Skagfirðingabók - 01.01.1982, Blaðsíða 174
SKAGFIRÐINGABÓK
Við höfum agætan markað á Siglufirði fyrir mjólkurafurðirnar,
enda hafa þær líkað prýðilega, og sömuleiðis er að koma dálítill
markaður fyrir þær á Sauðárkróki. Ég þori að fullyrða, að mörg-
um hafa orðið léttari skuldaskilin í haust, vegna þess stuðnings,
sem þeir hafa haft af mjólkursölunni.
Hrossamarkaðir voru haldnir hér í sumar, en lítið var látið af
hrossum, því verðið mun hafa þótt lágt. Þó fékkst yfir hundrað
krónur fyrir þriggja vetra hross, og má það teljast sæmilegt, enda
var verðið hlutfallslega bezt á þeim.
Lítið var um síldarsöltun á Sauðárkróki í sumar, og fremur
rýr atvinna við það, en að líkindum fá Sauðkrækingar fastari
atvinnu næstu ár, því nú er í ráði að byggja höfn á Sauðárkróki á
þessu ári. Er ráðgert að hún kosti 600 þúsund kr., svo hér er í
mikið ráðizt. Frá ríkinu er búizt við að komi 250 þúsund kr., og
einnig er búizt við, að töluvert fé safnist innan sýslu, hjá ein-
staklingum og stofnunum. Hitt verður að taka til láns. Mun það
lán fengið; en svo er eftir að vita, hvort höfnin og sýslan standa
undir afborgunum og vöxtum af þessari gífurlegu upphæð, sem
líklega mun nema allt að 300 þúsund kr. En mikið mundi það
lyfta undir atvinnuvegi héraðsins, ef hér kæmi góð höfn, og
samgöngur og útgerð ykist til stórra muna frá því sem nú er.
Hér skeði sú nýlunda, að Kristján konungur X. ferðaðist um
landið í sumar ásamt drottningu sinni og fylgdarliði. Kom hann
hér í Skagafjörð á leið sinni til Akureyrar og snæddi, ásamt
fylgdarliði sínu, hádegisverð á Víðivöllum. Var Skagfirðingabúð
tjaldað þar á túninu, og þar fór hófið fram. Boðið hafði verið
sýslumanni, lækni, hreppstjóra Akrahrepps og oddvita, ásamt
konum þeirra. En auk þess safnaðist þar saman múgur og
margmenni úr héraðinu til að vera viðstaddir þessa fáheyrðu
heimsókn. Var konungur hinn ljúfasti í viðmóti við alla, háa
sem lága, og hafði orð á því, hve honum þætti héraðið yndis-
fagurt, enda hittist dásamlega á með veðrið. Ferðaðist hann í
bifreiðum alla leið norður í Mývatnssveit og lét mæta vel yfir
ferð sinni. Er þetta í fjórða sinn er hann kemur til landsins.
172