Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 7
7
Ann-Sofie Nielsen Gremaud
Ísland sem rými annarleikans
Myndir frá bókasýningunni í Frankfurt árið 2011
í ljósi kenninga um dul-lendur og heterótópíur
Ritið 1/2012, bls. 7–29
Bókasýningin sem sjónrænn umræðuvettvangur
Á bókasýningunni í Frankfurt haustið 2011 var Ísland heiðursgestur undir
yfirskriftinni „Sagenhaftes Island“ (Sögueyjan Ísland) sem vísar bæði til
Íslands sem staðar þar sem ríkir sterk bókmenntahefð og til Íslands sem
(allt að því) óraunverulegs staðar. Bókasýningin myndaði umgerð um
fjölda áhugaverðra rýma þar sem Ísland varð „staður bókaþjóðarinnar“,
bæði í veruleikanum og í sjónrænum lýsingum.1 Ég ætla að fjalla um þær
hugmyndir um tíma, sem birtast í gríðarlegu magni mynda og texta í kynn-
ingarefni og umfjöllun um Ísland á bókasýningunni, hvernig þær stangast
á og hvernig þær eru samofnar lýsingum á landinu. Í framsetningunni má
greina áhrif eldri og nýrri frásagna sem litað hafa lýsingar Íslands á sjálfu
sér ásamt arfleifð evrópumiðaðra hugmynda um þróun, sem oft hafa verið
hugmyndasöguleg umgerð Íslandslýsinga í tímans rás. Viðfangsefni mitt
er því gögn frá bókasýningunni sem ég greini og set í menningarsögulegt
samhengi. Ég rýni í það hvernig íslenska skálanum eru gerð skil í textum
og myndum greina sem birtust meðan á sýningunni stóð, ásamt textum og
efni af heimasíðu bókasýningarinnar sem er á þremur tungumálum, þýsku,
ensku og íslensku. Á heimasíðunni koma einnig fram beinar og óbeinar
lýsingar á Íslandi, náttúrunni, menningunni og bókmenntunum.
1 Sjá Richard Kämmerlings, „Gastland. Wo bleiben die Gammelhaie?“, Die Welt
13. október 2011: http://www.welt.de/print/die_welt/kultur/article13657898/
Szenen-einer-Buchmesse.html [sótt 20. janúar 2012]. Á frummálinu: „ein Topos
der Buchnation“.