnir að verið geti að sáttamaður, sem er einnig dómari, leggi sig meira fram við að hjálpa aðilum til að leysa málið heldur en að það fari til baka í hefðbundinn farveg. Hvað einkennir sáttamiðlun miðað við önnur form til lausnar ágreiningi? Við dómsúrlausn er horft til þess sem átti sér stað, þ.e.a.s. litið til baka og reynt að skoða staðreyndir varðandi ágrein- ingsefnið eða afla sér upplýsinga og sannana um það. Staða ágreiningsins er metin út frá þeim stað- reyndum og aðstæðum sem voru. Við sáttamiðlun er aftur á móti horft til þess hvernig málið horfir við í dag. Höfuðáhersla er lögð á það sem máli skiptir þegar litið er til framtíðar, t.d. áframhald- andi viðskiptasamband eða góð fjölskyldu- eða nágrannatengsl, og aðilar hvattir til að finna lausn með opnum hug og nýrri sýn sem þeir geta sætt sig við. Við mat á því hvaða lausn aðilar sjálfir telja viðunandi hafa þeir hliðsjón af öllum þáttum sem þeir telja máli skipta og eru réttarreglur ein- ungis einn af fleiri þáttum sem koma til álita í því sambandi. Dómstólaleiðin einkennist af formfestu þar sem aðilar standa fast á sínu og gefa ekkert eftir en sáttamiðlun er sveigjanlegt ferli og felur í sér hreyfikraft sem gefur aðilum kost á að endur- skoða afstöðu sína og gefa eftir af kröfum sínum til eigin hagsbóta. Sáttamiðlun einkennist af sam- vinnu aðila um hagsmuni en dómsmál um hvor aðilinn hafi sterkari stöðu. Dómari leggur áherslu á lagarök og sönnun um málsatvik sem máli skipta að lögum á meðan sáttamaður leggur áherslu á hagsmuni og þarfir aðila sem grundvöll sam- komulags. Hlutverk lögmanna í sáttamiðlun Hlutverk lögmanna aðila er um margt ólíkt eftir því hvort málið sætir hefðbundinni málsmeðferð fyrir dómi eða sáttamiðlun fyrir dómi. Í dómsmáli eru það lögmenn sem tala máli aðila, og fyrir þá, þannig að aðilar eru oftar en ekki óvirkir þátttak- endur málsins. Aftur á móti við sáttamiðlun fyrir dómi er hlutverk lögmannsins að vera umbjóð- anda sínum til ráðgjafar en láta hann sjálfan um að tala máli sínu. Skylda og hlutverk sáttamanns er að sjá til þess að aðilar sjálfir tali saman og finni lausn málsins, ekki með beinum atbeina lögmanns á sáttafundi né tillögum frá sáttamanni. Málþinginu lauk síðan með hlutverkaleik þátt- takenda í sáttamiðlun um ágreining vegna galla við fasteignakaup. Sáttamaður, aðilar og lögmenn aðila fengu forskrift um hlutverk sitt og mála- vexti. Veitti það fundarmönnum betri innsýn í hvernig staðið sé að sáttamiðlun fyrir dómi í fram- kvæmd. Greinarhöfundur er með diploma í sáttamiðlun frá danska lögmannafélaginu síðan 2005. 1 Orðið sáttamiðlun er í þessari grein notað um hugtakið sem mediation – mekling – rettsmekling mægling tekur til í erlendum málum. 2 Sáttamenn fyrir dómi geta bæði verið dómarar og lögmenn. Í Noregi hefur þróunin orðið sú að dómarar eru sáttamenn í sáttamiðlun fyrir dómi nema e.t.v. hjá dómstólum á landsbyggðinni. Aftur á móti hafa Danir frá upphafi tilraunarverkefnis þeirra með sáttamiðlun fyrir dómi, frá 1. mars 2003, tryggt jafnræði milli dómara og lögmanna í því efni. Fimm dómstólum var falið tilraunaverkefnið og við hvern dómstól tilnefndir 3 dómarar og 3 starfandi lögmenn sem sátta- menn. Skipta bar verkefnum jafnt milli tilnefndra sáttamanna en taka tillit til óska málsaðila ef ástæða var til. Dómsmálaráðuneytið skipulagði þá menntun sem útnefndir dómarar og lögmenn þurftu að ljúka til að gerast sáttamenn. Félög dómara og lögmanna hafa síðan haldið sömu námskeið fyrir félagsmenn sína. Lögmenn sem hafa lokið því námi fá leyfi ráðuneytisins til að taka að sér sátta- miðlun fyrir dómi.Þeir hafa myndað með sér samtök “Mediator- advokater” sem deiluaðilar geta leitað til fyrir málshöfðun og óskað eftir tilnefningu sáttamanns í sáttamiðlun. 3 Rettsmekling i praksis. Redaktör: Kristin Kjelland-Mördre. Kap. I af Knut Petterson.

x

Lögmannablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.