Gerðir kirkjuþings - 01.12.1958, Side 2

Gerðir kirkjuþings - 01.12.1958, Side 2
2 Nánari ákvæði um fyrirkomulag biskupskosninga skal setja með reglugerð. 4* gr. Biskupar taki laun eftir 3- flokki núgildandi launalaga. Ennfremur greiðist þeim skrifstofukostnaður og annar kostnað- ur, sem ákveðinn er í fjárlögum. 5- gr. Biskup vígir eftirmann sinnj verði því ekki við komið, vígir hinn biskupinn. 6. gr. Prestastefnur verða tvær, hvor í sínu biskupsdæmi, og skulu að jafnaði haldnar árlega í Slcálholti og á Holum. Þar skulu og haldnir aðrir kirkjulegir fundir, eftir því sem ástæður þykja til. Báðir biskupar eiga sæti í Kirkjuráði og á Kirkjuþingi og skiptast þar á um forsæti. 7* gr. Báðir biskuparnir fara með sameiginleg mál kirkjunnar gagn- vart stjornvöldum og koma fram sem fulltrúar Þjoðkirlcjunnar, eftir samkomulagi sín á milli. 8. gr. Biskupar hafa skrifstofur bæði í Reykjavík og á Akureyri. Skrifstofa Skálholtsbiskups hefur jafnframt með höndum sam- eiginleg málefni biskupsdæma beggja. Skrifstofustjori hennar skal skipaður af kirkjumálaráðherra samkvæmt tillögu beggja biskupa. Nánari ákvæði um skiptingu á starfssviöi biskupa skal setja með reglugerö að fengnum tillögum beggja. 9- gr. lög þessi komi til framkvæmdar við næstu biskupaskipti, eða þá er núverandi biskup landsins veitir samþykki sitt til þess. Skal þá þegar kjdsa Hdlabiskup, en núverandi biskup verður Skálholtsbiskup. 10. gr. Með lögum þessum eru úr gildi felld lög nr. 21, 27. júní 1921 um kosningu biskupa, lög nr. 38, 30. julí 1009 um vígslu- biskupa, svo og önnur ákvæði, er í bága koma við lög þessi. II. Frumvarp um kirkjugarða, lagt fram af kirkjumálaráðherra og biskupi. Kirkjumálanefnd afgreiddi frumvarpið með nokkrum breytingum, sem þingið samþykkti, og voru þær þessar (frumvarpið sjálft lá fyrir síðasta Alþingi. 5. gr. Síðari hluti 2. málsliðs falli í burt og hljdði máls- liðurinn því svo: "Þegar girða þarf kirkjugarð, skal leita

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.