Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 142

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2012, Page 142
142 allra birtra smásagna Jakobínu eru einnig dramatísk eintöl eða innri eintöl. Frásagnaraðferð skáldsögunnar Í sama klefa er margslungin og flókin, eins og Ástráður Eysteinsson hefur fjallað ítarlega um í greininni „Þetta er skáldsaga“,3 og í raun mætti halda því fram að flest verk Jakobínu séu innlegg í formbyltingu íslenskrar sagnagerðar. Í fjórða bindi Íslenskrar bókmenntasögu fjallar Dagný Kristjánsdóttir um höfundarverk Jakobínu og segir meðal annars að bækur hennar beri vitni „ákaflega mikilli stílmeð- vitund og þar [séu] gerðar ýmist varfærnar eða róttækar formtilraunir“ sem séu undanfarar módernisma eða endurnýjun raunsæisins.4 Ástráður Eysteinsson gengur lengra í skrifum sínum um íslenskan módernisma og telur Jakobínu tvímælalaust vera meðal þeirra rithöfunda sem umbyltu íslensku sagnaformi á 7. og 8. áratug 20. aldar.5 Hann telur enn fremur að módernískasta verk Jakobínu sé Lifandi vatnið − − −,6 sem reyndist skáld- konunni svo „örðugt viðfangs“. Ljóst er af uppkasti hennar að umsókn um listamannalaun fimm árum áður en sú bók kom út að hún hafði þá strax ákveðið að skrifa verk sem væri flókið hvað varðaði form og stíl. Hér á eftir verður leitast við að sýna fram á hvaða tilgangi hin flókna og margbrotna frásagnaraðferð Lifandi vatnsins – – – þjónar fyrir söguna og persónusköpun verksins. Við greininguna styðst ég við hugmyndir fræði- mannanna Brians Richardson og Moniku Fludernik, sem skrifað hafa um 3 Ástráður Eysteinsson, „Þetta er skáldsaga. Í sama klefa eftir Jakobínu Sigurðardótt- ur“, Umbrot. Bókmenntir og nútími, Reykjavík: Háskólaútgáfan, 1999, bls. 211−222. Greinin birtist fyrst undir heitinu „„... þetta er skáldsaga.“ Þankar um nýjustu bók Jakobínu Sigurðardóttur“ í Tímariti Máls og menningar 1/1983, bls. 87−99. 4 Dagný Kristjánsdóttir, „Unga, reiða fólkið“, Íslensk bókmenntasaga IV b., ritstj. Guðmundur Andri Thorsson, Reykjavík: Mál og menning, 2006, bls. 603–639, hér bls. 639. 5 Ástráður Eysteinsson, „Baráttan um raunsæið. Um módernisma, raunsæi og hefð“, Umbrot. Bókmenntir og nútími, bls. 30−55, hér bls. 30. Greinin birtist upphaflega undir heitinu „Baráttan um raunsæið. Um módernisma, raunsæi og hefð“ í Tíma- riti Máls og menningar 4/1984, bls. 418−443. Sjá einnig: Ástráður Eysteinsson, „Icelandic Prose Literature, 1940–1980“, A History of Icelandic Literature, ritstj. Daisy Neijmann, Histories of Scandinavian Literature, 5. bindi, Lincoln og London: University of Nebraska Press, 2006, bls. 404−438. Fleiri hafa fjallað um Jakob- ínu sem módernista og þátt hennar í endurnýjun íslensks sagnaforms á 7. og 8. áratugnum, t.d.: Erik Skyum-Nielsen, „Jakobínas sidste bog“, Frejas Psalter, ritstj. Bergljót Kristjánsdóttir og Peter Springborg, Kaupmannahöfn: Det arnemagn- æanske Institut, 1997, bls. 160–164; og Helga Kress, „Searching for Herself: Female Experience and Female Tradition in Icelandic Literature“, A History of Icelandic Literature, bls. 503−551. 6 Ástráður Eysteinsson, „Þetta er skáldsaga“, bls. 212. ÁStA kRiStíN BeNediktSdÓttiR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.