Skírnir - 01.01.1946, Page 83
Skírnir
Guttormur J. Guttormsson
81
auðveldara með að afla sér vestur-íslenzkra bóka, og er
þar um mikilvægt og tímabært þjóðræknismál að ræða.
Að því er Guttorm snertir, er þó ánægjulegast að minnast
þess í sambandi við takmarkaða útbreiðslu rita hans
með heimaþjóðinni, að undirbúningur mun nú hafinn að
heildarútgáfu þeirra á íslandi, eða að minnsta kosti ítar-
legu úrvali úr þeim. Mega allir bókavinir, og þá sér í
lagi unnendur sérstæðs og efnismikils skáldskapar, hvort
heldur er í bundnu máli eða óbundnu, fagna þeim tíðind-
um og fljótt komast að raun um það við lestur þess rita-
safns, að víðlent er og f jölskrúðugur gróður í andans land-
námi skáldsins og bóndans á Víðivöllum við íslendinga-
fljót í Nýja íslandi.
I.
Guttormur J. Guttormsson er kominn af góðum og
kunnum ættum á Austurlandi. Foreldrar hans voru þau
Jón Guttormsson Vigfússonar alþingismanns eldra og
Pálína Ketilsdóttir á Arnheiðarstöðum í Fljótsdal, er flutt-
ust þaðan vestur um haf til Ontarío árið 1875 og stuttu
síðar til Nýja íslands; voru þau fyrst um tíma á Gimli,
en námu síðan land að Víðivöllum norður við íslendinga-
fljót. Áttu þau, sem aðrir íslenzkir frumbýlingar á þeim
slcðum, við fátækt og margvíslega aðra örðugleika að
stríða, og er í frásögur fært, að fyrsta heimili þeirra hafi
verið yfirgefið Indíánahreysi og því harla óvistlegt. 1
þessu heimkynni þeirra var Guttormur skáld í heiminn
borinn 5. desember 1878 og er því barn hinna fyrstu land-
námsára.
Frá æskudögunum í Nýja íslandi þekkir hann þess
vegna af eigin sjón og reynd strit og stríð landnemanna,
enda hefur hann reist þeim margan maklegan bautastein
í kvæðum sínum. Snemma á árum varð hann einnig að
fara að hafa ofan af fyrir sér sjálfur, því að 11 ára að
aldri missti hann móður sína (1889), og föður sinn fimm
árum síðar. Var nú eigi annað fyrir hendi en að taka
hverri þeirri erfiðisvinnu, sem fáanleg var.
6