Jökull


Jökull - 01.12.1978, Page 66

Jökull - 01.12.1978, Page 66
Athugasemdir og viðaukar ABSTRACT Glacier variations were recorded at 44 locations. Thirty locations showed retreat, 27 m on the average, but 4 tongues were stationary and 10 snoutes advanced, 17 m on the average. For the 44 locations, the retreat in 1977V 78 was 15 meters on the average. During the last 3 years the glacier tongues have retreated 22 meters on the average. Most remarkable is the great retreat of Breidamerkurjökull at station No. 25 near the proglacial lake Breidamerkurlón, which for someyears has exceeded 100 m peryear. Haustið 1978 voru lengdarbreytingar mældar á 44 stöðum. A 30 stöðum hopaði jökuljaðar, stóð í stað á fjórum, en gekk fram á 10 stöðum. Samtals sýndu framskriðsstaðir 172 m framskrið, en hopstaðir 832 m hop, þ. e. a. s. hopið mældist 660 m umfram framskriðið. Það svarar til 15 m hops að meðaltali á mæli- stöðum, eða aðeins helming á við hop fyrra árs. Eins og tekið hefur verið fram á undan- förnum árum hér í Jökli, ber að taka niður- stöður aðeins eins árs með gætni. Vart verður þó dregið í efa, að mælingarnar sýna, að „enn erujöklar á undanhaldi hér á landi, en svo virtist sem hœgt hafi á undanhaldinu. “ Haustið 1977 var fremur kalt og þurrt. Þó var ákoma á Norðurlandsjökla talin vel í meðallagi. Veturinn 1977/78 var einnig kald- ur nema desember. Ákoma á jöklum var undir meðallagi, einkum vegna þess að aldrei komu veður sem stórviðri gátu talist. Jökulár frá há- jöklum tóku að vaxa fyrir alvöru eftir 10. júlí og náðu hámarki í ágústlok. Jöklaleysingu var að mestu lokið með september eins og venja er. Enn sem fyrr vekur hop Breiðamerkurjökuls eftirtekt. Hann hopar hressilega, eða um 125 m við jökullónið. Aftur á móti hefur jaðar Tungnaárjökuls hjá Jökulheimum staðið nær alveg í stað, en þar eð hann hefur á árinu lækkað verulega er nú svo komið, að litlu má muna að alldrjúg spilda „detti“ framan af honum, svo að óvarlegt er að fullyrða nú, að hopskeiði hans sé lokið. Framhlaup var í Dyngjujökli austanverðum. Snæfellsjókull Jenny Guðjónsdóttir, Gröf, er kunnug stað- háttum við jökuljaðar og getur annast mæl- inguna fyrir Hallstein, ef með þarf. Kaldalón I bréfi með mælingaskýrslunni tekur Aðal- steinn fram að „jökulræman, sem lá niður Mórillu í fyrra hefur styst og þynnst. Eg mældi að fyrsta íshaftinu, sem er á ánni. Þar fyrir ofan er 80 m kafli með holum og skvompum, þá heill jökulís, allt gamall jökull. Hvergi er að sjá sprungu eða hreyfingu í jöklinum. Eg veit ei, hve mikið var eftir af snjó síðasta vetrar uppi á jöklinum, en það mun hafa verið eitt- hvað. Ég hef nú gefið klettabrystinu, sem er efst í skriðjöklinum nafn, og nefnt það Úf, sökum þess að áður en það skaut upp kollinum var þarna mjög úfinn blettur í jöklinum.“ ,,. . . síðastliðinn vetur var mjög snjóléttur, hríðar- laus fram að páskum. Stórhríð var 28. mars, setti þá niður mikinn snjó. Engin hjarnlög voru í vetrarsnjónum, varð aldrei svo hlýtt að nein frostleysa kæmi að gagni. í septemberlok 1979 var eftir snjór hér í norðurbrún dalsins á 8 stöðum á 10 km löngum kafla, þykktin 1 — 3 metrar. Þar að auki var skafl miðhlíðis við Kuldaklett, enda er þar ein snjódældin, sem snjór getur verið í árum saman.“ Þetta voru nokkrar glefsur úr bréfi Aðalsteins, en í bréf- inu er að finna upplýsingar um árferði, berja- sprettu, fuglalíf o. m. fl. Synir Aðalsteins, Indriði og Jóhann, geta annast mælinguna fyrir hann ef á þarf að halda. Reykjafjarðarjökull Guðfinnur tekur fram í mælingaskýrslunni, að miklar sprungur séu í jöklinum við útfall árinnar. Þeir sem kunnugir eru staðháttum við jökuljaðar eru Guðmundur Ketill og Hallgrímur, synir Guðfinns og ennfremur Jó- hannes Jakobsson Isafirði. Þeir geta allir ann- ast mælinguna fyrir Guðfinn, ef á þarf að 64 JÖKULL 28. ÁR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.