Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 20

Öldrun - 01.02.2001, Blaðsíða 20
20 ÖLDRUN – 19. ÁRG. 1. TBL. 2001 sumarið 1977. Iðulega þegar ég spurði eldra bændafólk hvar það byggi var svarið : „jeg bor på kår“ og var þá átt við að fólk byggi í sérhúsnæði á gamla sveitaheim- ilinu sínu en að aðrir væru teknir við rekstrinum. Mér varð umhugsunarefni sá merkingarmunur sem greini- lega hafði orðið þarna á sama gamla orðinu, kör, þar sem á íslensku þykir ekki fýsilegt að vera lagstur í kör en í Noregi var síður en svo neikvæður blær á orðinu. Fólkið bjó sjálfstætt út af fyrir sig en var laust frá amstri dagsins. Væntanlega hefur þetta fólk þó gripið í ein- hver verk eftir getu alveg eins og alltaf hefur verið hefð fyrir á sveitabæjum fram á þennan dag. Á Íslandi hefur sennilega verið erfiðara að byggja sérstakt húsnæði yfir fullorðið fólk vegna efnisskorts, hér máttu allir dúsa saman ungir sem aldnir og jafnvel kýrnar hafðar innan dyra til að hita upp! Í þá daga var nauðsynlegt að allir á heimilinu legðu sitt af mörkum til að draga björg í bú. Í Laxdælu er falleg frásögn af gömlum manni (kar- lægum) sem er látinn gæta kornabarns í vöggu á meðan fólkið er í heyskap. Barngæslan gengur ekki betur en svo að barnið, drengur að nafni Halldór, dettur úr vöggunni á gólfið og liggur þar ósjálfbjarga. Gamli maðurinn liggur í rúminu og getur ekkert gert nema mæla fram eftirfarandi: Liggjum báðir í lamasessi Halldór og eg, höfum engi þrek; veldur elli mér, en æska þér, þess batnar þér, en þeygi mér. Nú á dögum væri gamli maðurinn í endurhæfingu til að auka hreyfigetuna og Halldór litli ætti móður í fæðingarorlofi! Svona hafa tímarnir breyst en ekki mennirnir, þeir hafa alltaf haft sömu þörfina fyrir ástúð og umhyggju. Ég lýk þessu máli með lestri á kaflanum úr Egils sögu þar sem elli og andláti Egils er lýst. Þetta er magnaður kafli um hvernig gamall maður, farinn að kröftum er upp á aðra kominn og hæddur af vinnufólk- inu. En hann hefnir sín að síðustu með því að fela silf- urpeningana sína svo vel að þeir hafa enn ekki fundist. Ég flyt þennan kafla til að minnast föður míns Bjarna Einarssonar dr. philos., handritafræðings (1917-2000). Uppáhaldssaga hans var Egilssaga og eyddi hann stórum hluta starfsævi sinnar í að rannsaka hana og tókst rétt fyrir andlát sitt að ganga frá grundvallarút- gáfu á helstu handritagerð sögunnar og verður hún brátt gefin út af Stofnun Árna Magnússonar í Kaup- mannahöfn. Þorleifi Haukssyni og Einari Hrafnssyni vil ég þakka góðar ábendingar um efni í þetta erindi, höfundur hafði bæði gagn og gaman af því að semja það enda bara með barnaskólapróf í íslensku (!). Von- ikon) kemur ýmislegt forvitnilegt í ljós. Þar er til dæmis bent á að þótt djúphyggja sé mikils metin (og er hún oft einmitt einkenni aldraðra), þá njóta aldraðir sem slíkir ekki mikillar virðingar né umhyggju. Við getum tekið til vitnis um þetta 134. vísu Hávamála: að hárum þul hlæ þú aldregi, oft er gott það er gamlir kveða; oft úr skörpum belg skilin orð koma, þeim er hangir með hám og skollir með skrám og váfir með vilmögum. Jafnvel sá gamli víkingur Egill Skallagrímsson þurfti að þola háð og spott eldhúskvennanna þegar hann flæktist fyrir þeim við eldstæðið sjóndapur og fót- fúinn, og er þá illa komið fyrir kappanum þegar konur eru meira að segja farnar að hæðast að honum. En þess á milli er honum líka sýndur sómi opinberlega á þingi og er hann beðinn um að dæma í málum manna. Þar kemur sjálfsagt löng og mikil lífsreynsla honum að gagni og sú djúphyggja sem henni fylgir, og þess vegna hefur hann verið kallaður til dóma. Í norrænni sögu hefur verið ríkjandi sú hefð öldum saman að það sé samfélagsleg skylda að sjá fyrir öldr- uðu fólki þó stundum hafi verið reynt að komast hjá þeirri skyldu, sérstaklega ef mikið hallæri ríkti. Þá komu menn stundum fram með tillögur um að drepa gamalt fólk til að losna við að sjá því farborða. Eða það gekk sjálft (meira eða minna hjálparlaust?) fyrir ætter- nisstapa til að losna við að deyja á sóttarsæng og þar með komast örugglega til Óðins. Í Reykdælasögu er sagt frá því að samkoma hér- aðsmanna „lofaði að gefa upp fátæka menn, gamla, og veita enga hjálp, svo þeim, er lama voru eða að nokkru vanheilir, og eigi skyldi herbergja þá, en þá gnúði á hinn snarpasti vetur…“ Sem betur fer átti mesti höfð- ingi í sveitinni, Arnór kerlingarnef, móður sem gat sannfært hann um hve ómannúðleg þessi ráðstöfun væri og lét hann setja ný lög sem kváðu á um fram- færsluskyldu á „einkanlega föður og móður“. Gamalt fólk og óvinnufært voru ómagar sem erfin- gjarnir áttu að sjá fyrir samkvæmt lögum. Þó voru til ýmsar aðrar framfærsluleiðir fyrir efnað fólk, til dæmis gat maður keypt sér framfærslu með því að eftirláta eigur sínar svokölluðum „varnaðarmanni“ og gerast sjálfur „afsalsmaður “. Og í kristni var hægt að kaupa próventubréf og gerast próventumaður eða -kona í klaustri, þ.e. fá þar fæði og húsnæði (og væntanlega hjúkrun) gegn greiðslu. Setjast í helgan stein. Það má kannski segja að þetta hafi verið upphafið að elli- og hjúkrunarheimilum nútímans? Sú sem þetta ritar vann sem aðstoðarlæknir á Hér- aðssjúkrahúsinu í Lifangri í Norður-Þrændalögum

x

Öldrun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldrun
https://timarit.is/publication/1137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.