Jökull


Jökull - 01.12.1985, Side 144

Jökull - 01.12.1985, Side 144
Trausti með Leifi Ásgeirssyni á öðru námsári í Gött- ingen. íslendingar hafa gengið og klifrað jafn víða um landið og hann. Trausti Einarsson lést í Reykjavík 26. júlí 1984 eftir langvarandi veikindi. Eftirlifandi kona hans er Nína Þórðardóttir (f. 27. janúar 1915), dóttir Þórðar Sveins- sonar yfirlæknis og prófessors og konu hans Ellen Jo- hanne Kaaber. Trausti og Nína gengu í hjónaband 20. janúar 1951 og eignuðust eitt barn, Kristínu Höllu (f. 7. júlí 1951), sem er líffræðingur og gift Jóni Ingimarssyni verkfræðingi. KENNARI Kennsla, fyrst á menntaskólastigi og síðar á háskóla- stigi, var alla tíð aðalstarf Trausta Einarssonar. Þegar hann hóf kennslu við stærðfræðideild Menntaskólans á Akureyri kenndi hann 30 stundir á viku í stærðfræði, eðlisfræði og stjörnufræði. Eins og svo algengt er um kennara fer tvennum sögum af kennslu Trausta: sumum féll hún afbragðs vel, öðrum miður. Ljóst er að hann var mjög kröfuharður við nemendur sína og strangur, en hann var enn kröfuharðari við sjálfan sig. Það er erfitt að vera áhugavekjandi, fræðandi og skemmtilegur til lengdar í 30 tíma menntaskólakennslu, enda hefur Trausti vart talið það skyldu sína, a.m.k. ekki skemmtilegheitin. Hins vegar fundu þeir sem raun- verulegan áhuga höfðu á náttúruvísindum strax í menntaskólakennslunni þá rannsóknarástríðu og áhuga á eigin verkefnum sem alla tíð einkenndu Trausta. Eins og aðrir sem haldnir eru rannsóknarástríðu hefur Trausti örugglega oft óskað þess að vera laus við kennsluna og getað helgað sig rannsóknunum óskiptur. En þegar hann leit yfir farinn veg eftir áratuga kennslu og rannsóknir segist hann hafa fundið jákvætt gildi kennslunnar sem hvatningu til þekkingaröflunar, sem tilbreytingu frá erfiðum rannsóknarstörfum, og sem hugmyndagjafa í rannsóknum. Trausti taldi að menntaskólar og aðrir framhalds- skólar ættu að vera ein af þeim leiðum sem ungir kennarar gætu farið eftir upp í æðri rannsóknarstofnanir eins og Háskólann. Hann áleit menntaskólana ágæta þroskabraut fyrir verðandi háskólakennara og mikil- vægt að leið menntaskólakennara til Háskólans væri haldið opinni og menn örvaðir til rannsókna innan menntaskólanna. Sjálfur fór Trausti þessa leið, byggir því á reynslu sinni, og er talandi dæmi um ágæti þeirrar leiðar. Ég kynntist Trausta fyrst verulega er ég sótti tíma hjá honum í kúrs um innri gerð jarðar á vorönn 1976. Kennsla Trausta í þessum kúrs var afburðagóð og kennslustundirnar í heild ógleymanlegar. Kom þar margt til en einkum þó brennandi og smitandi áhugi Trausta á viðfangsefninu. Að auki voru allar aðstæður og umhverfi eins og best verður á kosið: kennslustund- irnar voru haldnar á notalegu heimili Trausta og Nínu, og milli umræðnanna bar Nína fram kaffi og meðlæti. Þessi umbúnaður ásamt þeirri tilfinningu að verið væri að fást við þau verkefni sem máli skiptu, og af sannri vísindaástríðu, gerðu fyrirlestra þessa einstaka í röð þeirra sem ég sótti við Háskóla íslands. Trausti var óhræddur við stóru vandamálin: uppruni sólkerfisins, uppruni basaltkvikunnar, eðlisástand möttulsins undir íslandi, eru sýnishorn af þeim verkefnum sem tekin voru fyrir. Að baki fyrirlestrunum lá augljóslega geysi- mikil vinna. Til dæmis fengu nemendur ljósrit af á þriðja hundrað handskrifuðum blaðsíðum. Ánægja Trausta af snörpum rökræðum naut sín vel í fyrirlestrunum. Til þess að mynda sér skynsamlega skoðun á vísindakenningum og tilgátum, sem og öðrum málum, verða menn að kynna sér bæði meðrök og mótrök. Að öðrum kosti þekkja menn ekki þá kenningu sem þeir fylgja. Trausti var óþreytandi að tíunda mót- rök gegn ýmsum viðteknum kenningum og skoðunum í jarðfræði, og þó einkum þeim er snertu jarðfræði ís- lands. Landreks- eða plötukenninguna, en fyrir and- stöðu sína við hana var Trausti kunnastur síðustu árin, bar þó aðeins einu sinni eða tvisvar stuttlega á góma. I ljósi meðraka og mótraka var það nemendanna að vega 142 JÖKULL 35. ÁR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.