Skagfirðingabók - 01.01.2001, Blaðsíða 69
DANSKI ÚRSMIÐURINN SEM VARÐ SKAGFIRÐINGUR
menn tóku yfirleitt ekki eftir henni. Ég heyrði því líka fleygt,
að mamma hefði fyrst uppgötvað þessa tóbaksnotkun pabba, er
þau höfðu verið trúlofuð í mánuð! En hvernig stóð á þessari
skronotkun hjá pabba? Kann gaf þá skýringu, að er hann
gegndi herþjónustu, var honum ráðlagt að nota skro gegn
þorsta. Þorsti sótti oft að hermönnum við erfiðar æfingar og á
löngum vöktum. Vatn gátu þeir ekki fengið hvenær sem var.
Jónas læknir var að sjálfsögðu kosinn formaður tóbaksbind-
indisfélagsins, og á einum af fyrstu fundum félagsins ræddi
Jónas um skátahreyfinguna og að hann ætlaði að ræða við
skátahöfðingja Islands, Axel V. Túliníus, og biðja hann að
stuðla að stofnun skátafélags á Sauðárkróki. Þetta gekk eftir og
það fljótt. Skátafélagið Andvarar á Sauðárkróki var stofnað 22.
mars 1929 eða 79 dögum á eftir Tóbaksbindindisfélaginu.
Þessi félög áttu eftir að hafa veruleg og góð áhrif á æsku Skaga-
fjarðar. Tóbaksbindindisfélagið starfaði vel í nokkur ár. Skáta-
félagið starfar vel ennþá og er eitt af elstu skátafélögum lands-
ins, verður 70 ára á þessu ári (1999). Sauðárkróksskátar hafa
haft veruleg áhrif á skátastarf á Islandi, verið brautryðjandi á
mörgum sviðum. Fjögur skátafélög voru starfandi um tíma í
Skagafirði, það var á Sauðárkróki, í Staðarhreppi og á Hofsósi.
Margir skagfirskir skátar hafa náð langt og orðið landsþekktir.
Meðal þeirra má nefna Magnús Jónsson frá Mel, ritstjóra,
bankastjóra, alþingismann og ráðherra, bræður hans tvo, Bald-
ur skólastjóra Kennaraskóla Islands og Halldór sem varð sýslu-
maður Skagfirðinga, Sigurð Jónsson sem varð óðalsbóndi á
Reynistað, Stefán Guðmundsson alþingismann og séra Sigurð
Helga Guðmundsson, sóknarprest í Víðistaðasókn í Hafnar-
firði, sem starfað hefur mikið að velferð eldra fólks. Þá má
nefna Margréti Þórunni Sigurðardóttur sem varð borgarfulltrúi
í Helsingjaborg í Svíþjóð, Hannes Pétursson skáld og rithöf-
und og Pálma Jónsson stofnanda og forstjóra Hagkaupa. Ég
gæti nefnt fleiri, en læt staðar numið.
Foreldrar mínir stóðu einhuga að baki þessara félaga, og þau
67