Skírnir

Árgangur

Skírnir - 01.01.1968, Síða 185

Skírnir - 01.01.1968, Síða 185
SKÍRNIR RITDÓMAR 183 tækum lesurum sem ekki eru bókamenn, tam. mjaltastúlkum til sveita eða reiðhjólasendlum stórbæanna“. Þessi afstaða er næsta torskilin nema útfrá því sjónarmiði að bækur eigi fyrst og fremst að vera veggjaprýði, mubblur og helzt óbrotgjarnir legsteinar höfunda (sbr. margra binda ritsöfn í svörtu og skrautlegu skinnbandi). Pappírsbökumar hafa gert fátæklingum efna og anda á borð við undirritaðan kleift að eignast og lesa miklum mun meira af ágætisverkum heimsbókmenntanna en ella hefði orðið — þær hafa vissulega gert bókmenntirnar að almenningseign í ríkara mæli en nokkuð annað síðan prentverk Gutenbergs kom til skjalanna. Fróðlegri miklu eru vangaveltur Halldórs í fyrstu köflum Islendíngaspjalls um það óskýrða fyrirbæri, að hér útá Islandi skyldu menn gera bókiðju að alfa og ómega mannlífsins með þeim afleiðingum, að Islendingar skópu einir germanskra þjóða sígildar bókmenntir og eru framá þennan dag eina þjóð Norðurlanda sem lagt hefur frumlegan og varanlegan skerf til heimsbólc- menntanna. Lýsing Halldórs á fyrirbærinu er sem vænta mátti litrík og skemmtileg, svo langt sem hún nær, en honum auðnast ekki fremur en vænta mátti að skýra það. Samt er þetta ein af stóru gátunum í bókmenntasögunni — og reyndar mannfræðinni líka — sem hvað æsilegast hlýtur að vera að glíma við. Það verður æ greinilegra þeim mun lengra sem líður, að kenningar Barða Guðmundssonar um uppruna Islendinga þarf að taka til alvarlegrar og rækilegrar yfirvegunar, og hefði vissulega verið fengur að umræðu um þessi efni í Íslendíngaspjalli. Skýring Halldórs er stuttaraleg og heldur yfir- borðsleg: „Skáldskapur var frá upphafi runninn íslendíngum í merg og bein og þeir bændur í Noregi sem eftilvill kunnu elstu kvæði eddu í ein- hverri mynd virðast hafa flust til íslands, en ekki viljað vera kyrrir heima hjá sér í Noregi; varla einusinni skilið þar eftir nokkurt sitt spor“. Hér sem víðar hefur lesandinn á tilfinningunni að Halldór flýi vandann, nenni blátt- áfram ekki að glíma við torráðnar gátur eða aðgangsfrek vandamál, heldur leysi þetta allt upp í stílglettur. Sumstaðar hefur örlað á því í íyrri skrifum Halldórs Laxness, að hann væri ekki meira en svo trúaður á sannleiksgildi ýmissa þeirra fornrita, sem ,,nor- rænufræðingar“ og sagnfræðingar hafa farið með einsog kaþólskir fara með helga dóma, og á ég þar einkum við Landnámu. Hér tekur hann af skarið og ræðir þessi mál hispurslaust í tveimur köflum. Hefur hann greinilega að bak- hjarli hina fróðlegu og víðfrægu fyrirlestra Þórhalls Vilmundarsonar um nátt- úrunafnakenninguna og notar reyndar tvö dæmi hans (Geirmund heljarskinn og Þorbjörn bitru). Hefði verið viðkunnanlegt að Þórhalls væri að einhverju getið í þessu samhengi, því vissulega er kenning hans frumlegri og frjórri en flest eða allt sem fram hefur komið í íslenzkum fræðum fyrr og síðar, en Halldór sleppir slíkri kurteisi. Afturámóti getur hann neðanmáls þeirra merku tíðinda danska fræðimannsins Olafs Olsens að guðahús hafi ekki tíðk- azt hér fremur en með öðrum germönskum þjóðum fyrir kristni. Dómur Hall- dórs um Landnámu er annars í stuttu máli þessi:
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208
Síða 209
Síða 210
Síða 211
Síða 212

x

Skírnir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.