Jökull


Jökull - 01.12.1956, Blaðsíða 40

Jökull - 01.12.1956, Blaðsíða 40
SIGURÐUR ÞÓRARI NSSON: VatnajökulsleiSangur 1956 Hlutverk leiðangursins. I maímánuði 1956 var enn geröur út leiðang- ur á Vatnajökul, sá sjötti í röðinni á þeim fimm árum, sem liðin eru, síðan Jöklarannsóknafélag Islands hóf starf sitt. Hlutverk þessa leiðangurs var þríþætt. I fyrsta lagi skyldi haldið áfram því starfi á vegum Landmælinga Islands, sem hafið var með leið- angrinum vorið 1955 og haldið var áfram í liaustleiðangrinum sama ár, sem sé að setja upp mælingamerki á nokkrum stöðum á Vatna- jökli og flytja síðan mælingamann til starfa á mælingastaðina. í vorleiðangrinum 1955 voru merki reist á Grímsfjalli og Kverkfjöllum eystri, en í haustleiðangrinum á Þórðarhyrnu og Hvannadalshnúk og merkið á Grímsfjalli reist að nýju. Ekki tókst jtó að ljúka mæling- um frá þessum stöðum haustið 1955, og var því ákveðið að setja upp merki að nýju á Þórðarhyrnu, Kverkfjöllum og Hvannadals- hnúk. Auk þess skyldi, ef auðið væri, komið upp merkjum á Grendli, sem er tindur austast á Vatnajökli. I öðru lagi var ætlunin að grafa nokkrar snjógryfjur, og mæla snjólagið (ákom- una) frá undangengnum vetri. I þriðja lagi var ákveðið að gefa nokkrum mönnum kost á að ferðast um Vatnajökul sem túristar, enda eitt af markmiðum Jöklafélagsins að opna sem flestum augun fyrir dásemdum þeim, sem ís- lenzkir jöklar hafa upp á að bjóða, og sjón er sögu ríkari. Könnunarflugið. Þ. 23. maí fórum við Guðmundur Jónasson í könnunarflugferð yfir Vatnajökul með Karli Eiríkssyni flugmanni til þess að athuga skrið- jökulinn upp af Tungnaárbotnum og aðstöð- una til að koma upp merkjum á áðurnefndum stöðum. Er sjálfsagt að kanna jökulinn á þenn- an hátt, áður en lagt er 1 stóran leiðangur, því að breytingar geta orðið þar með skjótum hætti, bæði vegna þess elds, er víða þrumir undir, og vegna þess að skyndilega getur komið gangur í skriðjöklana og þeir sprungið ferlega. Ekki gaf okkur Guðmundi skyggni yfir austur- hluta jökulsins, og gátum við því ekki áttað okkur á aðstæðum við Grendil, en hvorugur okkar hafði gengið á þann tind. En yfir vest- urjöklinum var bjart og ekkert óvænt að sjá. Snjór var sýnilega meiri á Tungnaárjöklinum en vorið áður og náði niður á jökuljaðar. Spáði það góðu um færi upp eftir jöklinum. Hins vegar var svo mikill snjór á öræfunum milli Ljósufjalla og Tungnaárbotna, að okk- ur þótti sem áhöld væri um Jrað, hvort kom- ast mætti á bílnum inn í Jökulheima. Fyrir eindregna ósk Agústs Böðvarssonar var þó hætt á að leggja af stað hið fyrsta. Ferð i Jökulheima. Laugardaginn 26. maí, um nónbilið, lagði 25 manna hópur af stað frá Þverholtinu í Reykjavík áleiðis til Jökulheima. I förinni voru 9 bílar, þar af 3 beltabílar. I þessum hópi voru 13, sem leggja ætluðu á jökulinn, þar af 5 konur, sem voru túristar leiðangursins: Hanna Brynjólfsdóttir, Hulda Filippusdóttir, Ingibjörg Arnadóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Margrét Sigurþórsdóttir. Karlarnir 8 voru: Árni Kjartansson Guðmundur Jónasson, Haukur Hafliðason, Hörður Hafliðason, Magnús Eyjólfsson, Nicholas Clinch, Ólafur Nielsen, Sigurður Þórarinsson. Var Guðmundur fararstjóri ásamt Sigurði, Árni var matráðsmaður og Hulda honum til aðstoðar, en þess er að geta, að þau Árni og Hulda gengu í hjónaband daginn áður en lagt var í leiðangurinn, og var þetta því brúðkaups- ferð þeirra. Er ógiftum meðlimum Jöklafélags- ins bent á þetta til eftirbreytni. Guðmundur 38
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.