Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 19
FJÁRÖFLUN ÞRIÐJUDAGUR 18. NÓVEMBER 2014 Papco hefur í þrjátíu ár fram-leitt íslenskan hreinlætis-pappír fyrir íslensk heimili og fyrirtæki. Á þessum þremur ára- tugum hefur fyrirtækið lagt mikið upp úr vöruþróun og hefur að leið- arljósi að ná fram bestu gæðum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt,“ segir Halldór Steingrímsson, sölufulltrúi á styrktarsviði Papco, en hjá fyrirtækinu öllu starfa fjöru- tíu starfsmenn. Fjölbreytt fjáröflun Það er rammíslensk hefð að íþróttafélög, kórar og aðrir hópar selji klósettpappír til fjáröflun- ar og þar kemur Papco sterkt inn. „Við höfum reynt að hjálpa hópum að ná markmiðum sínum,“ segir Halldór en Papco býður upp á margt annað en pappír fyrir slík- ar fjáraflanir. „Við látum til dæmis framleiða fyrir okkur lakkrís- blöndur og erum með harðfisk, hreinlætisvörur, poka, jólapapp- ír, útikerti, kaffi og sælgæti. Þann- ig bjóðum við upp á heildarlausn til fjáröflunar enda finnst fólki oft þægilegt að fá þetta allt á einum stað,“ segir hann og bendir á að jólapappírinn og útikertin fjúki út núna fyrir jólin. Jákvæð vöruþróun Fjöldinn allur af nýjum vörum hefur bæst við vöruúrval Papco á liðnum árum. „Margar hverj- ar hafa verið þróaðar í samvinnu við viðskiptavini fyrirtækisins og höfum við lagt á það mikla áherslu að vinna með þeim til að þróa bestu vörur á markaðinn,“ segir Halldór. Ein af nýjungun- um í framleiðslu Papco er að búa til lúxuspappír. „Við erum að færa okkur meira inn á þetta svið og gerum það með vörumerkjunum Ekki bara bestir á bossann Papco hefur áratuga reynslu af fjáröflunum og býður upp á fjölbreytt vöruúrval. Allt frá salernis- og eldhúsrúllum til sniðugra heimilispakka, harðfisks, sælgætis og jólapappírs. Fjöldinn allur af nýjum vörum hefur bæst við vöruúrval Papco á liðnum árum, að sögn Halldórs Steingrímssonar hjá Papco. MYND/GVA Jólapappír og útikerti eru afar vinsæl fyrir jólin. Kynningarblað Fjóla og Fífa. Það er þriggja laga lúxuspappír. Svo fer að detta á markað frá okkur þriggja laga eld- húspappír líka,“ segir Halldór og bendir á að með þessu sé Papco að koma til móts við óskir neytenda. „Annars bjóðum við upp á fimm mismunandi gerðir af salernis- pappír og því ættu allir að finna pappír við sitt hæfi. Lúxuspapp- írinn er vinsælastur en einnig er 500 blaða pappírinn að verða mjög vinsæll. Hann er tveggja laga slétt- ur en extra mikið er á hverri rúllu. Einnig bjóðum við upp á þrjár teg- undir af eldhúsrúllum og er hálf- skipti 200 blaða pappírinn orðinn mjög vinsæll.“ Papco er með áratuga reynslu í fjáröflun. „Við getum því aðstoðað fólk við að gera fjáröflunina sem besta til að hámarka tekjumögu- leikana.“ Hægt er að nálgast styrktarbækl- ing Papco á www.papco.is. Einnig er hægt að koma við á Stórhöfða 42 eða hafa samband við sölufulltrúa í síma 587-7788.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.